Vinnumarkaðsmál
15.7.2008
Ár hagræðingar stendur yfir
14.7.2008
Nýr starfsmenntasjóður SA og Verkstjórasambands Íslands
Þann 1. júlí 2008 var undirritaður viðauki við kjarasamning verkstjóra og SA og samþykktir fyrir nýjan starfsmenntasjóð Samtaka atvinnulífsins og Verkstjórasambands Íslands (VSSÍ). Markmið þessa nýja starfsmenntasjóðs er að starfandi verkstjórum bjóðist ávallt heildstæð grunn- og endurmenntun sem uppfylli þekkingarkröfur sem verkstjórar þurfa að búa yfir á hverjum tíma. Starfsmenntasjóður SA og VSSÍ er sjálfstæður sjóður en stofnaðilar skipa fulltrúa í sjóðsstjórnina. Frá 1. júlí 2008 verður greitt sérstakt starfsmenntagjald 0,3% af öllum launum starfandi verkstjóra til sjóðsins. Gert er ráð fyrir að VSSÍ annist reikningshald sjóðsins, sjóðsvörslu og innheimtu gjaldsins.
10.7.2008
Bautasteinn reistur Einari Oddi fyrir framlag til Þjóðarsáttar
8.7.2008
Gjald launagreiðenda í Endurhæfingarsjóð
7.7.2008
SA kanna rekstrarhorfur meðal félagsmanna
3.7.2008
Að óbreyttu stefnir í atvinnuleysi
Seðlabanki Íslands tilkynnti nú í morgun um óbreytta stýrivexti, 15,5%. Fáir höfðu reiknað með því að bankinn lækkaði vexti þrátt fyrir ærið tilefni þannig að framundan er sú braut fyrir atvinnulífið sem mörkuð hefur verið með takmörkuðum aðgangi að erlendu lánsfé og einstaklega óhagstæðum kjörum á innlendu sem erlendu lánsfé. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir að óbreyttu stefni í verulega erfiðleika og atvinnuleysi á haustmánuðum. Staðan í atvinnumálum sé einstaklega dökk og tilrauninni með nýrri peningastefnu frá 2001 sé nú lokið. Á næstu mánuðum muni Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin auka enn á samskipti sín vegna þróunar atvinnumála. Mikilvægasta verkefnið sé að skapa atvinnulífinu viðunandi starfsgrundvöll og efla það með fjárfestingum og hagvexti á næstu árum m.a. með stórum verkefnum á sviði virkjana og orkunýtingar.
3.7.2008
Mjög slæmar aðstæður í efnahagslífinu
Um 76% stjórnenda í 400 stærstu fyrirtækjum landsins telja að aðstæður í efnahagslífinu séu frekar eða mjög slæmar, um 22% telja þær hvorki góðar né slæmar og einungis 2% telja þær góðar. Þetta kemur fram í ársfjórðungslegri könnun Capacent Gallup um stöðu og horfur í atvinnulífinu sem gerð er fyrir SA, Seðlabankann og fjármálaráðuneytið. Þegar litið er hálft ár fram í tímann eru efnahagshorfur á hinn bóginn skárri. Telja stjórnendur hjá um 32% fyrirtækjanna að aðstæður verði þá betri, um 26% vænta óbreytts ástands en um 42% búast við verri aðstæðum. Vísitala efnahagslífsins miðað við núverandi aðstæður er lægri en áður hefur komið fram í sambærilegum könnunum, allt frá september 2002. Meirihluti fyrirtækjanna býst við óbreyttum starfsmannafjölda en um fjórðungur hyggst fækka starfsfólki.










