Vinnumarkaðsmál
30.8.2010
Gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði
Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. Það er mikilvægt að öll fyrirtæki sitji við sama borð og fylgi settum reglum en vinnustaðaskírteinum er ætlað að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði.
10.8.2010
Hægir á fjölgun örorkulífeyrisþega
Verulega hefur hægt á fjölgun örorkulífeyrisþega, þ.e. þeirra sem skráðir eru með 75% örorku eða meira, á þessu ári miðað við það síðasta. Fjöldi örorkulífeyrisþega var 15.842 þann 1. júlí síðastliðinn en hann var 15.677 í ársbyrjun þannig að fjölgunin á árinu nemur 165 einstaklingum á fyrri hluta ársins. Þetta er mikil breyting frá fyrri árum þar sem örorkulífeyrisþegum fjölgaði um 500-1.300 árlega á árabilinu 2004-2009.
10.8.2010
Vinnustaðaeftirlit og vinnustaðaskírteini - allar upplýsingar á www.skirteini.is
Þann 15. ágúst næstkomandi tekur gildi samkomulag SA og ASÍ um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Samkomulagið byggir á lögum nr. 42/2010 um sama efni sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni. Öllum atvinnurekendum í hlutaðeigandi greinum ber að sjá til þess að starfsmenn fái vinnustaðaskírteini þegar þeir hefja störf.










