Vinnumarkaðsmál
19.5.2008
Hringsjá skilar árangri
Af þeim sem sótt hafa þriggja anna náms- og starfsendurhæfingu á vegum Hringsjár, starfsþjálfunar fatlaðra, höfðu 1,4% framfærslu af atvinnutekjum þegar þeir komu þangað, en um 10% þeirra hafa framfærslu af atvinnutekjum nú. Þetta er mikill og góður árangur. Fyrir náms- og endurhæfingu voru 86,6% hópsins sem lifðu eingöngu á örorku- og endurhæfingarlífeyri, en þeir eru nú tæp 48%. Fyrir námið í Hringsjá höfðu 2,8% hópsins framfæri af blöndu af örorkulífeyri og atvinnutekjum en eftir að hafa lokið náminu eru það 32,4%. Þetta kom fram á kynningardegi Hringsjár.
10.5.2008
Framtíðarstefnumótun verði efld
Rætt er við Þór Sigfússon, nýjan formann SA, í ítarlegu viðtali í helgarblaði Viðskiptablaðsins. Þar segir hann SA vera skemmtilegan vettvang þar sem komi inn nýjar hugmyndir um samfélagið og hvernig hægt sé að byggja upp lífsgæðin hér með því að horfa til nýrra kynslóða um leið og kjarnastarfsemin sé traust. Þór segir að Íslendingar hafi hingað til verið sparir á umræðuna um framtíðarstefnumótun. „Í Finnlandi hefur til að mynda verið formfest betur öll umræða um framtíðarstefnumótun og það er meðal annars fastur liður í starfi finnska þingsins. Ég á mér þann draum að svo verði einnig hér, bæði á vettvangi þingsins og í stærstu sveitarstjórnum," segir Þór í samtali við Viðskiptablaðið.
8.5.2008
Fjarvistir vegna veikinda jukust 2007
Veikindafjarvistir jukust á árinu 2007 hjá fyrirtækjum sem nota þjónustu Heilsuverndarstöðvarinnar við skráningu og greiningu fjarvista eftir að hafa farið minnkandi árin þar á undan. Starfsmenn voru að meðaltali fjarverandi 8,8 vinnudaga vegna veikinda árið 2007 sem nemur 3,9% af heildarvinnudögum. Starfsmenn á miðjum aldri og eldri eru síður fjarverandi vegna veikinda en yngra starfsfólkið og eru yngri aldurshópar tvöfalt meira frá vinnu en þeir eldri. Yngra fólk er oftar fjarverandi frá vinnu en þeir eldri en skemmri tíma í einu, en langtímafjarvistir fara vaxandi með aldri. Konur fá leyfi vegna veikinda barna í mun meira mæli en karlar og er skiptingin 68% á móti 32%, en hlutur karla fer þó vaxandi. Algengasta ástæða veikindafjarvista eru pestir eða flensur sem skýra fjórðung veikindafjarvista.
6.5.2008
Jákvæð þróun á íslenskum vinnumarkaði
Íslenskur vinnumarkaður er opnari og fjölbreyttari en áður og tækifæri fólks af erlendum uppruna til að láta til sín taka eru betri en áður. Þetta segir Tanya Dimitrova en hún er leikskólastjóri á leikskólanum Berg á Kjalarnesi. Samtök atvinnulífsins ræddu við hana fyrir aðalfund SA í tengslum við útgáfu á ritinu Baráttan um besta fólkið. Til að lýsa reynslu sinni tók hún saman pistil sem nú er hægt að horfa á hér á vef SA. Í pistlinum lýsir hún því hvernig hún sneri baki við kommúnismanum í Búlagaríu árið 1989 og hélt á vit ævintýranna til Íslands. Tanya lýsir því hvað tók við henni hér, leið hennar um vinnumarkaðinn og hvernig hún tókst á við þær áskoranir sem fylgja því að læra íslensku og sækja sér aukna menntun.










