Beint á leiđarkerfi vefsins

Vinnumarkađsmál

9.7.2009

Hvatt til innlendrar og erlendrar fjárfestingar

Í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera náðist sátt um að greiða fyrir auknum framkvæmdum til að auka atvinnu. Lykilatriði er að hvatt verði til þátttöku erlendra og innlendra fjárfesta í fjölbreyttum verkefnum. Nauðsynlegt er að hraða framkvæmdum við álver í Helguvík sem þegar eru hafnar og kanna þarf áhuga fjárfesta á þátttöku í fjárfestingarverkefnum á sviði orkunýtingar án þess að ríki og sveitarfélög afsali sér eignarhaldi á auðlindum. Þá er mikilvægt að leita leiða til að ráðast í arðbærar samgönguframkvæmdir sem að hluta yrðu fjármagnaðar með notendagjöldum. Þetta kemur m.a. fram í ítarlegri umfjöllun SA um verklegar framkvæmdir.

9.7.2009

Launabreytingum frestađ

Með samkomulagi SA og ASÍ um framlengingu kjarasamninga þann 25. júní var launabreytingum frestað. Einungis kauptaxtar kjarasamninga hækka 1. júlí, um kr. 6.750 hjá verkafólki og afgreiðslufólki en kr. 8.750 hjá iðnaðarmönnum og skrifstofufólki. Nýju kauptaxtana má finna í nýrri kaupgjaldsskrá SA. Laun sem eru hærri en nýju kauptaxtarnir hækka ekki.

9.7.2009

Óskilvirk vinnumiđlun

Nú þegar álögur á atvinnulífið vegna atvinnuleysis hafa þrefaldast með hækkun atvinnutryggingagjalds úr 0,65% í 2,21% aukast kröfur um að vel sé haldið á fjármunum Atvinnuleysistryggingasjóðs. Vaxandi kröfur eru gerðar til þess að fólk þiggi ekki atvinnuleysisbætur á sama tíma og laus störf eru í boði sem það getur unnið. Töluvert er kvartað yfir því í atvinnulífinu að illa gangi að manna sum störf ófaglærðra, t.d. á hótelum.

9.7.2009

Vinnustađaskírteini tekin í notkun í haust

Vinnustaðaskírteini verða innleidd í byggingariðnaði í haust. Þeim er m.a. ætlað að auðvelda eftirlit á vinnustöðum svo hægt sé að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og misnotkun atvinnuleysisbóta.

9.7.2009

Hćrra tryggingagjald og hátekjuskattur

Frá 1. júlí verður tryggingagjald 7,0% í stað 5,34%. Annars vegar hækkar atvinnutryggingagjald úr 0,65% í 2,21% og hins vegar tvöfaldast gjald í ábyrgðasjóð launa og fer í 0,2%. Samtals hækkar tryggingagjald því um 1,66%  Hækkað gjald reiknast af launum frá og með 1. júlí og kemur til greiðslu við innheimtu staðgreiðslu í ágúst. Viðbót vegna launa sjómanna á fiskiskipum verður áfram 0,65%.

1.7.2009

Ný kaupgjaldskrá er komin á vef SA

Kaupgjaldskrá nr.11 er komin á vef SA og gildir hún frá 1. júlí 2009. Kauptaxtar kjarasamninga hækka 1. júlí um kr. 6.750 hjá verkafólki og afgreiðslufólki en kr. 8.750 hjá iðnaðarmönnum og skrifstofufólki. Laun sem eru hærri en nýju kauptaxtarnir hækka ekki. Taxtahækkun er háð því að samninganefnd ASÍ og SA samþykki samninginn en niðurstaða skal liggja fyrir 14. júlí nk.
RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english