Beint á leiðarkerfi vefsins

Fáum málin á hreint - greinaflokkur SA 2009

Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á að fólk fái eins raunsanna mynd af ástandi efnahags- og ríkisfjármála og frekast er kostur. SA hafa því á árinu 2009 birt og munu á næstunni birta hér á vef SA greinar sem er ætlað að upplýsa fyrirtæki og almenning um stöðu mála m.a. um stöðu ríkissjóðs og fleiri grunnstærðir.

 

9.2.2009

Hreinar skuldir ríkissjóðs 27% af landsframleiðslu í lok ársins

Í upphafi árs 2008 var ríkissjóður skuldlaus að teknu tilliti til peningalegra eigna og útistandandi krafna. Námu eignir ríkissjóðs umfram skuldir (svonefnd hrein staða) þá 47 milljörðum kr. eða 3,4% af landsframleiðslu. Eru þá ekki meðtalin fyrirtæki í eigu ríkissjóðs en bókfært virði þeirra er nú um 200 milljarðar. Þessi sterka staða ríkissjóðs sem byggð var upp á umliðnum árum með niðurgreiðslu skulda og aukningu peningalegra eigna auðveldar þjóðinni að takast á við áfall vegna hruns gömlu viðskiptabankanna.

5.1.2009

Ísland áfram í efstu deild þjóða

Hagstofa Evrópusambandsins hefur birt yfirlit yfir landsframleiðslu aðildarríkja ESB og EFTA-ríkjanna undanfarin ár og spá fyrir það ár sem nú er hafið. Hagstofa ESB birtir jafnframt yfirlit yfir meðalmannfjölda ríkjanna og mannfjöldaspár. Á þessum grundvelli hefur hagdeild SA reiknað út landsframleiðslu á hvern íbúa í þessum ríkjum og borið þau saman.

Samkvæmt Hagstofu ESB verður verg landsframleiðsla á Íslandi tæplega 10 milljarðar evra á á árinu 2009 eða sem nemur 31 þúsund evrum á hvern íbúa. Í samanburði við umrædd 30 ríki verður Ísland í 13 sæti, á svipuðum slóðum og Frakkland og Þýskaland, og allnokkuð hærra en meðaltöl fyrir evru-svæðið eða ESB í heild.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english