Beint á leiđarkerfi vefsins

Vinnumarkađsmál

30.5.2009

Óbreyttar launahćkkanir ekki í myndinni

SA og ASÍ funduðu í gær hjá ríkissáttasemjara ásamt samningsaðilum á opinberum vinnumarkaði. Til umræðu var tillaga SA um breytingar á kjarasamningum milli aðildarfélaga ASÍ og SA gerðum 17. febrúar 2008 og síðar. Um þessa tillögu hefur ekki náðst samkomulag en af hálfu SA var tekið skýrt fram að samningsbundnar hækkanir komi ekki til framkvæmda óbreyttar þann 1. júlí næstkomandi og 1. janúar 2010.

28.5.2009

Unniđ gegn misnotkun á bótakerfi

Svindl atvinnubótaþega á vinnumarkaði getur sýkt heilu atvinnugreinarnar, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann óttast að svört atvinnustarfsemi muni aukast á næstu mánuðum. Verið er að þróa sérstakt kerfi sem eykur meðal annars eftirlit með misnotkun.

28.5.2009

Óţarfar áhyggjur af ţjónustutilskipun ESB

 „Skoðun okkar er að þessir fyrirvarar séu sprottnir af óþarfa áhyggjum," segir Guðrún Björk Bjarnadóttir, lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins, um fyrirvara ríkisstjórnarinnar við þjónustutilskipun ESB. Ríkisstjórnin áskilur sér rétt til að reka alla almannaþjónustu áfram eftir sínu höfði og að réttindi á íslenskum vinnumarkaði haldist. Guðrún Björk segir í samtali við mbl.is að ákveðins misskilnings gæti um að tilskipunin fjalli um vinnurétt. Þá undirstrikar hún að verði almannaþjónusta skilgreind öðruvísi í íslenskum lögum en annars staðar, þá komist íslensk stjórnvöld ekki upp með það.

27.5.2009

Komin á endapunkt međ krónuna

Aðilar vinnumarkaðarins og hið opinbera leita nú leiða til þess að koma á stöðugleikasáttmála. Hluti af stöðugleikasáttmála er að hækka gengið og festa það, segir framkvæmdastjóri SA í samtali við Morgunblaðið í dag. „Menn eru komnir á endapunkt með gjaldmiðilinn og reyna að leita allra leiða. Hluti af stöðugleikasáttmála er að hækka gengið og festa það. Þetta er eitt af því sem menn eru mikið að velta fyrir sér," segir Vilhjálmur Egilsson. Hann segir gjaldeyrishöftin staðfesta að menn þori ekki að vera með frjálsan gjaldmiðil. „Á meðan við erum með gjaldeyrishöftin er erfitt að byggja upp tiltrú á krónuna."

26.5.2009

Fundur á föstudag gćti skipt sköpum

Aðilar vinnumarkaðarins og hins opinbera munu hittast á fundi á föstudag sem gæti skipt sköpum í þeim viðræðum sem hafa staðið yfir. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við mbl.is. Hann segir hækkun vísitölu neysluverðs ekki hafa áhrif á viðræðurnar en hækkunina megi nánast eingöngu rekja til gengis krónunnar. Formaður SA átti fund í gærkvöld með forystumönnum ríkisstjórnarinnar og öðrum aðilum á vinnumarkaði um stöðugleikasáttmála sem unnið er að því að koma á.

20.5.2009

Leggja ţarf grunn ađ stöđugleika

Breitt samráð samtaka launafólks, atvinnurekenda, ríkis og sveitarfélaga hófst formlega í gær. Verkefnið er að ná breiðri samstöðu um markvissa áætlun í efnahags- kjara- og félagsmálum. Stefnt er á að niðurstaða liggi fyrir 9. júní. Á fundinum voru hátt í sextíu fulltrúar af öllum vinnumarkaðnum. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að mikið sé undir.

15.5.2009

Fjölbreytni í atvinnulífinu verđi aukin

Samtök atvinnulífsins, FKA - Félag kvenna í atvinnurekstri og Viðskiptaráð Íslands telja nauðsynlegt að efla hlut kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs.  Á næstu fjórum árum munu þessir aðilar því hvetja til þess og leggja ríka áherslu á að konum í forystusveit íslensks viðskiptalífs verði fjölgað þannig að hlutfall hvors kyns verði ekki undir 40% í lok árs 2013. CreditInfo mun árlega mæla árangur verkefnisins.

14.5.2009

Víđtćk samvinna nauđsynleg

Í ítarlegri samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna er þung áhersla lögð á samvinnu við aðila vinnumarkaðarins á fjölmörgum sviðum. Þessar áherslur eiga sér líklega ekki fordæmi hér á landi og endurspegla annars vegar það grafalvarlega ástand sem ríkir í efnahagslífinu og þá ríku kröfu sem gerð hefur verið um fjölþætt samstarf leiðandi aðila með það að markmiði að tryggja stöðugleika til frambúðar og efla atvinnustarfsemi. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA sem kemur út í dag.

14.5.2009

Óraunhćfar hugmyndir um styttingu vinnuviku

Í samstarfsyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar er ákvæði um aðgerðir til þess að sporna gegn atvinnuleysi og þess getið í því samhengi að metnir verði kostir þess að stytta vinnuvikuna. Þetta kemur nokkuð á óvart því vinnutími er viðfangsefni kjarasamninga og meðal samningsaðila hafa undanfarin ár ekki farið fram neinar umræður um styttingu vinnuvikunnar. Orlof er töluvert lengra á Íslandi en í flestum öðrum ríkjum og sérstakir frídagar sömuleiðis fleiri. Ársvinnutími í dagvinnu er hvergi lægri nema í Þýskalandi og Frakklandi og hvorki eru tilefni né aðstæður til þess nú að eyða miklum tíma í skoðun á því hvort stytta eigi vinnuvikuna á Íslandi.

14.5.2009

SA tengiliđur viđ Global Compact verkefni SŢ

Ákveðið hefur verið að Samtök atvinnulífsins verði tengiliður á Íslandi við Global Compact verkefni Sameinuðu þjóðanna. Með því vilja SÞ hvetja fyrirtæki til að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að tileinka sér tíu viðmið. Um þessar mundir taka þátt í verkefninu 4.700 fyrirtæki um allan heim og þar af eru um 400 á Norðurlöndum.

14.5.2009

SA og Félagsráđgjafafélag Íslands semja

Samtök atvinnulífsins og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert með sér kjarasamning sem nær til félagsmanna sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins og gegna störfum sem krefjast háskólamenntunar. Samningurinn tekur gildi 1. júlí 2009. Með samningnum gengur FÍ inn í kjarasamning sem SA gerðu við 14 aðildarfélög BHM á síðasta ári.

13.5.2009

Orlofsuppbót 2009

Þann 1. maí síðastliðinn hófst nýtt orlofsár. Samkvæmt flestum kjarasamningum SA greiðist orlofsuppbót þann 1. júní ár hvert. Við útreikning orlofsuppbótar er litið til vinnutíma og starfshlutfalls á síðasta orlofsári, þ.e. frá 1. maí 2008 til 30. apríl 2009. Full orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2009 er kr. 25.200 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 19.000.

4.5.2009

Frambođ á starfsnámi verđi aukiđ í atvinnulífinu

„Ég held að það sé gríðarlega þýðingarmikið núna að skoða alla þessa fleti og get ekki annað sagt en að mér finnst allar hugmyndir Vinnumálastofnunar til sóma og rétt að ræða þær," segir Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, í frétt í Morgunblaðinu í dag.
RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english