Beint á leiðarkerfi vefsins

Helstu þættir í alþjóðastarfi SA

Alþjóðamál fá stöðugt aukið vægi í starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja. Þar veldur mestu aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu en lagasetning á þeim vettvangi mótar drjúgan meirihluta af öllu löggjafarstarfi Íslendinga. Það varðar atvinnurekendur því miklu að nýta öll möguleg færi til að hafa áhrif á löggjafarstarf, einnig á þessum vettvangi.

Möguleikar til áhrifa eru mjög takmarkaðir en þó helstir fyrir aðildina að UNICE, sem eru talin hvað öflugustu hagsmunasamtökin sem vinna að því að hafa áhrif á ákvarðanir innan Evrópusambandsins. Þessi starfsemi er einnig farvegur fyrir upplýsingar um hvaða svigrúm er til að laga reglur Evrópusambandsins að aðstæðum í hverju landi en það getur skipt máli við útfærslur hér á landi.

Evrópuskrifstofa atvinnulífsins
Evrópuskrifstofa atvinnulífsins í Brussel er rekin af Samtökum atvinnulífsins. Hlutverk skrifstofunnar er fyrst og fremst erindrekstur gagnvart Evrópusamtökum atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE), Evrópusambandinu (ESB) og stofnunum Evrópska efnahagssvæðisins (EES), Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA) og íslensku sendinefndinni í Brussel. Utan þessa sinnir skrifstofan upplýsingaöflun um Evrópumál fyrir samtök og fyrirtæki á Íslandi.
 Sjá nánar

 

Aðildin að BUSINESSEUROPE
Aðild íslenskra atvinnurekenda að evrópskum heildarsamtökum opnar þeim glugga inn í Evrópusambandið auk þess að vera farvegur fyrir samráð og upplýsingar um hagsmunamál fyrirtækja á Evrópuvettvangi. BUSINESSEUROPE kemur fram fyrir hönd aðildarsamtakanna gagnvart framkvæmdastjórn ESB og er talsmaður þeirra gagnvart stofnunum sambandsins. Skrifstofa SA í Brussel er til húsa í húsakynnum BUSINESSEUROPE, líkt og Evrópuskrifstofur samtaka atvinnulífsins í Danmörku, Noregi og fleiri Evrópulöndum.
 Sjá nánar

 

Alþjóðavinnumálastofnunin, ILO
SA taka virkan þátt í starfi Alþjóðavinnumálastofnuninnar (ILO) sem er ein stofnana Sameinuðu þjóðanna. Í júní ár hvert senda SA fulltrúa á Alþjóðavinnumálaþing ILO sem haldið er í höfuðstöðum stofnunarinnar í Genf, Sviss. 


Ráðgjafarnefnd EFTA
Nefndin, sem skipuð er fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, vinnur annars vegar að gerð sameiginlegra álitsgerða nefndarinnar og ráðgjafarnefndar Evrópusambandsins og hins vegar að sjálfstæðum álitsgerðum sem kynntar eru fyrir fastanefnd EFTA í Brussel og ráðherrum EFTA-ríkjanna. Þeir málaflokkar sem nefndin hefur m.a. tekið fyrir er innri markaðurinn, áhrif stækkunar Evrópusambandsins á EFTA ríkin, Lissabon áætlunin um bætta samkeppnishæfni ESB og fríverslunarsamningar EFTA við svokölluð þriðju ríki, þ.e. ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Norðurlandasamstarf SA
SA eiga í margvíslegu samstarfi við sambærileg hagsmunasamtök á Norðurlöndunum. Þannig hafa norrænu vinnuveitendasamtökin með sér samvinnu um málefni Norðurlandaráðs. Fundur fastanefndar norrænu vinnuveitendasambandanna sem í eru forystumenn samtakanna, er haldinn árlega. Þá hafa sérfræðingar á viðkomandi fagsviðum vinnuveitendasamtakanna mikið samráð og vinna saman að ólíkum málefnum. Hagfræðingar, umhverfissérfræðingar, vinnuverndarsérfræðingar og lögfræðingar norrænu vinnuveitendasambandanna funda árlega.

Frá árinu 1988 hafa SA átt aðild að gagnkvæmu vátryggingarfélagi norrænu vinnuveitendasambandanna, NEMIA, Nordic Employers Mutual Insurance Association. Hlutverk félagsins er að endurtryggja tjónsáhættu vinnudeilusjóða samtakanna vegna bótagreiðslna í tengslum við vinnustöðvanir. Félagið er lokað og aðild hafa einungis hin fimm norrænu sambönd vinnuveitenda. Félagið starfar í Lúxemborg og hefur eflst mikið frá stofnun þess árið 1986.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english