Beint á leiðarkerfi vefsins

Fjölbreytt málefnastarf SA

Innan Samtaka atvinnulífsins fer fram margvíslegt málefnastarf, bæði með formlegum og óformlegum hætti.

Málefnastarf SA - vilt þú taka þátt?
Málefnastarf SA er opið öllum aðildarfélögum og aðildarfyrirtækjum.  Með því að skrá sig í málefnahóp er hægt að fylgjast með starfi hópsins og fá upplýsingar um fundi í tölvupósti. Hóparnir eru tíu. Sjá nánar um hópana og skráningu.

Áherslur atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram áherslur sínar í tólf málaflokkum sem varða starfsskilyrði íslenskra fyrirtækja. Um er að ræða niðurstöður víðtæks og kraftmikils málefnastarfs þar sem fjöldi fólks frá aðildarfélögum samtakanna, einstökum fyrirtækjum og fleiri aðilum lögðu drög að stefnu Samtaka atvinnulífsins, sem fjallað hefur verið um og afgreidd í stjórn samtakanna. Samtök atvinnulífsins vilja með þessu móti leggja sitt af mörkum til þess að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði, landsmönnum öllum til hagsbóta.

 

Önnur útgáfa SA
Samtök atvinnulífsins fjalla reglulega um starfsskilyrði íslenskra fyrirtækja og
vinna skýrslur sem fjalla um hagsmunamál þeirra ásamt því að leggja fram tillögur til úrbóta. Þá vinna SA skýrslur sem fjalla um hagsmuni íslensks þjóðfélags í heild og samkeppnisstöðu lands og þjóðar. Skýrslurnar er að finna á útgáfusíðu SA, ásamt ársskýrslum SA og upplýsingum um annað útgefið efni, s.s. kjarasamninga.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english