Beint á leiđarkerfi vefsins

Vinnumarkađsmál

30.10.2009

Viđrćđur ađ hefjast um atvinnuleysistryggingar

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, flutti í dag erindi á ársfundi Vinnumálastofnunar. Þar sagði hann m.a. að umræðan um nýtt fyrirkomulag atvinnuleysistrygginga væri rétt að hefjast og ýmsar útfærslur mögulegar. Ríkisstjórnin hafi ljáð máls á viðræðum en það væri grundvallarsjónarmið að þeir sem borgi beri meiri ábyrgð ásamt því að þeir sem fái þjónustuna komi að stjórnuninni. Fyrirkomulag trygginganna verði að vera þannig að þær feli í sér bæði hvata til árangurs og hagkvæmni. Þær hugmyndir sem rætt hafi verið um byggi ekki á því að hverfa aftur til eldra fyrirkomulags heldur að horfa til framtíðar.

28.10.2009

Rćtt viđ ríkisstjórnina í nćstu viku

Samtök atvinnulífsins munu ræða við ríkisstjórnina um framgang stöðugleikasáttmálans í byrjun næstu viku. Ágreiningur er á milli aðila í skattamálum en í gær var búið að semja um þau. Síðdegis dró ríkisstjórnin hins vegar til baka það sem um hafði verið samið og lagði til nýjar leiðir. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að engin sátt hafi verið í röðum SA um útspil ríkisstjórnarinnar í skattamálum en þrátt fyrir það hafi SA ákveðið að nýta ekki uppsagnarákvæði kjarasamninga.

28.10.2009

Kjarasamningum ekki sagt upp

Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins í kvöld var ákveðið að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði skyldu framlengdir til nóvemberloka 2010. SA geta hins vegar ekki fallist á ákveðin atriði í fyrirliggjandi drögum að yfirlýsingu forsætis- og fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, um framgang stöðugleikasáttmálans. Ágreiningur er í skattamálum og hefur verið óskað eftir áframhaldandi viðræðum við ríkisstjórnina um þau. SA leggja áherslu á að þær viðræður hefjist sem allra fyrst.

26.10.2009

Fjárfesting í atvinnulífinu hrynur

Aðstæður í efnahagslífinu eru nú slæmar eða mjög slæmar að mati 95% stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins. Er þetta meðal niðurstaðna í ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup á stöðu og horfum hjá 500 stærstu fyrirtækja landsins, en könnunin var gerð í septembermánuði. Er mat stjórnenda á aðstæðum í efnahagslífinu að þessu sinni ámóta slæmt og fram hefur komið í hliðstæðum könnunum undanfarið ár. Mikill samdráttur fjárfestingar í atvinnulífinu endurspeglast með skýrum hætti í könnuninni. Útlit er fyrir að fjárfesting muni dragast saman um 20% að nafnvirði á næsta ári eða um 26% að raunvirði, en í þjóðhagsáætlun er hins vegar spáð rösklega 10% magnaukningu á næsta ári.

26.10.2009

Beđiđ eftir ríkisstjórninni

Samtök atvinnulífsins áttu í gær fund með ríkisstjórninni og Alþýðusambandi Íslands um stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaga og ríkisstjórnarinnar frá 25. júní 2009. Með stöðugleikasáttmálanum var leitast við að skapa skilyrði fyrir aukinni fjárfestingu innlendra sem erlendra aðila, auknum hagvexti, nýrri sókn í atvinnumálum og að grunnur yrði lagður að bættum lífskjörum til framtíðar.

15.10.2009

Framhald stöđugleikasáttmálans í höndum ríkisstjórnarinnar

„Næstu dagar eru mjög mikilvægir fyrir þróun íslensks atvinnulífs á næstu misserum og árum. Ef fjárfestingarnar í atvinnulífinu verða ekki að veruleika hefur það í för með sér stóraukinn samdrátt í efnahagslífinu á næsta ári og langt umfram þau 2% sem þjóðhagsforsendur ganga út frá. Þá verður allt sem verið er að leggja á sig til sparnaðar í ríkisútgjöldum, skattahækkana og hófstillingar í launamálum unnið fyrir gíg." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara fréttabréfs SA. Hann segir þessa hryllingsmynd ekki þurfa að verða að veruleika, enn sé hægt að taka ákvarðanir til að koma fjárfestingum af stað. „Boltinn er fyrst og fremst hjá ríkisstjórninni en Samtök atvinnulífsins munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að stuðla að farsælli lendingu."

15.10.2009

Fjórđungur fyrirtćkja hyggst fćkka starfsfólki

Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA hyggjast ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á næstu sex mánuðum, 14% áforma fjölgun starfsmanna en 26% hyggjast fækka þeim. Af þeim sem hyggjast fjölga starfsmönnum ætla tveir þriðju að fjölga um innan við fimm starfsmenn. Þó finnst dæmi um áformaða fjölgun um yfir 50 starfsmenn. Í þeim hópi sem hyggst fækka starfsmönnum ætla 70% að fækka um innan við fimm starfsmenn en fimmtungur þeirra hyggjast fækka um meira en 10, sem geta talist hópuppsagnir. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á atvinnuhorfum meðal fyrirtækjanna.

15.10.2009

Fjölgum konum í forystu atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins telja bæði nauðsynlegt og skynsamlegt að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs og hvetja því fyrirtæki til að nýta betur kraft kvenna. Nýleg íslensk rannsókn sýnir að fyrirtæki eru síður líkleg til að lenda í vanskilum ef þau eru rekin af konum og arðsemi eigin fjár er meiri í fyrirtækjum þar sem konur eru framkvæmdastjórar. Fyrirtæki sem stofnuð eru af báðum kynjum eru ennfremur líklegust til að lifa og blandaðar stjórnir karla og kvenna hafa reynst best. Á vef SA má nú finna lista yfir fjölmargar öflugar rekstrarkonur sem eru til í að láta frekar til sín taka í íslensku viðskiptalífi.

7.10.2009

Óljós skattastefna stjórnvalda skađleg

„Óvissan sem nýframlagt fjárlagafrumvarp hefur skapað fyrir atvinnulífið, m.a. vegna skattahækkana, er mjög skaðleg. Það hefur verið vitað að skattahækkanir væru framundan og ég tel að þær hafi verið óumflýjanlegar. En þegar þær birtast að stórum hluta óunnar í fjárlagafrumvarpi þá grípur um sig mikil hræðsla í atvinnulífinu," segir Vilmundur Jósefsson formaður Samtaka atvinnulífsins.

5.10.2009

Varasamar tillögur um ađ skerđa lífeyrissparnađ

Tillögur hafa verið lagðar fram um að breyta formi á skattlagningu lífeyrissparnaðar þannig að inngreiðslur í lífeyrissjóði verði ekki frádráttarbærar til skatts heldur myndi skattskyldar tekjur hjá viðkomandi einstaklingi, hvort heldur það er hann sjálfur eða launagreiðandi sem innir þær af hendi. Á móti verði greiðslur úr lífeyrissjóðum skattfrjálsar. Áhrif þessara breytinga yrðu margþætt og myndu hafa umtalsverð þjóðhagleg áhrif. Sparnaður þjóðarinnar myndi t.a.m. minnka og eignamyndun yrði minni. Loka þyrfti núverandi lífeyrissjóðum, skerða lífeyrisgreiðslur og opna nýja sjóði. Séreignasjóðsfyrirkomulagið þyrfti að endurskoða og samspil lífeyrisgreiðslna og almannatrygginga yrði flóknara auk þess sem mismunur lífeyrisréttinda í almenna og opinbera lífeyriskerfinu myndi aukast.
RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english