Beint á leiðarkerfi vefsins

JÁKVÆÐAR FRÉTTIR

Samtök atvinnulífsins vinna að því statt og stöðugt að bæta rekstarumhverfi fyrirtækja svo hér fái þrifist öflugt atvinnu- og mannlíf. SA eru heildarsamtök íslensks atvinnulífs með um tvö þúsund aðildarfyrirtæki í alls konar rekstri en innan samtakanna er að finna allt frá einyrkjum upp í stærstu fyrirtæki landsins. Í aðildarfyrirtækjum SA starfar um helmingur launamanna á almenna vinnumarkaðnum á Íslandi í fjölbreyttum atvinnugreinum.

Við viljum heyra jákvæðar fréttir úr íslensku atvinnulífi og miðla þeim áfram svo þær megi verða öðrum hvatning. Þrátt fyrir allt ná íslensk fyrirtæki og starfsfólk þeirra árangri við mjög erfiðar aðstæður um þessar mundir en með bættu rekstrarumhverfi er hægt að gera miklu betur.

 

SMELLTU HÉR TIL AÐ KÍKJA Í PÓSTHÓLFIÐ OG LESA JÁKVÆÐAR FRÉTTIR

Jákvæðar fréttir

Aðeins með öflugu atvinnulífi, hugmyndaauðgi og framsýni náum við að kveða kreppuna í kútinn. Framundan er mikilvægt uppbyggingarstarf þar sem SA munu leggja sitt af mörkum til hægt sé að snúa þróuninni við, efla fjölbreytta atvinnustarfsemi og skapa ný störf.

Sendu okkur línu og segðu okkur jákvæðar fréttir af þér og þínu fyrirtæki:

Ruslpóstvörn, Vinsamlega sláðu inn tölurnar á myndinni hér að ofan

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english