Vinnumarkaðsmál
22.2.2010
Full atvinna 2015 - hvað þarf til?
Á árunum 1963 til 2009 var hagvöxtur, þ.e. raunvöxtur landsframleiðslunnar, 3,6% að meðaltali árlega en störfum fjölgaði um 1,8% að meðaltali. Þannig fjölgaði störfum um hálfa prósentu við hverja prósentu í hagvexti á þessu tímabili. Á síðustu tveimur áratugum hefur hagvöxtur á Ísland ekki verið eins vinnuaflsfrekur og áður var og þetta hlutfall farið lækkandi. Á árunum 1999-2009 fjölgaði störfum um 0,33% að jafnaði við hverja prósentu í hagvexti og á árunum 1989-1999 um 0,38%. Þessi hlutföll verður að hafa í huga þegar fjallað er um hvað þurfi mikinn hagvöxt til vinna á bug á núverandi atvinnuleysi og mæta þeirri fjölgun sem fyrirsjáanleg er á fólki á vinnualdri næstu árin.
18.2.2010
Ný rannsókn: Launamunur kynjanna á almennum vinnumarkaði 2000-2007
Hagstofa Íslands hefur gefið út hagtíðindaheftið Launamunur kynjanna á almennum vinnumarkaði 2000-2007. Í því er greint frá helstu niðurstöðum úr rannsókn á launamun kynjanna á almennum vinnumarkaði. Rannsóknin er byggð á gagnasöfnum Hagstofunnar og var framkvæmd í kjölfar samkomulags á milli Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Hagstofu Íslands í tengslum við kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins í febrúar 2008. Niðurstöður byggjast á tæplega 185 þúsund athugunum á launum einstaklinga sem störfuðu á almennum vinnumarkaði á árunum 2000-2007.
18.2.2010
Nýr starfsmenntasjóður SA og VSSÍ
Í júlí 2008 sömdu SA og Verkstjórasamband Íslands (VSSÍ) um stofnun nýs starfsmenntasjóðs og greiða atvinnurekendur 0,3% af launum verkstjóra í sjóðinn. Í byrjun árs 2010 hófst móttaka umsókna um námskeiðsstyrki til verkstjóra (eða fyrirtækja fyrir þeirra hönd) í samræmi við reglur Starfsmenntasjóðs SA og VSSÍ. Markmið sjóðsins er að stuðla að því að starfandi verkstjórum bjóðist heildstæð grunn- og endurmenntun sem uppfylli þekkingarkröfur sem verkstjórar þurfa að búa yfir á hverjum tíma.
12.2.2010
Íslenskur vinnumarkaður er mjög kynskiptur
Karlar eru tveir þriðju hlutar starfsmanna á almennum vinnumarkaði en konur einn þriðji. Karlar vinna líka lengur en þeir skila 71% vinnustunda á almennum vinnumarkaði en konur 29%. Hjá hinu opinbera eru konur þrír fjórðu hlutar starfsmanna en karlar fjórðungur. Þar skila konur skila tveimur þriðju hluta vinnustunda en karlar þriðjungi. Meðalvinnutími karla er rúmir 46 tímar á viku en konur vinna tæpa 36 tíma.










