Beint á leiðarkerfi vefsins

Launabreytingar 2009 og 2010

 

  • Kauptaxtar verkafólks og afgreiðslufólks hækka 1. júlí um kr. 6.750
  • Kauptaxtar iðnaðarmanna og skrifstofufólks hækka 1. júlí um kr. 8.750
  • Laun sem eru hærri en nýju kauptaxtarnir hækka ekki
  • Kauptaxtar hækka um sömu krónutölu 1. nóvember 2009
  • Launaþróunartrygging frestast til 1. nóvember 2009
  • Launahækkun 1. janúar 2010 frestast til 1. júní 2010 
Með samkomulagi SA og ASÍ um framlengingu kjarasamninga þann 25. júní 2009 var launabreytingum frestað. Einungis kauptaxtar kjarasamninga hækka 1. júlí, um kr. 6.750 hjá verkafólki og afgreiðslufólki en kr. 8.750 hjá iðnaðarmönnum og skrifstofufólki. Nýju kauptaxtana má finna í nýrri kaupgjaldsskrá SA. Laun sem eru hærri en nýju kauptaxtarnir hækka ekki. 

 

Helmingur hækkana á reiknitölu ákvæðisvinnu og kostnaðarliðum kemur nú til framkvæmda. Ákvæðisvinna við ræstingar hækkar þannig 1. júlí um 3,25%.  Reiknitölur í fiskvinnslu og slátrun hækka ekki.

  

Launaþróunartryggingu er frestað til 1. nóvember nk. og tekið er upp nýtt viðmiðunartímabil. Frá 3,5% grunnhækkun launa dragast allar hækkanir á launum frá 1. janúar 2009 til 1. nóvember 2009, þ.m.t. vegna hækkunar kauptaxtans. Starfsmenn sem hefja störf á árinu 2009 eiga rétt að 3,5% hækkun launa 1. nóvember nk. nema um annað hafi verið samið við ráðningu. Í þeim tilvikum er mikilvægt að taka fram í skriflegum ráðningarsamningi ef launabreyting 1. nóvember skal vera innifalin í umsömdum launakjörum.

 

Kjarasamningar einstakra fyrirtækja kunna að kveða á um annað fyrirkomulag launabreytingar 1. mars 2009 og þarf þá að skoða sérstaklega í samvinnu við SA hvort þær breytingar frestast alfarið til 1. nóvember eða koma til framkvæmda að hluta 1. júlí.

 

SA hafa þegar fengið margar fyrirspurnir um framkvæmd þessa ákvæðis en fyrirtækin hafa mörg hver ekki bolmagn til launahækkana. Fyrirtækin hafa ekki hækkað laun á þessu ári og því kemur 3,5% launahækkun að fullu til framkvæmda nema um annað sé samið við starfsmenn. Telji fyrirtæki sér ekki fært að hækka laun 1. nóvember verður það annað hvort að leita eftir samkomulagi við starfsmenn um hvaða kjör skulu gilda frá og með 1. nóvember eða segja ráðningarkjörum upp með samningsbundnum uppsagnarfresti. Lögmenn SA hafa aðstoðað aðildarfyrirtækin við úrlausn þessara erfiðu mála.

 

Öllum launabreytingum sem ráðgerðar voru 1. janúar 2010 er frestað til 1. júní sama ár. Hækkanir frá og með 1. nóvember 2009 eru þó háðar því að kjarasamningar verði framlengdir í október nk. en þá meta aðilar hvort markmið stöðuleikasáttmálans hafi gengið eftir.

 



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english