Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

30.9.2011

Fjölga þarf störfum á íslenskum vinnumarkaði

Haustið 2008 voru um 185 þúsund manns með vinnu á íslenskum vinnumarkaði en eftir hrunið fór talan niður í um 165 þúsund. Síðan hefur fjöldi starfa verið að sveiflast milli 165 - 170 þúsund eftir árstíðum. Starfandi fólki hefur því ekki fjölgað svo heitið getur á þessum tíma. „Þetta er mjög alvarlegt en atvinnuleysistölurnar hafa verið að lækka vegna þess að fólk er að fara úr landi," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA en rætt var við hann í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þriðjudaginn 27. september.

26.9.2011

Framkvæmdastjóri ÍSTAKS: Dýrkeypt að gera ekki neitt

Kolbeinn Kolbeinsson, framkvæmdastjóri ÍSTAKS, var á meðal frummælenda á opnum fundi SA um atvinnumál sem fram fór fyrr í dag. Kolbeinn sagði tekjur fyrirtækisins hér á landi hafi dregist mikið saman undanfarin ár og það væri til marks um erfiða stöðu á innanlandsmarkaði að það hafi ekki verið fyrr en í september sem fyrsti nýi innlendi verksamningur árins hafi verið undirritaður. ÍSTAK hefur brugðist við samdrættinum með því að leita verkefna á erlendum mörkuðum en Kolbeinn segir mikilvægt að hefja uppbyggingu innanlands og snúa þróuninni við. Atvinnuleysi sé að festast í sessi sem afleiðing af „það er öruggast að gera ekki neitt" stefnunni sem sé dýrkeypt.

26.9.2011

Fundur SA um atvinnumál hefst kl. 12 í Hörpu

Samtök atvinnulífsins efna til opins umræðufundar um hvernig nýta megi sóknarfæri í atvinnulífinu,í dag mánudaginn 26. september í Hörpu - Silfurbergi á 2. hæð. Fundurinn hefst kl. 12 en yfirskrift fundarins er Ryðjum hindrunum úr vegi - atvinnulíf í uppnámi.

 

Á fundi SA mun m.a. koma fram hægt væri að bæta þjóðarhag um 46 milljarða króna á ári með því að útrýma atvinnuleysinu en um 11 þúsund manns eru án vinnu. Atvinnuleysið kostar nú atvinnulífið 20 milljarða króna á ári en frá hruni hafa verið greiddir 70-80 milljarðar króna í atvinnuleysisbætur í gegnum atvinnuleysistryggingarsjóð.

8.9.2011

Kaupmáttur bóta hefur hækkað mun meira en kaupmáttur launa síðastliðinn áratug

Undanfarinn áratug hefur kaupmáttur lágmarksbóta almannatrygginga hækkað 50% meira en kaupmáttur launa almennt. Atvinnuleysisbætur hafa hækkað 20% umfram laun. Kaupmáttur lágmarksbóta almannatrygginga var í júlí í ár næstum tveimur þriðju hlutum (65%) hærri en árið 2000. Þegar litið er aftur til ársins 1995 hefur kaupmáttur lágmarksbóta almannatrygginga tvöfaldast. Kaupmáttur atvinnuleysisbóta er þriðjungi (32%) hærri á þessu ári en árið 2000. Kaupmáttur lágmarkslauna var fjórðungi hærri (24%) en árið 2000 en kaupmáttur launa almennt um 10% hærri.
RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english