Vinnumarkađsmál
29.12.2011
Séreignarsparnađur ađ hámarki 2%
13.12.2011
Nýir kjarasamningar í Svíţjóđ
6.12.2011
Kjarasamningar í Finnlandi til tveggja ára
29.11.2011
Desemberuppbót 2011 greiđist eigi síđar en 15. desember
Samkvæmt almennum kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins greiðist desemberuppbót eigi síðar en 15. desember. Desemberuppbótin fyrir árið 2011 er kr. 48.800 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 55.400. Uppbótin greiðist fyrir fullt starf fyrir a.m.k. 45 unnar vikur hjá sama vinnuveitanda á árinu 2011, en er hlutfallsleg fyrir styttri starfstíma og minna starfshlutfall.
Auk þess greiðist sérstakt álag á desemberuppbót, kr. 15.000, að þessu sinni vegna ákvæða kjarasamninga frá 5. maí 2011.
25.10.2011
Vinnuverndarvikan 2011 stendur nú yfir
19.10.2011
Núverandi vinnumiđlun er ábótavant
1.10.2011
46.000.000.000 krónur
30.9.2011
Fjölga ţarf störfum á íslenskum vinnumarkađi
26.9.2011
Framkvćmdastjóri ÍSTAKS: Dýrkeypt ađ gera ekki neitt
Kolbeinn Kolbeinsson, framkvæmdastjóri ÍSTAKS, var á meðal frummælenda á opnum fundi SA um atvinnumál sem fram fór fyrr í dag. Kolbeinn sagði tekjur fyrirtækisins hér á landi hafi dregist mikið saman undanfarin ár og það væri til marks um erfiða stöðu á innanlandsmarkaði að það hafi ekki verið fyrr en í september sem fyrsti nýi innlendi verksamningur árins hafi verið undirritaður. ÍSTAK hefur brugðist við samdrættinum með því að leita verkefna á erlendum mörkuðum en Kolbeinn segir mikilvægt að hefja uppbyggingu innanlands og snúa þróuninni við. Atvinnuleysi sé að festast í sessi sem afleiðing af „það er öruggast að gera ekki neitt" stefnunni sem sé dýrkeypt.
26.9.2011
Fundur SA um atvinnumál hefst kl. 12 í Hörpu
Á fundi SA mun m.a. koma fram hægt væri að bæta þjóðarhag um 46 milljarða króna á ári með því að útrýma atvinnuleysinu en um 11 þúsund manns eru án vinnu. Atvinnuleysið kostar nú atvinnulífið 20 milljarða króna á ári en frá hruni hafa verið greiddir 70-80 milljarðar króna í atvinnuleysisbætur í gegnum atvinnuleysistryggingarsjóð.
8.9.2011
Kaupmáttur bóta hefur hćkkađ mun meira en kaupmáttur launa síđastliđinn áratug
30.8.2011
Styrkir til vinnustađanáms
11.8.2011
Lögfesting á greiđsluskyldu launagreiđenda til VIRK - Starfsendurhćfingarsjóđs frá og međ september 2011
23.6.2011
Innanríkisráđherra á móti eigin yfirlýsingu
21.6.2011
Samtök atvinnulífsins sýna ábyrgđ og stađfesta kjarasamninga ţrátt fyrir vanefndir ríkisstjórnar Íslands
SA telja að atvinnuleiðin sé eina færa leiðin fyrir þjóðina út úr kreppunni og stöðugleika á vinnumarkaði nauðsynlegan til þess að hægt sé að bæta lífskjör og minnka atvinnuleysi.
Ríkisstjórnin hefur ekki lagt fram fjárfestingar- og hagvaxtaráætlun, sem liggja átti fyrir í lok maí, en fjárfestingar eru lykilforsenda þess að hér náist 4-5% hagvöxtur á árunum 2012 og 2013.
Sérfræðinefnd ríkisstjórnarinnar gaf stefnu hennar í sjávarútvegsmálum falleinkunn og sama hefur OECD gert. SA krefjast þess að ríkisstjórnin standi við eigin yfirlýsingar um raunverulega sátt um hagkvæman sjávarútveg.
Samtök atvinnulífsins vinna að því að tryggja hag alls atvinnulífsins og þjóðarinnar. Tækju samningarnir ekki gildi 22. júní hefði það mikla röskun og óvissu í för með sér. Samtök atvinnulífsins telja slíka ákvörðun ekki réttlætanlega þrátt fyrir vanefndir ríkisstjórnarinnar.
Atvinnuleiðin og hagvöxtur eru forsendur þess að atvinnulífið rísi undir kjarasamningunum og að unnt verði að auka kaupmátt fólks á næstu árum.
20.6.2011
Leggur ţú ţitt af mörkum?
Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Ríkisskattstjóri skrifuðu undir samkomulag þann 14. júní um sérstakt tímabundið átak til að hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að standa rétt að samningum sín í milli. Samkomulagið byggir á yfirlýsingu sem gerð var samhliða undirritun kjarasamninga 5. maí sl. Átakið er undir yfirskriftinni Leggur þú þitt af mörkum? Athyglinni verður beint sérstaklega að litlum og meðalstórum fyrirtækjum og áhersla lögð á að svört atvinnustarfsemi, undanskot á launatengdum gjöldum og brot á kjarasamningum séu skaðleg fyrir alla hlutaðeigandi og samfélagið í heild sinni.
13.6.2011
Virkur vinnustađur - ţróunarverkefni í samstarfi viđ fyrirtćki og stofnanir
1.6.2011
Ný kaupgjaldsskrá er komin á vef SA
30.5.2011
14.101 án vinnu í lok apríl
27.5.2011
Álag á orlofsuppbót ekki til greiđslu um mánađamótin
Kjarasamningar sem SA skrifuðu undir við ASÍ og flest landssambönd þess þann 5. maí sl. hafa nú verið samþykktir af samningsaðilum. Launafólk sem samningarnir ná til fá því sérstaka eingreiðslu kr. 50.000 um mánaðamótin. Eingreiðslan miðast við fullt starf á tímabilinu 1. mars til 31. maí og er hugsuð sem uppbót fyrir þá frestun sem varð á gildistöku nýrra kjarasamninga. Á vinnumarkaðsvef SA geta aðildarfyrirtæki SA nálgast ítarlegar upplýsingar um launaútreikninga vegna eingreiðslunnar.
Rétt er að taka fram að ekki kemur í ljós fyrr en 22. júní hvort 10 þúsund króna álag verður greitt á orlofsuppbót 2011 en það ræðst af því hvort forsendur fyrir þriggja ára samningi halda eða ekki.
19.5.2011
Íslendingar fari atvinnuleiđina út úr kreppunni
Hagsmunir allra Íslendinga eru miklir af því að fara atvinnuleiðina út úr kreppunni en margt þarf að ganga upp til þess að það gerist. Kjarasamningarnir sem slíkir með fyrirsjáanleika á vinnumarkaði fram á árið 2014 eru mikilvægt framlag til atvinnuleiðarinnar og vegferðarinnar út úr kreppunni. Kjarasamningarnir setja vissulega byrðar á atvinnulífið en atvinnuleiðin er fær og í raun eina skynsamlega leiðin fyrir land og þjóð. Því hljóta allir sem ábyrgð hafa að þurfa að leggja sig fram um að tryggja að atvinnuleiðin verði farin. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna sem kemur út í dag.
19.5.2011
50.000 kr. eingreiđsla til launafólks
Verði nýir kjarasamningar samþykktir fær launafólk sem samningarnir ná til sérstaka eingreiðslu kr. 50.000. Eingreiðslan miðast við fullt starf á tímabilinu 1. mars til 31. maí og er hugsuð sem uppbót fyrir þá frestun sem varð á gildistöku nýrra kjarasamninga. Á vinnumarkaðsvef SA geta aðildarfyrirtæki SA nálgast ítarlegar upplýsingar um eingreiðsluna vegna launaútreikninga.
19.5.2011
Sýnum fjölbreytni í forystu
Alþjóðaráðstefna Félags kvenna í atvinnurekstri, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands fór fram á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 13. maí. Ráðstefnan var liður í verkefni sem hófst með samstarfssamningi árið 2009 milli SA, Viðskiptaráðs, FKA, Creditinfo og fulltrúa allra stjórnmálaflokka um að auka hlutdeild kvenna í viðskiptalífinu. Fram kom á ráðstefnunni að konur eru enn í miklum minnihluta stjórnarmanna, þó stærstu fyrirtækin hafi aukið hlut þeirra síðustu árin.
18.5.2011
Um forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkađi
Samtök atvinnulífsins vilja í ljósi umræðu í fjölmiðlum um nýja kjarasamninga á almennum vinnumarkaði taka fram að SA geta ekki rift samningunum einhliða fyrir 22. júní næstkomandi. Samtök atvinnulífsins skrifuðu undir kjarasamninga til þriggja ára við ASÍ og flest aðildarsamtök þess þann 5. maí. Margir fyrirvarar eru í samningunum sem verður að uppfylla til að þeir haldi til þriggja ára.
Gerður var sérstakur aðfararsamningur sem framlengdi alla kjarasamninga aðila til 22. júní. Til þess tíma hefur ríkisstjórn Íslands frest til að efna tiltekin mál í samræmi við yfirlýsingu sem gefin var út í tengslum við samningana. Forsendur þess að samningar haldi til þriggja ára eru að stjórnvöld standi við gefin fyrirheit í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum.
18.5.2011
SA gera kjarasamning viđ Verkstjórasamband Íslands
Samtök atvinnulífsins og Verkstjórasamband Íslands (VSSÍ) hafa skrifað undir nýjan kjarasamning. Um er að ræða sambærilegan samning og SA gerðu við ASÍ og aðildarsambönd þess þann 5. maí sl.
17.5.2011
Ríkisstjórnin standi viđ gefin fyrirheit í sjávarútvegsmálum
16.5.2011
SA gera kjarasamning viđ SSF
Samtök atvinnulífsins og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) skrifuðu í morgun undir nýjan kjarasamning. Um er að ræða sambærilegan samning og SA gerðu við ASÍ og aðildarsambönd þess þann 5. maí sl.
14.5.2011
SA semja viđ Verkalýđsfélag Akraness
Samtök atvinnulífsins skrifuðu undir kjarasamning við Verkalýðsfélag Akraness föstudaginn 13. maí hjá ríkissáttasemjara. Samningurinn tekur sömu breytingum og um var samið 5. maí við Starfsgreinasamband Íslands.
12.5.2011
SA semja viđ Framsýn og Verkalýđsfélag Ţórshafnar
Samtök atvinnulífsins skrifuðu undir kjarasamning við Framsýn og Verkalýðsfélag Þórshafnar síðdegis á þriðjudag hjá ríkissáttasemjara. Samningar félaganna taka sömu breytingum og um var samið 5. maí við Starfsgreinasamband Íslands.
6.5.2011
Formađur SA: Hlutverk ríkisstjórnarinnar ađ koma hagkerfinu af stađ
5.5.2011
Skrifađ undir kjarasamninga til ţriggja ára: Blásiđ til sóknar í atvinnumálum
Samtök atvinnulífsins hafa skrifað undir nýja kjarasamninga á almennum vinnumarkaði til þriggja ára við Alþýðusamband Íslands og landssambönd þess. Samningarnir fela í sér umtalsverðar launahækkanir, mun meiri en í samkeppnislöndum Íslands. Laun hækka mest á fyrsta ári samninganna en þeir byggja á þeirri sýn að hagur fólks og fyrirtækja batni með aukinni verðmætasköpun í atvinnulífinu og atvinnuleysi minnki. Án uppsveiflu í atvinnulífinu eru samningarnir hins vegar ávísun á verðbólgu og aukið atvinnuleysi. Aðildarfyrirtæki SA munu kjósa um gildistöku samninganna í rafrænni atkvæðagreiðslu.
5.5.2011
Virkjum karla og konur til athafna 13. maí
3.5.2011
Aftur sest ađ samningaborđinu
28.4.2011
Atvinnuleysiđ minnkar ef atvinnuleiđin verđur farin
28.4.2011
Reynt til ţrautar ađ gera kjarasamninga til ţriggja ára
Í samtali við fréttastofu RÚV segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, að þeir kjarasamningur sem liggi fyrir í drögum séu mjög dýrir fyrir atvinnulífið. Það sé á mörkunum að fyrirtækin geti staðið við svona miklar launahækkanir nema útlit sé fyrir aukin umsvif og vöxt í efnahagslífinu þannig að Ísland komist út úr kreppunni. Vilmundur segir í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að reynt verði til þrautar að gera kjarasamninga til þriggja ára áður en skammtímasamningar verði skoðaðir.
26.4.2011
Yfirlýsing framkvćmdastjórnar Samtaka atvinnulífsins
26.4.2011
Samtök atvinnulífsins skipa sjálf eigin nefndir
„Atvinnurekendur hafa aldrei gert athugasemdir við hverjir skipi samninganefndir stéttarfélaga. Ég vænti því að fulltrúar launamanna séu ekki með slíka íhlutun í okkar mál," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið í dag. Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands krafðist þess í fréttum RÚV í gærkvöldi að fulltrúar LÍÚ vikju frá samningaborði aðila vinnumarkaðarins.
26.4.2011
Ekki forsendur fyrir eins árs kjarasamningi
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, útilokar að gengið verði að tilboði Starfsgreinasambandsins um kjarasamning til eins árs og hækkun lágmarkslauna í tvö hundruð þúsund krónur. Vilhjálmur segir að ekki sé hægt að taka tölur úr þriggja ára samningum sem rætt hefur verið um að gera og setja í samning til eins árs án þess að atvinnuleiðin verði farin. Til þess að geta réttlætt þessar launahækkanir verði að tryggja meiri fjárfestingar og hagvöxt en spár gera ráð fyrir.
20.4.2011
Atvinnuleiđin er besti kosturinn
„Skammtímasamningur strandar á því að SA vilja að í honum felist að aðilar vinni áfram saman að atvinnuleiðinni meðan Alþýðusambandið vill að með honum sé ákveðið að hefja nýjar deilur og setja framhaldið á vinnumarkaðnum í enn meiri óvissu. Merkilegt er að hvorki í viðræðum um atvinnuleiðina né um skammtímasamkomulag strandaði svo teljandi væri á launatölum."
20.4.2011
Arđbćrar vegaframkvćmdir eru nauđsynlegar
20.4.2011
Kjarasamningur viđ verk- og tćknifrćđinga samţykktur
Kjarasamningur SA við stéttarfélög verk-, tækni-, bygginga- og tölvunarfræðinga var samþykktur í atkvæðagreiðslu meðal aðildarfyrirtækja SA. Samningurinn gildir frá 1. apríl og nær hann til félagsmanna í SV, KTFÍ, SFB og ST sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum SA.
19.4.2011
Nýr kjarasamningur SA og verkalýđsfélaganna vegna Elkem
19.4.2011
Atvinnulífiđ fjárfestir til ađ minnka atvinnuleysi
19.4.2011
Best fyrir ţjóđina ađ fara atvinnuleiđina
19.4.2011
Reyndir stjórnmálamenn leggi grunn ađ sátt um stjórn fiskveiđa
17.4.2011
Vonast til ađ kjaraviđrćđur hefjist á ný eftir páska
16.4.2011
Yfirlýsing SA: Vilja stríđ ţegar friđur er í bođi
16.4.2011
ASÍ hafnar 100 ţúsund krónum til launţega
Í dag varð ljóst að ekki tækist að gera kjarasamning til langs tíma á almennum vinnumarkaði. SA buðu því ASÍ að gera kjarasamning til skemmri tíma sem fylgdi 50 þúsund króna eingreiðsla til launþega í byrjun maí með möguleika á þremur 16.700 króna greiðslum til viðbótar í lok júní, júlí og ágúst, samtals kr. 50 þúsund.
SA lögðu fram tillögu til umræðu um sameiginlegan rökstuðning fyrir skammtímasamningi og buðu jafnframt að ASÍ legðu fram eigin tillögu ef ekki væri falllist á tillögu SA. Því var hafnað og hurfu fulltrúar ASÍ af vettvangi úr Karphúsinu rétt fyrir miðnætti.
15.4.2011
Sáttatillaga SA í sjávarútvegsmálum felur í sér viđamiklar breytingar
Sáttatillögur SA má nú lesa á vef SA ásamt tillögum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur en það er mat samtakanna að ekki sé hægt að skilja sjávarútveginn eftir í óvissu um framtíðina. Á Íslandi er rekinn öflugur, sjálfbær og arðbær sjávarútvegur og mikilvægt að tryggja að svo verði áfram þannig að atvinnugreinin geti áfram lagt sem mest til samfélagsins.
14.4.2011
Kjarasamningar í höndum ríkisstjórnarinnar
13.4.2011
Kemur ríkisstjórnin Íslandi í gang?
Það besta sem gæti komið fyrir Ísland væri að gerðir yrðu kjarasamningar til þriggja ára og ríkisstjórnin tæki alvöru ákvarðanir um að setja Ísland í gang. Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttastofu RÚV í gærkvöld. Ljóst er að senn dregur til tíðinda í yfirstandandi kjaraviðræðum en samninganefndir SA og ASÍ hittast hjá ríkissáttasemjara í dag. Þar mun ráðast hvort hægt verði að gera kjarasamninga til þriggja ára en bæði SA og ASÍ hafa hafa lýst því yfir að aðkoma ríkisins að slíkum samningum sé nauðsynleg.
12.4.2011
Atvinnuleiđin út úr kreppunni er enn fćr
4.4.2011
Berjast fyrir ţví ađ atvinnuleiđin verđi farin
3.4.2011
Kjaraviđrćđur halda áfram
29.3.2011
Ţolinmćđi ađila vinnumarkađarins á ţrotum - fundur međ ríkisstjórn á morgun
Kjaraviðræður á almennum vinnumarkaði eru nú í biðstöðu. Samtök atvinnulífsins greindu ríkisstjórn Íslands frá því í gærkvöld að ekki yrði hafin lokaatlaga að því að ljúka kjarasamningum í vikunni eins og til stóð þar sem svo mörg stór mál standi út af í viðræðum við ríkisstjórnina að slíkt væri ekki mögulegt. Þolinmæði aðila vinnumarkaðarins er nú á þrotum og kalla bæði SA og ASÍ eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar. SA og ASÍ funda með ríkisstjórninni á morgun til að meta næstu skref.
16.3.2011
Skattar hćkka og niđurskurđur eykst án uppsveiflu í atvinnulífinu
15.3.2011
Spjótin standa á ríkisstjórninni
Kjaraviðræðurnar mjakast nú áfram og eru stjórnvöld smám saman að koma að viðræðum um einstök mál og aðgerðir, sem aðilar vinnumarkaðarins telja nauðsynlegar til að greiða fyrir gerð kjarasamninga. Þetta kemur fram í fréttaskýringu Morgunblaðsins í dag. Nú er liðinn hálfur fjórði mánuður frá því kjarasamningar losnuðu á almenna vinnumarkaðnum, og tveir mánuðir frá því SA og ASÍ lögðu fram sín áherslumál gagnvart ríkisstjórninni. Ljóst er að niðurstöður munu ekki nást í viðræður SA og ASÍ um launabreytingar í væntanlegum samningum fyrr en það skýrist hvað ríkisstjórnin er tilbúin að leggja af mörkum til að skapa þær aðstæður að hægt verði að gera kjarasamninga til þriggja ára.
10.3.2011
Viđrćđur viđ stjórnvöld ganga afar hćgt
Líkur hafa minnkað á að takist að ljúka kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins og ASÍ um miðjan mars eins og stefnt hefur verið að. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segist í samtali við mbl.is ekki bjartsýnn á að niðurstaða fáist í næstu viku eins og staðan er. Viðræður standa nú yfir og eru viðsemjendur lítillega byrjaðir að ræða launalið væntanlegra samninga. Vilhjálmur segir að viðræðurnar að undaförnu við ASÍ og sérsamböndin um sérmál og sameiginleg mál hafi gengið ágætlega en viðræður við stjórnvöld gangi afar hægt fyrir sig.
28.2.2011
Viđrćđur um launaliđ hefjast í vikunni - stjórnvöld komi ađ málum
Samninganefndir SA og ASÍ funduðu fyrir hádegið hjá Ríkissáttasemjara um stöðu kjaraviðræðna en þær halda áfram af fullum krafti í vikunni. Undanfarið hefur verið rætt við sérsambönd ASÍ um ýmis sérmál en viðræður um sameiginleg mál SA og ASÍ eru einnig hafnar, s.s. lífeyrismál og menntamál. Áætlað er að á fimmtudag hefjist viðræður um launalið komandi kjarasamninga en enn er stefnt að því að gerðir verði samningar til þriggja ára sem taki gildi í júní. Vonast er til að niðurstaða liggi fyrir um miðjan mars.
25.2.2011
Kjaraviđrćđum ljúki um miđjan mars
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við mbl.is að viðræður um gerð nýs kjarasamnings gangi vel. Hann vonast eftir að niðurstaða liggi fyrir um miðjan mars. Í febrúar náðist samkomulag á milli Samtaka atvinnulífsins og landssambanda ASÍ um að hefja vinnu við gerð langtímasamnings til þriggja ára sem hefði það að markmiði að auka kaupmátt og viðhalda stöðugleika í hagkerfinu. Sú vinna er nú í fullum gangi en samninganefndir SA og ASÍ munu hittast á mánudaginn til að meta stöðuna.
21.2.2011
Kjaraviđrćđur halda áfram
Samninganefndir Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands hittust á fundi hjá Ríkissáttasemjara í morgun til að ræða stöðu og framvindu kjaraviðræðna og lauk þeim fundi rétt fyrir hádegið. Undanfarna viku hafa staðið yfir viðræður við sérsambönd ASÍ um ýmis sérmál en ákveðið var að nú yrði settur kraftur í viðræður um sameiginleg mál SA og ASÍ. Áfram er unnið að því að leggja grunn að þriggja ára kjarasamningi sem taki gildi í júní 2011 og er stefnt að því að ljúka viðræðum á næstu vikum.
21.2.2011
Samrćmd launastefna nauđsynleg
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, vísar því á bug í samtali við fréttastofu RÚV að hagsmunum starfsmanna í útflutningsgreinum sé fórnað með samræmdri launastefnu. Ef starfsmenn útflutningsgreina eigi nú að njóta góðs af gengisfalli krónunnar hefði allt eins átt að berjast fyrir því að laun starfsmanna þeirra lækkuðu þegar staðan var erfiðari.
15.2.2011
Ţriđja hvert heimili orđiđ fyrir barđinu á atvinnuleysinu
15.2.2011
Mikil tćkifćri í tölvuleikjaiđnađi á Íslandi
Tólf fyrirtæki með um 600 starfsmenn á Íslandi framleiða tölvuleiki og er ársvelta þeirra um 10 milljarðar króna. Þetta er meðal þess sem kom fram á menntadegi iðnaðarins í máli Ólafs Andra Ragnarssonar en hann er einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Betware auk þess að kenna í Háskólanum í Reykjavík. Betware var m.a. útnefnt frumkvöðull ársins 2010 af Viðskiptablaðinu en stafræna byltingin og netið hafa skapað einstök tækifæri og leikjaframleiðendur hér á landi hugsa hátt. Þeir benda á að ef rétt verður að málum staðið megi ná því markmiði árið 2021 að starfsmenn í íslenskum leikjaiðnaði verði um fimm þúsund og þeir skapi um 70 milljarða króna útflutningsverðmæti. Ólafur Andri segir þó að til að ná þessu háleita markmiði þurfi rétt skilyrði og nefnir þar fyrst efnahagslegan stöðugleika.
14.2.2011
Kjaraviđrćđur halda áfram í dag
Samtök atvinnulífsins og ASÍ hafa orðið ásátt um að hefja á nýjan leik viðræður um nýjan kjarasamning til þriggja ára sem taka myndi gildi í júní 2011. Aðilar vinnumarkaðarins munu funda í dag hjá ríkissáttasemjara en stefnt er að því að viðræðum verði lokið á næstu vikum og á þeim tíma verði unnið að samkomulagi um laun og aðra þætti samningsins. Á sama tíma verður rætt við ríkisstjórn og Alþingi um starfsskilyrði atvinnulífsins og áherslumál verkalýðshreyfingarinnar. SA vilja fara atvinnuleiðina út úr kreppunni og eru þriggja ára kjarasamningar einn lykilþáttur í þeirri leið.
10.2.2011
Atvinnuleiđin er fćr
Það veldur erfiðleikum í yfirstandandi kjaraviðræðum að einstök verkalýðsfélög krefjast þess að sérstök stefna um launahækkanir verði mótuð fyrir útflutningsgreinar vegna lágs gengis krónunnar og önnur stefna fyrir aðrar atvinnugreinar. Að mati SA er þetta óframkvæmanlegt þar sem umsamdar hækkanir í útflutningsgreinum myndu óhjákvæmilega flæða yfir aðrar greinar. Þegar gengi krónunnar hefur verið sterkt, eins og raunin var áratuginn fyrir efnahagshrunið 2008 lutu útflutningsgreinarnar hinni almennu launastefnu sem mótuð var í kjarasamningum á hverjum tíma og engum datt annað í hug. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna.
10.2.2011
Rúmur fimmtungur mannaflans ţiggur bóta- eđa veikindalaunagreiđslur
10.2.2011
Mikil tćkifćri í vetrarferđamennsku
9.2.2011
Óviđunandi ađ 14.000 séu án vinnu
Samtök atvinnulífsins kynntu í morgun atvinnuleiðina, sýn SA á leiðina út úr kreppunni á opnum fundi á Grand Hótel Reykjavík. Yfir 200 manns úr íslensku atvinnulífi mættu til fundarins. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, sagði tímabært að hefja nýja atvinnusókn og kveða atvinnuleysið niður sem hafi verið mikið frá hruni. Vilhjálmur sagði jafnfamt áhyggjuefni að svo virðist eins og atvinnuleysið sé að gleymast og landsmenn að dofna fyrir þeirri staðreynd að 14.000 manns eru án vinnu. Þessu verði að breyta hið fyrsta og því vilji SA fara atvinnuleiðina, skapa ný stöf og bæta hag fólks með aukinni vinnu og tekjum.
9.2.2011
Formađur SA: Vinna skapar velferđ
„Það vekur óneitanlega undrun að í nýlegri stefnumörkun ríkisstjórnarinnar eru engin markmið um hagvöxt til lengri tíma, engin stefna mörkuð um hvernig skuli hvetja til fjárfestinga og lítið fjallað um atvinnuleysið. Það er nánast látið að því liggja að ástandið sé nú harla gott og enginn ástæða til sérstakra viðbragða. Það getur aldrei orðið ásættanlegt að 14 þúsund manns séu atvinnulausir og að Íslendingar flytjist þúsundum saman úr landi." Þetta sagði Vilmundur Jósefsson, formaður SA, m.a. á fundi SA um atvinnumál sem nú stendur yfir á Grand Hótel Reykjavík.
9.2.2011
Fundur um stöđu atvinnumála og kjaraviđrćđna hefst kl. 8:30 á Grand Hótel Reykjavík
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um atvinnuleiðina í dag, miðvikudaginn 9. febrúar kl. 8:30-10:00. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík en atvinnuleiðin er sýn Samtaka atvinnulífsins á leiðina út úr kreppunni. Stjórnendur fyrirtækja á ýmsum sviðum fjalla um mikilvægi þess að landsmenn velji að fara atvinnuleiðina í stað verðbólguleiðarinnar með viðvarandi stöðnun í þjóðfélaginu og miklu atvinnuleysi næstu árin.
8.2.2011
Starfsmenn fiskimjölsverksmiđja fái sömu launahćkkun og ađrir
7.2.2011
Starfsmenn fiskimjölsverksmiđja ekki hćkkađir umfram ađra
6.2.2011
Lođnubrestur af mannavöldum yfirvofandi
3.2.2011
Verkfall dćmt ólögmćtt
2.2.2011
Yfirlýsing frá Samtökum atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins vilja koma eftirfarandi á framfæri og leiðrétta misskilning, sem fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga. Samtök atvinnulífsins eru fylgjandi þeirri sáttastefnu, sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir markaði og hrinti í framkvæmd með stofnun og starfi endurskoðunarnefndar um stjórn fiskveiða.
1.2.2011
ATVINNULEIĐIN: Samhljóđa ályktun stjórnar SA
Stjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur eindregið til samstöðu milli aðila vinnumarkaðarins, ríkisstjórnarinnar og Alþingis um að marka ATVINNULEIÐ út úr því kreppuástandi sem nú ríkir í atvinnulífinu og samfélaginu öllu og birtist í slæmri stöðu fjölda fyrirtækja og atvinnuleysi 14000 manns.
ATVINNULEIÐ byggir á kjarasamningum til þriggja ára með samræmdri launastefnu og launahækkunum í takt við nágrannalöndin með áherslu á kaupmáttaraukningu samfara lágri verðbólgu og aukinni atvinnu. Skynsamlegir kjarasamningar til þriggja ára eru ein meginforsenda stöðugleika og tiltrúar á batnandi tíð.
1.2.2011
SVŢ: Sögulegt tćkifćri til ađ ná sátt um sjávarútveginn
Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu, segir að nú sé sögulegt tækifæri til að ná víðtækri sátt um sjávarútvegsmálin. Óeining undanfarinna ára sé slæm fyrir alla. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
31.1.2011
Hćkkun launa í sjávarútvegi um tugi prósenta hefđi áhrif á allar atvinnugreinar
30.1.2011
Áhugaleysi ríkisstjórnar og ASÍ á atvinnuleysinu áhyggjuefni
„Við teljum að það sé útlátalaust fyrir ríkisstjórnina að girða sig í brók og fara að klára einhver mál svo við getum farið að koma okkur upp úr þessari djúpu holu sem við erum í en ekki halda áfram að moka á botninum." Þetta segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, í ítarlegu viðtali í helgarútgáfu Fréttablaðsins um atvinnumálin, yfirstandandi kjaraviðræður og stjórnmálin. Vilmundur segir að það hafi komið SA á óvart hvað ASÍ og ríkisstjórnin hafi litlar áhyggjur af atvinnuleysinu. „Það er eins og það sé bara sjálfsagt mál að það séu hér fjórtán þúsund manns atvinnulausir."
28.1.2011
Međ hagsmuni ţjóđarinnar ađ leiđarljósi
Það er mikill misskilningur að kröfur atvinnurekenda í yfirstandandi kjaraviðræðum snúist einungis um fiskveiðistjórnunarkerfið. Þetta segir Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins og stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir að reynt sé að gera önnur samtök en sjávarútvegs tortryggileg með því að í viðræðunum sé verið að ganga erinda LÍÚ, eins aðildarfélaga SA.
Helgi segir þetta ekki rétt því verið sé að ganga erinda alls alls atvinnulífsins í þeirri vegferð að koma hér á öflugum hagvexti að nýju með því að fara atvinnuleið í stað atvinnuleysisleiðar. Með því að fara atvinnuleiðina megi eyða atvinnuleysinu, auka kaupmátt fólks og bæta hag fyrirtækja. „Þannig göngum við erinda allrar þjóðarinnar."
20.1.2011
Opinn fundur um stöđu atvinnumála á mánudaginn - skráning stendur yfir
19.1.2011
Samdráttur á vinnumarkađi á síđasta ári samkvćmt Hagstofu
19.1.2011
Nýjar vegaframkvćmdir geta skapađ hundruđ starfa
Nýjar arðbærar vegabætur munu bæta innviði landsins og skapa hundruð starfa. Þá auka framkvæmdirnar öryggi í umferðinni og spara þar með þjóðfélaginu stórfé á ári hverju. Umfangsmiklar vegaframkvæmdir eru eitt þeirra stóru og mikilvægu mála sem eru uppi á borðum samningsaðila í yfirstandandi kjaraviðræðum og kalla á aðkomu ríkisstjórnarinnar. Samtök atvinnulífsins leggja á það höfuðáherslu að stórum fjárfestingarverkefnum í atvinnulífinu verði komið á skrið og í nýlegri aðgerðaáætlun ASÍ er lagt til að stórum framkvæmdum í samgöngumálum verði hrint í framkvæmd með stofnun félags í eigu ríkissjóðs sem taki lán hjá langtímafjárfestum til langs tíma.
18.1.2011
SA og ASÍ undirrita viđrćđuáćtlun um sameiginleg mál
17.1.2011
Mikiđ atvinnuleysi áhyggjuefni
13.1.2011
Samstađa um atvinnusókn
Í leiðara nýs fréttabréfs SA fjallar Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA um kjarasamningana framundan og þá leið sem fara verði. Hann segir tvær leiðir hugsanlegar til að koma Íslandi út úr kreppunni. „Annars vegar er að reikna með takmörkuðum hagvexti sem byggir á einkaneyslu og samneyslu. Hins vegar er að reiða sig á öflugan hagvöxt sem er drifinn áfram af framleiðsluhlið efnahagslífsins, þ.e.a.s. með fjárfestingum og auknum útflutningi."
12.1.2011
Meginmarkmiđ ađ ţjóđin nái fyrri styrk
Viðræður aðila vinnumarkaðarins um nýja kjarasamninga eru nú komnar á skrið eftir að hafa legið niðri yfir jól og áramót. Í gær áttu fulltrúar Samtaka atvinnulífsins fund með samninganefnd Alþýðusambands Íslands og í hádeginu í dag funduðu SA með leiðtogum ríkisstjórnarflokkanna, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni. Á fundum Samtaka atvinnulífsins með ASÍ og ríkisstjórninni lögðu SA fram samantekt vegna kjaraviðræðnanna þar sem sett eru fram meginmarkmið SA og yfirlit um þau mál sem samtökin vilja að ríkisstjórn og Alþingi taki til umfjöllunar og afgreiðslu samhliða gerð nýrra kjarasamninga.











