Vinnumarkaðsmál
25.3.2009
SA hvetja fyrirtæki til samstöðu
Samtök atvinnulífsins hvöttu í gær aðildarfyrirtæki SA til að láta ekki undan þrýstingi og taka skyndiákvarðanir um að hækka laun í þessum mánuði þrátt fyrir samkomulag við ASÍ um frestun launahækkana fram á sumar. Nokkur fyrirtæki hafa fylgt í kjölfar HB Granda og boðað að hækkun launa taki strax gildi. Framkvæmdastjóri SA segir í samtali við Morgunblaðið í dag að samtökin geti hrakist til að endurnýja ekki kjarasamninga í júní.
13.3.2009
Kynbundinn launamunur á undanhaldi
Í viðamikilli rannsókn á launum fólks sem gerð var á vegum Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og ParX, mældist enginn launamunur milli kynja meðal fólks á þrítugsaldri. Í sambærilegri könnun árið 2007 mældist munurinn 10%. Athygli vekur að launamunur kynja minnkar samkvæmt könnuninni í öllum aldurshópum. Niðurstöðurnar byggja á gögnum úr launabókhaldi fyrirtækja sem kjósa að taka þátt í árlegri greiningu á launagreiðslum.
5.3.2009
Menntatorg opnað föstudaginn 6. mars
Nám utan formlega skólakerfisins og ýmis úrræði fyrir atvinnulausa verða kynnt á Menntatorginu síðdegis föstudaginn 6. mars í Skeifunni 8, Reykjavík. Menntatorg er nú opnað í fyrsta skipti.
5.3.2009
Laun lækkuð í sænskum iðnaði
Eftirspurn eftir sænskum iðnaðarvörum hefur dregist verulega saman. Til að koma í veg fyrir uppsagnir fólks hafa því samtök atvinnurekenda í Svíþjóð og verkalýðsfélög samið um allt að 20% tímabundna lækkun launa. Markmiðið er að standa vörð um störfin og gefa fyrirtækjunum sóknarfæri þegar ástandið batnar.










