Beint á leiðarkerfi vefsins

Þjónusta Samtaka atvinnulífsins

SA kappkosta að veita aðildarfyrirtækjum góða þjónustu og að vera öflugur málsvari atvinnulífsins. Lögfræðingar á vinnumarkaðssviði SA sinna þjónustu við félagsmenn SA á sviði kjara- og starfsmannamála.

Hlutverk vinnumarkaðssviðs SA er m.a. að:

  • veita fyrirtækjum sérfræðiþjónustu í vinnumarkaðs- og vinnuréttarmálum

  • vera í fyrirsvari fyrir fyrirtækin í vinnudeilum og ágreiningsmálum gagnvart stéttarfélögum

  • gæta hagsmuna atvinnulífsins með markvissri fræðslu  og þátttöku í mótun og framkvæmd laga og reglna og í þjóðfélagsumræðunni almennt.

Lögfræðingar SA:

  • aðstoða aðildarfyrirtækin við túlkun samninga og laga

  • veita fyrirtækjum ráðgjöf og aðstoða við samningsgerð við starfsmenn, s.s. við gerð ráðningarsamninga og fyrirtækjasamninga

  • aðstoða fyrirtækin í samskiptum við stéttarfélög og lögmenn

  • annast málflutning fyrir héraðsdómi fyrir hönd aðildarfyrirtækja í fordæmisgefandi málum

  • flytja mál fyrir Félagsdómi fyrir hönd samtakanna vegna aðildarfyrirtækja

  • eru í samskiptum við stjórnvöld í málum sem snerta hagsmuni atvinnulífsins

  • annast upplýsingagjöf og fræðslu

  • byggja upp og viðhalda Vinnumarkaðsvef SA sem eingöngu er opinn félagsmönnum SA

Auk kjara- og starfsmannamála veita SA félagsmönnum ýmsa aðra þjónustu, t.d. á sviðum efnahags-, Evrópu-, umhverfis- og vinnuverndarmála. Sjá nánar um kosti aðildar að SA

 

Samtök atvinnulífsins starfrækja réttarverndarsjóð sem hefur það hlutverk að standa straum af kostnaði vegna málareksturs og annarrar réttarvörslu í málum sem snerta hagsmuni atvinnulífsins eða margra félagsmanna. Sjá nánar XV. kafla samþykkta SA.



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english