Beint á leiðarkerfi vefsins

Skoðun SA

30.12.2001

Lítið dregið úr áræðni og stórhug margra fyrirtækja

Í áramótaviðtali Morgunblaðsins við Finn Geirsson, formann SA, segir hann m.a. ánægjulegt að sjá að þrátt fyrir ýmis vonbrigði og áföll á liðnu ári hafi lítið dregið úr áræðni og stórhug margra fyrirtækja. Hann segir brýnt að búa svo um hnúta að gengi krónunnar haldist sem stöðugast.

22.11.2001

Þríhliða viðræður?

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í Fréttablaðinu í dag að viðbúið sé að aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld fari í samstarf um þríhliða viðræður um hvaða leiðir geti verið fyrir hendi til að forða því að launalið kjarasamninga verði sagt upp á næsta ári.

21.11.2001

Efla þarf tiltrú á krónuna

Til þess að hemja verðbólguna verður að efla tiltrú á krónuna. Gengisfallið á undanförnum mánuðum virðist vera aðalástæða óhagstæðrar verðlagsþróunar, sagði Finnur Geirsson, formaður SA, í fréttum útvarps.

13.11.2001

Staða miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði

Þörf er á aukinni umræðu um stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir hins vegar lagasetningu ekki vera leiðina til að styrkja stöðu þessa hóps.

13.11.2001

Verðbólgan á niðurleið

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að verðbólgan sé ótvírætt á niðurleið. Hann bendir á að hækkun á vísitölu neysluverðs nú sé svipuð og á sama tíma í fyrra og að yfirleitt séu litlar breytingar frá nóvember til desember.

9.11.2001

Skref í rétta átt

Vaxtalækkun Seðlabankans er skref í rétta átt, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann segist vona að þetta skref sé upphafið að frekari vaxtalækkunum og hvetur jafnframt til aukins aðhalds í opinberum útgjöldum.

29.10.2001

Einfalda þarf leið útlendinga á íslenskan vinnumarkað

Einfalda þarf leið útlendinga inn á íslenskan vinnumarkað, t.d. þannig að sama stofnun gefi út bæði dvalar- og atvinnuleyfi, sagði Jón H. Magnússon, lögmaður hjá SA, í erindi á norrænni ráðstefnu um þjónustu vinnumiðlana við innflytjendur á Norðurlöndum.

18.10.2001

Launamunur kynjanna og ábyrgð á heimilunum

Atvinnurekendur hafa engan hag af því að mismuna fólki eftir kyni eða af öðrum ómálefnalegum ástæðum, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs SA, í grein í Morgunblaðinu í dag.

26.6.2001

Gjaldtaka RÚV vegna fyrirtækjabíla

Í lögunum er hvergi talað um sérstaka gjaldtöku vegna útvarpa í fyrirtækjabílum umfram einkabíla, segir Jón Rúnar Pálsson, lögmaður hjá SA, í grein í Morgunblaðinu þar sem hann svarar grein tækjaleitarmanns hjá RÚV.

19.6.2001

Viðbrögð landsmanna ráða úrslitum

Líkurnar eru fremur í þá átt að hagvöxtur gæti orðið enn minni en spá Þjóðhagsstofnunar gerir ráð fyrir, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Viðbrögð landsmanna ráða úrslitum um framvinduna í verðbólgu- og gengismálum.

24.4.2001

Samræmdar útboðsreglur á landinu öllu

Markmiðið með innri markaði EES var að samræmdar reglur giltu á öllu svæðinu. Á Íslandi er hins vegar í gildi mismunandi viðskiptaumhverfi milli sveitarfélaga, sem er óviðunandi, sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í erindi á fundi SI um breytingar á lögum um opinber innkaup. Helga Jónsdóttir, borgarritari, sagði öll efnisleg rök fyrir því að sömu reglur giltu á landinu öllu.

30.3.2001

Vaxtalækkun fagnað

Samtök atvinnulífsins fagna ákvörðun Seðlabankans um að lækka vexti og telja að sú ákvörðun hafi verið orðin tímabær, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-framkvæmdastjóri SA, í viðtali við Morgunblaðið. Þá segir hann gengislækkanir undanfarinna daga ekki vera af efnahagslegum ástæðum.

1.3.2001

Samkeppnislög þarf að endurskoða

Úrskurður áfrýjunarnefndarinnar í prentsmiðjumálinu er mikið fagnaðarefni, og vekur menn til umhugsunar um hver afstaða nefndarinnar hefði verið í bankamálinu. Samkeppnisráð hefur verið á rangri leið í áherslu sinni á markaðsráðandi stöðu og í þröngri skilgreiningu markaða. Þörf er á nýrri endurskoðun samkeppnislaga, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.

27.2.2001

Úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála fagnað

Samtök atvinnulífsins fagna þeirri niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála að kaup Odda hf. á Steindórsprenti-Gutenberg ehf. standist samkeppnislög og úrskurði hennar þess efnis að ákvörðun samkeppnisráðs frá 15. desember 2000 skuli felld úr gildi.

22.2.2001

Villandi meðaltalstölur í launakönnun VR

Bornar eru saman ósambærilegar tölur og háum prósentutölum skartað í krafti stóraukins vægis stjórnenda og sérfræðinga meðal svarenda, skrifar Gústaf Adolf Skúlason í grein í Morgunblaðinu í dag.

1.2.2001

Vaxtalækkun í kortunum

Hvergi í sambærilegum löndum eru vextir eins háir og hér á landi og fer vaxtamunurinn hratt vaxandi. Í ljósi þeirrar þróunar, tafa á áhrifum vaxtalækkunar og þess hve skammt er enn liðið frá síðustu vaxtahækkun verður að teljast varfærið að lækka forvexti um 0,5 prósentustig. Það væri skref í rétta átt, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.   Sjá nánar 

26.1.2001

Samráð um markaðsvænar lausnir í umhverfismálum

Finnur Geirsson, formaður SA, lagði í ávarpi sínu á umhverfisþingi megináherslu á mikilvægi virks samráðs við atvinnurekendur um þróun markaðsvænna lausna í umhverfismálum, þar sem atvinnurekendum er gefinn kostur á að koma með frumkvæði að útfærslunni og hugsanleg gjaldtaka einskorðast við raunverulegan kostnað af förgun eða endurnýtingu viðkomandi úrgangs. „Forðast ber þunglamalegt eftirlit hins opinbera en treysta þeim mun meira á sjálfsmat og innra eftirlit fyrirtækja" sagði Finnur.  Sjá nánar

4.1.2001

Bjarnargreiði við neytendur

Hlutverk Samkeppnisstofnunar er ekki að stýra uppbyggingu íslensks atvinnulífs, heldur að beita sér gegn ólögmætu atferli. Það sem skiptir mestu máli er að bregðast við misnotkun á markaðsráðandi stöðu en ekki að banna markaðsráðandi stöðu í sjálfri sér, skrifar Ari Edwald, framkvæmdastjóri í leiðara fréttabréfs SA sem kom út í dag. Hann segir að það hljóti að vera algert neyðarúrræði að banna samruna fyrirtækja. Því miður virðist veruleg hætta á að óbreyttar áherslur Samkeppnisstofnunar verði fyrst og fremst ósigur fyrir framleiðniþróun og bætt lífskjör á Íslandi.  Sjá nánar

1.1.2001

Nýtum tækifærið

Finnur Geirsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir í áramótagrein sinni í Morgunblaðinu að framundan sé ómetanlegt tækifæri fyrir fyrirtækin í landinu, stjórnvöld og launafólk að tryggja framhald stöðugleikans, efla samkeppnisstöðu Íslands og treysta grunn sífellt betri lífskjara. Við höfum ekki efni á að sleppa því tækifæri.  Sjá nánar

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english