Vinnumarkađsmál
21.5.2010
Aftur um skrif Jóhanns Páls Símonarsonar um Gildi
„Enn reynir Jóhann Páll Símonarson að sverta forráðamenn lífeyrissjóðsins Gildis í Mbl. þann 14. maí sl. Sem fyrr er reitt hátt til höggs en eins og endranær missir Jóhann Páll marks. Fullyrðing Jóhanns um 100 milljarða tap Gildis stendur gegn þeirri staðreynd að meðalávöxtun sjóðsins sl. 10 ár er 2% að raungildi. Þetta þýðir að höfuðstóll sjóðsins hefur varðveist bærilega þrátt fyrir hrun fjármálakerfisins, að það sem hefur tapast er fyrst og fremst eitthvað sem áður græddist. Fullyrðingar um 100 milljarða tap eru ekki á rökum reistar frekar en annað í málflutningi Jóhanns." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, varaformaður stjórnar Gildis og framkvæmdastjóri SA, m.a. í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag.
14.5.2010
Ţriđja stođ lífeyriskerfisins - 300 milljarđar í séreignarsparnađi
Kostir núverandi fyrirkomulags fulltrúalýðræðis við stjórnun lífeyrissjóða sem samið er um í kjarasamningum eru ótvíræðir, vegna þess að það tryggir jafnvægi milli ólíkra hagsmuna, langtímastöðugleika og vönduð vinnubrögð. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í grein á vef SA um lífeyrismál og séreignarsparnað en áætlað er að séreignarsparnaður landsmanna nemi nú allt að 300 milljörðum króna. Í greininni fjallar Hannes m.a. um hugmyndir á vettvangi stjórnmálanna um breytingar á umgjörðinni um lífeyrissjóði og lífeyrissparnað sem hingað til hefur verið sátt um, m.a. skattlagningu inngreiðslna í lífeyrissjóði sem bæði SA og ASÍ hafa eindregið lagst gegn.
10.5.2010
Hlé á viđrćđum ađila vinnumarkađarins og stjórnvalda
Ekkert hefur þokast í viðræðum á milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um áframhaldandi samráð eftir að Samtökum atvinnulífsins var vísað frá stöðugleikasáttmálanum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að ákveðið hafi verið að bíða með frekari fundahöld á meðan reynt sé að koma sjávarútvegsmálunum í einhvern farveg á nýjan leik. „Við þurfum að reyna að koma einhverri hreyfingu á sjávarútvegsmálin."
8.5.2010
Athugasemdir vegna skrifa Jóhanns Páls Símonarsonar um Gildi
„Jóhann Páll Símonarson skrifaði opið bréf til mín í Morgunblaðinu fimmtudaginn 6. maí sl. og leggur fram ýmsar spurningar um málefni lífeyrissjóðsins Gildis. Fyrir þá sem ekki vita hefur Jóhann Páll reynt að gera sig gildandi á ársfundum Gildis undanfarin ár og skeytt takmarkað um samþykktir sjóðsins eða almenn fundarsköp en reitt til höggs gagnvart stjórn og starfsmönnum óháð því hvort vel hefur gengið eða miður. Málefnatilbúnaðurinn hefur verið fátæklegur en þó sjaldnast jafn rýr og nú." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, varaformaður stjórnar Gildis og framkvæmdastjóri SA m.a. í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Greinina má lesa á vef SA.










