Vinnumarkaðsmál
27.2.2008
Greiðsla launa samkvæmt nýjum kjarasamningum
20.2.2008
Kostnaðarauki atvinnulífsins vegna kjarasamninganna 17. febrúar
19.2.2008
Nýir kjarasamningar komnir á vef SA
18.2.2008
Minni verðbólga í stað launahækkana
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið gott að taka þátt í að hækka lægstu laun jafnmikið og nú er gert, en merkilegt sé að samningar takist án almennra hækkana. „Stærsta hagsmunamál þeirra sem notið hafa launaskriðs undanfarið er að verðbólga fari niður. Engin launahækkun getur komið í staðinn fyrir það og því eru ekki launahækkanir til þeirra í þessum samningum."
17.2.2008
Nauðsynlegt að framkvæma samningana rétt
Í kjarasamningunum sem undirritaðir voru 17. febrúar hækkuðu kauptaxtar verkafólks um 18 þúsund krónur á mánuði og iðnaðarmanna um 21 þúsund krónur á mánuði. Samningarnir fela í sér launaþróunartryggingu sem er 5,5% sem virkar þannig að hafi laun ekki hækkað sem því nemur frá 2. janúar 2007 hækka þau nú um það sem á vantar hjá þeim sem hafa verið í starfi þennan tíma. Laun sem hafa hækkað um 5,5% eða meira hækka ekki nú. Í samningunum felast engar almennar flatar launahækkanir.










