Bréf til viðskiptaráðherra þar sem vakin er athygli á
annmörkum á starfi nefndar sem ætlað var að meta hvort þörf væri á endurskoðun samkeppnislaga
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Finnur Ingólfsson
Arnarhvoli
150 - REYKJAVÍK
Rvk. 14.12.1999
Efni: Greinargerð nefndar sem ætlað var að meta hvort þörf sé á endurskoðun samkeppnislaga.
Eins og yður er kunnugt hefur nefnd, sem ætlað var að meta hvort þörf sé á endurskoðun samkeppnislaga, lokið störfum. Formaður nefndarinnar mun hafa lagt til að sú leið yrði farin að nefndarmenn skiluðu inn niðurstöðum hver fyrir sig sem hann tæki saman í greinargerð til viðskiptaráðherra, ásamt niðurstöðum nefndarmanna hvers um sig.
Fulltrúi Samtaka atvinnulífsins í nefndinni skilaði niðurstöðum með fjórum öðrum nefndarmönnum, til þess að einfalda samantekt formannsins.
Fulltrúi Samtaka atvinnulífsins telur að greinargerð formanns nefndarinnar sé að sumu leyti ágæt samantekt á niðurstöðum nefndarmanna. Hann hafi hins vegar látið það ítrekað í ljós við formanninn að hann væri ekki sáttur við framsetningu á einstökum niðurstöðum nefndarmannanna fimm. Ábendingar hans hafi hins vegar ekki verið teknar til greina.
Dæmi um þetta er lýsing greinargerðarinnar á megintillögum nefndarinnar, bls. 2-3. Þar segir m.a. : „Hluti nefndarmanna leggur til að Samkeppnisstofnun taki ákvarðanir á fyrsta stjórnsýslustigi en ákvarðanir stofnunarinnar megi kæra til samkeppnisráðs eða áfrýjunarnefndar. Annað hvort samkeppnisráð eða áfrýjunarnefnd verði þá lögð niður. Aðrir nefndarmenn gera ekki tillögu um breytta skipan stjórnsýslu í samkeppnislögum.” Hér er gert lítið úr þeirri gagnrýni sem stjórnsýslulegt skipulag þessa málaflokks fékk á sig í nefndinni. Tillögur þeirra sem vilja breytingar eru settar fram sem sem ein og sama tillagan, þ.e. að annað hvort verði ákvarðanir Samkeppnisstofnunar kærðar til samkeppnisráðs eða áfrýjunarnefndar.
Ef skoðaðar eru sameiginlegar tillögur nefndarmannanna fimm má hins vegar sjá að á afgerandi hátt er mælst til þess að stofnunin taki fyrstu ákvörðun en sú ákvörðun verði kæranleg til kærunefndar, sem svipar til áfrýjunarnefndar í dag. Þetta felur í sér þá tillögu að ráðið verði lagt niður og er ekkert annað hvort eða í því sambandi. Sameiginlegar tillögur 5 nefndarmanna eru hins vegar í greinargerðinni lagðar að jöfnu við tillögu eins nefndarmanns, en í eðli sínu eru tillögurnar ólíkar þótt þær miði að sama markmiði.
Í sérstökum kafla um ákvæði samkeppnislaga um stjórnsýslu er á sama hátt gerð grein fyrir því að nefndin skiptist í tvo hópa þar sem „…annar hópurinn vilji engar breytingar en hinn vilji að ákvarðanir verði teknar hjá Samkeppnisstofnun sem unnt verði að kæra til samkeppnisráðs eða áfrýjunarnefndar. Samkeppnisráð eða eftir atvikum áfrýjunarnefnd verði lögð niður.”
Rétt er að benda á að af þeim 12 nefndarmönnum sem lögðu til efni í greinargerðina eru flestir á því að breytinga sé þörf á stjórnsýslukafla laganna. Þeir 5 nefndarmenn sem skila sameiginlegum niðurstöðum leggja til mjög róttækar breytingar en 10 nefndarmenn af 12 sem skila inn niðurstöðum vilja hrófla við stjórnsýslukafla laganna með einum eða öðrum hætti.
Samtök atvinnulífsins telja nauðsynlegt að vekja athygli yðar á framangreindum annmörkum á greinargerð formanns nefndarinnar. Þessi háttur á samantekt á niðurstöðum einstakra nefndarmanna gefur eftir á að hyggja ekki nægilega skýra mynd af því sem niðurstöður nefndarmanna hafa raunverulega fram að færa. Þau atriði sem framangreindir fimm nefndarmenn leggja áherslu á komast þannig ekki til skila nema menn kynni sér tillögur þeirra í heild sinni.
Samtök atvinnulífsins leggja á það ríka áherslu að eiga gott samstarf við viðskiptaráðuneytið um þróun samkeppnislaga og telja tímabært að breyta lögunum í ýmsum atriðum. Frá þeim tíma að nefndin var skipuð hefur markvisst verið unnið að því að kortleggja samkeppnislögin í framkvæmd með hugsanlegar breytingar í huga. Samtök atvinnulífsins hafa ýmislegt fram að færa í þessum efnum og eru reiðubúin til að leggja fram vinnu við undirbúning og gerð frumvarps um breytingar á samkeppnislögum.
Virðingarfyllst,
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA (Sign)








