Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

27.6.2008

Samið við flugumferðarstjóra

„Þetta er ásættanleg niðurstaða þegar á allt er litið," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við fréttavef Viðskiptablaðsins um samning við flugumferðarstjóra sem náðust í morgun. Í samningnum er kveðið á um 4,75% launahækkun við undirskrift. Þá hækka taxtar um 3% í febrúar. Samningurinn gildir til 31. október 2009.

19.6.2008

Um verkfallsboðanir Félags íslenskra flugumferðastjóra

Félag íslenskra flugumferðastjóra (FÍF) hefur boðað til 20 sjálfstæðra verkfalla frá 27. júní - 20. júlí til að knýja á um samþykkt krafna þeirra í viðræðum við Samtök atvinnulífsins og Flugstoðir ohf. Í aðalatriðum fela kröfur félagsins í sér u.þ.b. 30% sérstaka hækkun launa auk ýmissa breytinga sem leiða myndu til verulegra skertra stjórnunarheimilda ef á þær yrði fallist. Launakrafa félagsins er byggð á túlkun á 11 ára gamalli úttekt á réttarstöðu flugumferðastjóra sem unninn var á grundvelli þess að flugumferðastjórar höfðu í reynd ekki verkfallsrétt á þeim tíma. Í ljósi þess er skýrt að umrædd úttekt hefur enga þýðingu nú í viðræðum FÍF við Samtök atvinnulífsins og Flugstoðir ohf.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english