Beint á leiđarkerfi vefsins

Vinnumarkađsmál

22.5.2012

Atvinnuleysiđ er ţjóđinni dýrkeypt

Samtök atvinnulífsins hafa barist ötullega fyrir því á undanförnum misserum að atvinnulífinu verði sköpuð hagstæð rekstrarskilyrði svo fyrirtækin í landinu geti sótt fram, ráðið til sín fólk og þar með minnkað atvinnuleysið sem er þjóðinni dýrkeypt. Í úttekt Morgunblaðsins í dag kemur fram að greiddar atvinnuleysisbætur frá hruni stefni í 100 milljarða króna en Samtök atvinnulífsins telja kostnaðinn enn meiri fyrir samfélagið.

19.5.2012

Rćtt um framtíđ lífeyrismála á Íslandi á mánudaginn

Mánudaginn 21. maí verður efnt til ráðstefnu um framtíð lífeyrismála á Íslandi. Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel Reykjavík kl. 13-16, allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Samtök atvinnulífsins, Öldrunarráð Íslands, Landssamtök lífeyrissjóða og Alþýðusamband Íslands standa að ráðstefnunni.

10.5.2012

Orlofsuppbót 2012

Samkvæmt almennum kjarasamningum SA greiðist orlofsuppbót þann 1. júní ár hvert. Full orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2012 er kr. 27.800 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 21.000. Við útreikning orlofsuppbótar er litið til starfstíma og starfshlutfalls á síðasta orlofsári, þ.e. frá 1. maí 2011 til 30. apríl 2012, og telst fullt ársstarf í þessu sambandi 45 vikur eða meira fyrir utan orlof. Ekki er greitt orlof af orlofsuppbót.

17.4.2012

Atvinnulífiđ vantar verk- og tćknimenntađ starfsfólk

Fjölga þarf útskrifuðu fólki úr verkfræði, tækni- og raunvísindanámi á Íslandi. Mikil tækifæri felast í þeim hluta atvinnulífsins sem er kallaður hátæknigeirinn, en nú þegar er æpandi eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki sem hefur aflað sér raungreina- og tæknimenntunar á háskólastigi. Hér er m.a. um að ræða fyrirtæki sem tengjast tölvu- og hugbúnaðargeiranum, heilbrigðistækni, lífvísindum, umhverfistækni og upplýsingatækni. Takist skólakerfinu ekki að svara þessari eftirspurn er hætta á að fyrirtækin muni enn frekar en nú byggjast upp að mestu erlendis en Ísland stendur aftarlega í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að tæknimenntun fólks á aldrinum 25-35 ára.

16.4.2012

Nemendur útskrifist úr framhaldsskóla tveimur árum fyrr

Samtök atvinnulífsins leggja til að nemendur útskrifist úr framhaldsskóla tveimur árum fyrr en nú með því að stytta grunn- og framhaldsskólann. Það verði þó gert án þess draga úr þeim kröfum sem liggja til grundvallar náminu. Tækifæri til þessara breytinga eru fyrir hendi í nýlegum framhaldsskólalögum en tengja verður nám í grunn- og framhaldsskólum þannig að námslok gætu orðið við 18 ára aldur. Jafnframt verður að breyta menntakerfinu þannig að það svari betur eftirspurn atvinnulífsins eftir starfsfólki. Börn og unglingar þurfa að fá innsýn í miklu fjölbreyttari störf en nú er.

24.3.2012

SA stefna Flugfreyjufélagi Íslands fyrir Félagsdóm

Samtök atvinnulífsins hafa fyrir hönd Iceland Express stefnt Flugfreyjufélagi Íslands fyrir Félagsdóm vegna ólögmætrar verkfallsboðunar af hálfu félagsins. Er gert ráð fyrir að niðurstaða Félagsdóms liggi fyrir eftir helgi og því verði engin röskun á starfsemi félagsins.

12.3.2012

Samtök atvinnulífsins fjölga konum í stjórnum lífeyrissjóđa

Samtök atvinnulífsins hafa tilnefnt 14 stjórnarmenn til setu í stjórnum átta lífeyrissjóða til næstu tveggja ára. Af þeim eru 10 konur eða rúmlega 71%. Samtök atvinnulífsins hafa á undanförnum árum unnið markvisst að því að jafna kynjahlutföll í stjórnum þeirra lífeyrissjóða sem SA tilnefna stjórnarmenn í og munu konur því skipa 44% sæta SA að loknum aðalfundum sjóðanna í vor. Aðeins vantar 1-2 konur í viðbót til að alveg jafnt kynjahlutfall náist meðal 25 fulltrúa Samtaka atvinnulífsins í stjórnum sjóðanna. Það mun nást á næsta ári þegar 10 sæti koma til tilnefningar og lokaskrefið verður stigið til að jafna hlut kynjanna. Þá verða konur 12 eða 13 af 25 stjórnarmönnum SA, þ.e. annað hvort 48% eða 52%.

8.3.2012

Um forsendur kjarasamninga

„Samtök atvinnulífsins munu tæplega telja það atvinnulífinu eða nokkrum öðrum í hag að slíta kjarasamningum í upphafi næsta árs í aðdraganda kosninga til Alþingis. Sú atburðarás sem þá gæti hafist er með öllu ófyrirsjáanleg," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA í leiðara nýs fréttabréfs SA þar sem hann fjallar um forsendur kjarasamninganna frá í maí 2011.

8.3.2012

Samtök atvinnulífsins á atvinnumessu í dag

Samtök atvinnulífsins taka þátt í atvinnumessunni sem nú stendur yfir í Laugardalshöll. Um er að ræða sameiginlegt framtak atvinnulífsins, stéttarfélaga og stjórnvalda en messan er hluti af átaksverkefninu Vinnandi vegur sem hóf göngu sína 21. febrúar. Markmið átaksins er að fjölga störfum og minnka atvinnuleysi. Sérstök áhersla er á að skapa langtímaatvinnulausum vinnu og stendur fyrirtækjum til boða markverður fjárhagslegur stuðningur í því samhengi. Stefnt er að því að bjóða allt að 1.000 ný störf á messunni.

5.3.2012

Fjölmörg ný störf í bođi á atvinnumessu 8. mars

Samtök atvinnulífsins eru meðal þátttakanda á atvinnumessu sem fram fer í Laugardalshöll, fimmtudaginn 8. mars nk. kl. 10-16. Um er að ræða sameiginlegt framtak atvinnulífsins, stéttarfélaga og stjórnvalda en messan er hluti af átaksverkefninu Vinnandi vegur sem hóf göngu sína 21. febrúar. Markmið átaksins er að fjölga störfum og minnka atvinnuleysi. Sérstök áhersla er á að skapa langtímaatvinnulausum vinnu og stendur fyrirtækjum til boða markverður fjárhagslegur stuðningur í því samhengi. Stefnt er að því að bjóða allt að 1.000 ný störf á messunni.

28.2.2012

Vinnandi vegur - kynningafundur fyrir fyrirtćki 1. mars

Í síðustu viku hófst verkefnið Vinnandi vegur sem er nýtt átak til atvinnusköpunar og miðar að því að fjölga störfum og minnka atvinnuleysi. Sérstök áhersla er á að skapa langtímaatvinnulausum vinnu og stendur fyrirtækjum til boða markverður fjárhagslegur stuðningur í því samhengi.

 

Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, SVÞ - Samtök verslunar- og þjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök fiskvinnslustöðva boða til fundar fimmtudaginn 1. mars kl. 08:30-10:00 þar sem kynna á verkefnið sérstaklega og hvernig það horfir við fyrirtækjum sem vilja nýta sér þessi úrræði. Fundurinn er sérstaklega ætlaður þeim sem sinna starfsmannamálum.

21.2.2012

Hagdeild SA: Fjárfestingarstefna lífeyrissjóđa, áhćttustýring og eftirlit

Árið 2008 var raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða sú sama og að meðaltali í OECD. Meginástæða neikvæðrar ávöxtunar lífeyrissjóða í heiminum var verðfall hlutabréfa en þau lækkuðu um 50% að meðaltali það ár. Verðlækkun hlutabréfa var hvergi meira en á Íslandi þar sem hlutabréfavísitalan lækkaði um 90%. Fjárfestingarstefna íslensku lífeyrissjóðanna á Íslandi á árunum fyrir efnahagskreppuna var svipuð og hjá lífeyrissjóðum í öðrum ríkjum.

14.2.2012

Einn lífeyrissjóđur vond hugmynd

Það er afspyrnu vond hugmynd að sameina alla lífeyrissjóði landsins í einn. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við fréttastofu RÚV. Það megi hinsvegar fækka sjóðunum og styrkja þá. Nauðsynlegt sé að samræma lífeyrisréttindi landsmanna án þess að steypa öllum sjóðunum saman.

13.2.2012

Auka ţarf hvata í lífeyriskerfinu

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA og stjórnarformaður lífeyrissjóðsins Gildis, ræddi um lífeyrismál á Sprengisandi á Bylgjunni sunnudaginn 12. febrúar. Þar sagði hann m.a. að auka þurfi hvata í lífeyriskerfinu þannig að ávinningur fólks af því að greiða í lífeyrissjóðina verði meiri en nú er samanborið við greiðslur úr almannatryggingakerfinu. Vilhjálmur sagði lífeyrissjóðina í raun hafa staðið af sér hrun fjármálakerfisins á Íslandi. Ný skýrsla um starfsemi sjóðanna staðfesti það. En á sama tíma er bent á ákveðna þætti sem betur mega fara í starfsemi sjóðanna og taka verður alvarlega.

10.2.2012

Ađild atvinnulífsins ađ stjórnum lífeyrissjóđa styrkir ţá

Samtök atvinnulífsins telja að aðild þeirra að stjórnum lífeyrissjóða hafi verið til góðs fyrir uppbyggingu lífeyrissjóðanna og skipt sköpum við að efla þá til þess að gegna hlutverki sínu. Almennt séð er íslenska lífeyrissjóðakerfið talið eitt það besta í alþjóðlegum samanburði og eitt af því sem Ísland getur státað sig af í samfélagi þjóðanna. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í nýju fréttabréfi SA samtökin leggja ofurkapp á að fulltrúar þeirra í stjórnum sjóðanna gæti almennra hagsmuna sjóðanna sjálfra og vinni af fullum heilindum fyrir þá sem njóta lífeyrisréttinda og allt samfélagið.

10.2.2012

Aukin ţjónusta viđ atvinnuleitendur

Í dag var undirritað samkomulag milli Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands Íslands velferðarráðuneytisins og Vinnumálastofnunar, um aukna þjónustu við atvinnuleitendur. Markmið verkefnisins er efla vinnumiðlun og stuðla að virkari vinnumarkaðsaðgerðum sem auki líkur á að atvinnuleitendur fái störf að nýju á vinnumarkaði. Um er að ræða viðbót við núverandi þjónustu á sviði vinnumiðlunar og ráðgjafar.

8.2.2012

Dönsk fjármálafyrirtćki gera kjarasamning til tveggja ára međ 2% hćkkun

Í dag, 8. febrúar, undirrituðu samtök fjármálafyrirtækja í Danmörku og stéttarfélag starfsmanna þeirra, kjarasamning sem gildir í tvö ár frá 1. apríl 2012. Laun hækka almennt um 1% þann 1. júlí 2012 og aftur um 1% þann 1. júlí 2013.

31.1.2012

Ný kaupgjaldsskrá er komin á vef SA

Kaupgjaldsskrá sem gildir frá 1. febrúar 2012 er komin á vef SA. Launahækkanir 1. febrúar 2012 eru samkvæmt kjarasamningum SA og aðildarsamtaka ASÍ, dags. 5. maí 2011. Helstu launabreytingar sem koma til framkvæmda eru þær að kjarasamningsbundnir kauptaxtar hækka um 11.000 kr. á mánuði og að ráðningarsamningsbundin laun og aðrir launatengdir liðir hækka almennt um 3,5%.

30.1.2012

Forvarnaráđstefna VÍS og Vinnueftirlitsins 2012

Fimmtudaginn 2. febrúar, verður árleg ráðstefna um forvarnar- og öryggismál fyrirtækja haldin á vegum VÍS og Vinnueftirlitsins. Stjórnendur fyrirtækja eru sérstaklega hvattir til að mæta. Meðal annars verður fjallað um „núllsýn í öryggismálum" sem gengur út á að öll slys sé hægt að fyrirbyggja, eigin rannsóknir á vinnuslysum, eigið eldvarnaeftirlit, öryggi í vöruflutningum, innleiðingu öryggismenningar og fyrstu skrefin í umhverfismálum. Þá verða forvarnarverðlaun veitt fyrirtækjum sem sköruðu fram úr í forvarnar- og öryggismálum árið 2011.

23.1.2012

Starfsfólki á vinnumarkađi fjölgađi ekki áriđ 2011. Full störf jafn mörg og 2009

Starfsfólk á vinnumarkaði var samtals 167.300 árið 2011 sem er sama tala og árið 2010 samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Heldur fleiri voru starfandi árið 2009, eða 167.800. Flestir urðu starfsmenn á vinnumarkaðnum árið 2008, eða 178.600, en fara þarf aftur til ársins 2005 til þess að finna færri starfsmenn, en þá töldust 161.300 vera í starfi.

20.1.2012

Yfirlýsing Samtaka atvinnulífsins vegna uppsagnarákvćđis kjarasamninga

Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa ákveðið að nýta ekki uppsagnarákvæði kjarasamninga hinn 31. janúar næstkomandi þrátt fyrir að stjórnvöld hafi ekki efnt fyrirheit sem gefin voru í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana 5. maí 2011. Sérstakt samkomulag milli samningsaðilanna var undirritað í dag sem staðfestir þessa ákvörðun.

20.1.2012

Yfirlýsing samninganefndar ađildarsamtaka ASÍ og SA vegna opnunarákvćđa kjarasamninga 20. janúar 2012

Í kjarasamningum sem undirritaðir voru af Samtökum atvinnulífsins og Alþýðusambandi Íslands og aðildarsamtökum þess 5. maí 2011 eru ákvæði um forsendur samninganna og uppsagnarmöguleika standist þær ekki. Þannig er unnt að segja upp samningum miðað við janúarlok 2012 enda hafi rökstudd ákvörðun um uppsögn verið tekin og hún tilkynnt í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 hinn 20. janúar 2012. Í samningunum segir jafnframt að standist forsendur þeirra ekki skulu samningsaðilar leita sameiginlega viðbragða.

12.1.2012

Virkjum fólk til verka - átak hefst 15. febrúar

Samtök atvinnulífsins telja mikilvægt að störfum fjölgi á vinnumarkaði og atvinnuleysi minnki. Einn þáttur í því er að koma því fólki til vinnu sem vill og getur unnið. Samtöl við stjórnendur fyrirtækja gefa til kynna að víða séu óunnin verk og þrátt fyrir djúpa kreppu undanfarinna þriggja ára sé þörf fyrir starfsfólk á tilteknum sviðum. Vegna óvissu og mikils kostnaðar veigri fyrirtæki sér hins vegar við að taka af skarið og ráða fólk. Markmið nýs átaks aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda er að tryggja 1500 atvinnuleitendum vinnu eða starfstengd úrræði, en ef fyrirtæki ráða fólk af atvinnuleysisskrá í ný verkefni, fylgja þeim fullar atvinnuleysisbætur í tiltekinnn tíma.

11.1.2012

Bréf SA til forsćtisráđherra: Stađa mála vegna opnunarákvćđa kjarasamninga

Samtök atvinnulífsins fjalla nú um stöðu mála vegna opnunarákvæða kjarasamninga frá 5. maí 2011 þar sem taka þarf ákvörðun um hvort samningarnir haldi gildi sínu í síðasta lagi 20. janúar nk. Ef samningunum verður sagt upp eru þeir lausir frá 1. febrúar. Meðal umfjöllunarefna er hvernig yfirlýsing ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana hefur gengið eftir. Í bréfi Samtaka atvinnulífsins sem sent var í dag til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, er fjallað ítarlega um framgang einstakra mála eins og þau koma fram í yfirlýsingunni og forsendur samninganna.

 

Fjölmörg áform ríkisstjórnarinnar hafa ekki náð fram að ganga. Af 36 atriðum sem talin eru upp hafa 24 ekki verið efnd, eða í tveimur þriðju tilvika, í 7 atriðum hafa mál gengið eftir eins og um var talað en í 5 atriðum eru mál enn í gangi og gæti hugsanlega lokið farsællega. Afdrifaríkast er að fjárfestingar í atvinnulífi og opinberar framkvæmdir hafa ekki aukist eins og lagt var upp með.

2.1.2012

Formađur SA: Athafnaáriđ 2012

„Í maí 2011 undirrituðu Samtök atvinnulífsins kjarasamninga við helstu viðsemjendur sína sem gilda að óbreyttu fram á árið 2014. Ef forsendur þeirra ganga eftir verður friður á vinnumarkaði tryggður í nær þrjú ár. Það var langt frá því sjálfgefið að samið yrði á þessum nótum og vissulega voru launahækkanir miklar og erfiðar mörgum fyrirtækjum. Samningarnir byggja á að hagur fólks og fyrirtækja batni með aukinni verðmætasköpun í atvinnulífinu og að atvinnuleysi minnki.

 

Laun hækkuðu mest í upphafi en í samningunum er forsenduákvæði um að kaupmáttur aukist, verðlag haldist stöðugt, gengi krónunnar styrkist marktækt og að stjórnvöld standi við fyrirheit í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum. Í janúar verða forsendur samninganna metnar en ekkert bendir til annars en að þeir standist þá skoðun og samningarnir haldi gildi. Í janúar 2013 verða forsendur metnar á ný og um niðurstöður þeirrar skoðunar ríkir meiri óvissa enda markið sett hátt á nokkrum sviðum.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english