Beint á leiðarkerfi vefsins

Aðildin að BUSINESSEUROPE

BUSINESSEUROPE - Evrópusamtök atvinnulífsins

39 hagsmunasamtök í 33 Evrópuríkjum
BUSINESSEUROPE eru Evrópusamtök atvinnulífsins og hafa þau starfað frá árinu 1958.

Megin hlutverk BUSINESSEUROPE er að kynna sjónarmið atvinnu- og iðnrekenda fyrir áhrifaaðilum innan ESB og tryggja að tillit verði tekið til hagsmuna þeirra við reglugerða- og lagasetningu. SA eru aðili að BUSINESSEUROPE og Samtök iðnaðarins sömuleiðis. 

Farvegur samráðs og upplýsinga
Aðild íslenskra atvinnurekenda að evrópskum heildarsamtökum opnar þeim glugga inn í Evrópusambandið auk þess að vera farvegur fyrir samráð og upplýsingar um hagsmunamál fyrirtækja á Evrópuvettvangi. BUSINESSEUROPE kemur fram fyrir hönd aðildarsamtakanna gagnvart framkvæmdastjórn ESB og er talsmaður þeirra gagnvart stofnunum sambandsins. Fastafulltrúi SA hjá BUSINESSEUROPE er Pétur Reimarsson, forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs. Hann hefur aðsetur á Íslandi, en varafastafulltrúi er Sigrún Kristjánsdóttir, starfsmaður Evrópuskrifstofu atvinnulífsins í Brussel.

Aðsetur BUSINESSEUROPE :
BUSINESSEUROPE
Avenue de Cortenbergh 168

B-1000, Brussel, Belgía

Sími (00) 32 2 2376511
Myndsendir: (00) 32 2 2311445

Vefur BUSINESSEUROPE er http://www.businesseurope.org

Sjá nánar um Evrópuskrifsofu atvinnulífsins í Brussel.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english