Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

28.2.2012

Vinnandi vegur - kynningafundur fyrir fyrirtæki 1. mars

Í síðustu viku hófst verkefnið Vinnandi vegur sem er nýtt átak til atvinnusköpunar og miðar að því að fjölga störfum og minnka atvinnuleysi. Sérstök áhersla er á að skapa langtímaatvinnulausum vinnu og stendur fyrirtækjum til boða markverður fjárhagslegur stuðningur í því samhengi.

 

Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, SVÞ - Samtök verslunar- og þjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök fiskvinnslustöðva boða til fundar fimmtudaginn 1. mars kl. 08:30-10:00 þar sem kynna á verkefnið sérstaklega og hvernig það horfir við fyrirtækjum sem vilja nýta sér þessi úrræði. Fundurinn er sérstaklega ætlaður þeim sem sinna starfsmannamálum.

21.2.2012

Hagdeild SA: Fjárfestingarstefna lífeyrissjóða, áhættustýring og eftirlit

Árið 2008 var raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða sú sama og að meðaltali í OECD. Meginástæða neikvæðrar ávöxtunar lífeyrissjóða í heiminum var verðfall hlutabréfa en þau lækkuðu um 50% að meðaltali það ár. Verðlækkun hlutabréfa var hvergi meira en á Íslandi þar sem hlutabréfavísitalan lækkaði um 90%. Fjárfestingarstefna íslensku lífeyrissjóðanna á Íslandi á árunum fyrir efnahagskreppuna var svipuð og hjá lífeyrissjóðum í öðrum ríkjum.

14.2.2012

Einn lífeyrissjóður vond hugmynd

Það er afspyrnu vond hugmynd að sameina alla lífeyrissjóði landsins í einn. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við fréttastofu RÚV. Það megi hinsvegar fækka sjóðunum og styrkja þá. Nauðsynlegt sé að samræma lífeyrisréttindi landsmanna án þess að steypa öllum sjóðunum saman.

13.2.2012

Auka þarf hvata í lífeyriskerfinu

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA og stjórnarformaður lífeyrissjóðsins Gildis, ræddi um lífeyrismál á Sprengisandi á Bylgjunni sunnudaginn 12. febrúar. Þar sagði hann m.a. að auka þurfi hvata í lífeyriskerfinu þannig að ávinningur fólks af því að greiða í lífeyrissjóðina verði meiri en nú er samanborið við greiðslur úr almannatryggingakerfinu. Vilhjálmur sagði lífeyrissjóðina í raun hafa staðið af sér hrun fjármálakerfisins á Íslandi. Ný skýrsla um starfsemi sjóðanna staðfesti það. En á sama tíma er bent á ákveðna þætti sem betur mega fara í starfsemi sjóðanna og taka verður alvarlega.

10.2.2012

Aðild atvinnulífsins að stjórnum lífeyrissjóða styrkir þá

Samtök atvinnulífsins telja að aðild þeirra að stjórnum lífeyrissjóða hafi verið til góðs fyrir uppbyggingu lífeyrissjóðanna og skipt sköpum við að efla þá til þess að gegna hlutverki sínu. Almennt séð er íslenska lífeyrissjóðakerfið talið eitt það besta í alþjóðlegum samanburði og eitt af því sem Ísland getur státað sig af í samfélagi þjóðanna. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í nýju fréttabréfi SA samtökin leggja ofurkapp á að fulltrúar þeirra í stjórnum sjóðanna gæti almennra hagsmuna sjóðanna sjálfra og vinni af fullum heilindum fyrir þá sem njóta lífeyrisréttinda og allt samfélagið.

10.2.2012

Aukin þjónusta við atvinnuleitendur

Í dag var undirritað samkomulag milli Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands Íslands velferðarráðuneytisins og Vinnumálastofnunar, um aukna þjónustu við atvinnuleitendur. Markmið verkefnisins er efla vinnumiðlun og stuðla að virkari vinnumarkaðsaðgerðum sem auki líkur á að atvinnuleitendur fái störf að nýju á vinnumarkaði. Um er að ræða viðbót við núverandi þjónustu á sviði vinnumiðlunar og ráðgjafar.

8.2.2012

Dönsk fjármálafyrirtæki gera kjarasamning til tveggja ára með 2% hækkun

Í dag, 8. febrúar, undirrituðu samtök fjármálafyrirtækja í Danmörku og stéttarfélag starfsmanna þeirra, kjarasamning sem gildir í tvö ár frá 1. apríl 2012. Laun hækka almennt um 1% þann 1. júlí 2012 og aftur um 1% þann 1. júlí 2013.
RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english