Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

27.11.2009

Launabreytingar 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði halda gildi sínu til nóvemberloka 2010. Það þýðir að umsamdar launabreytingar koma til framkvæmda frá 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010. Í nóvember er annars vegar um að ræða 3,5% launaþróunartryggingu og hins vegar sérstaka hækkun lágmarkstaxta kjarasamninga. Þann 1. júní 2010 hækka laun um 2,5% en þá kemur einnig til sérstök hækkun lágmarkstaxta.

27.11.2009

Ráðumst ekki á lífeyrissjóðina

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, flutti í gærkvöld erindi um skattlagningu lífeyrisiðgjalda hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum. Þar sagði hann m.a. að uppbygging lífeyrissjóðana væri eitt af því besta sem gerst hafi í þróun íslensks samfélags og íslenska lífeyrissjóðakerfið sé öfundarefni annarra þjóða. „Ráðumst ekki á það sem vel gengur og léttir okkur enn frekar róðurinn í framtíðinni," sagði Vilhjálmur meðal annars. Hann segir skynsamlegt að nýta lífeyrissjóðina sem bakhjarl fyrir sparnað og fjárfestingar til þess að leiða nýtt uppbyggingartímabil.

26.11.2009

Lífeyrissjóðir mikilvægir í uppbyggingu atvinnulífsins

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, hélt í dag erindi um lífeyrissjóðina og uppbyggingu atvinnulífsins hjá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands. Þar sagði Vilhjálmur m.a. að endurreisn hlutabréfamarkaðarins væri ein af lykilforsendunum fyrir endurreisn atvinnulífsins til framtíðar og að lífeyrissjóðirnir gegni þar mikilvægu hlutverki - það sé bæði hagur samfélagsins og lífeyrissjóðanna. Hins vegar þurfi að læra af reynslunni og byggja markaðinn upp af meiri fagmennsku og aga.

23.11.2009

Ráðstefna um menntun á vinnumarkaði

Í stað hefðbundins ársfundar 2009 mun Fræðslumiðstöð atvinnulífsins í samstarfi við Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB halda ráðstefnu undir heitinu „Úrræði til árangurs" dagana 26. og 27. nóvember á Hótel Nordica. Á ráðstefnunni verða rædd möguleg úrræði til að bregðast nú þegar við því ástandi sem ríkir á íslenskum vinnumarkaði ásamt því sem fjallað verður um menntun á vinnumarkaði til frambúðar.

4.11.2009

Fjárfestingar eru leiðin út úr kreppunni

Í umfjöllun andstæðinga álvera þessa dagana eru ýkjur áberandi og upplýsingar villandi. Annars vegar er lítið gert úr mikilvægi stóriðju og hins vegar mikið úr hagnaði hennar. Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri SA, bendir á í grein á vef SA að í landinu eru nú framleidd um 800 þúsund tonn af áli árlega og bein og óbein umsvif áliðnaðarins vegi u.þ.b. 5% af vergri landsframleiðslu (VLF) og að gjaldeyrisjöfnuður landsmanna sé rúmlega 10% hagstæðari en ef hann starfaði ekki í landinu. Það samsvari a.m.k. 80 milljörðum af hreinum gjaldeyristekjum á ári.

3.11.2009

Fundir Samtaka atvinnulífsins um kjarasamninga og breytingar á ráðningarsamningum

Stjórn SA hefur ákveðið að ekki komi til uppsagnar kjarasamninga. Það þýðir að launabreytingar koma  til framkvæmda frá  1. nóvember 2009 og 1. júní 2010. Á næstunni efna SA til upplýsingafunda fyrir félagsmenn þar sem verður farið yfir umsamdar breytingar á kjarasamningum og hvaða svigrúm atvinnurekendur hafa til að gera breytingar á launum og vinnufyrirkomulagi.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english