Vinnumarkaðsmál
25.9.2007
Símenntunardagur í fyrirtækjum
Árlegur símenntunardagur í fyrirtækjum er miðvikudagurinn 26. september. Fyrirtæki eru hvött til að tileinka þann dag fræðslumálum starfsmanna, t.d. með því að kynna fræðslustefnu sína eða halda námskeið. Þá fjalla fræðsluaðilar almennt um fræðslumál. Mímir símenntun stendur m.a. fyrir opnum fundi undir yfirskriftinni Viskubrunnar fyrirtækjanna þar sem fjallað verður um þarfir, hindranir og tækifæri fyrirtækja og einstaklinga með litla formlega menntun. Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, flytur ávarp en meðal frummælenda er Gunnhildur Arnardóttir, forstöðumaður starfsmannasviðs Securitas. Skráning er á vef Mímis
18.9.2007
Umtalsverðar launahækkanir á Norðurlöndunum
Kjarasamningar á öllum Norðurlöndum hafa verið endurnýjaðir á þessu ári að Íslandi undanskildu. Umsamdar launabreytingar þar hafa undanfarin ár verið nokkuð meiri en í samkeppnisríkjunum og varð engin breyting þar á þetta árið. Samtök atvinnurekenda í hverju landi fyrir sig settu sér þau markmið í samningaviðræðunum að launabreytingar yrðu svipaðar og verið hafa á meginlandi Evrópu undanfarin ár, en vegna þenslu og mikillar eftirspurnar eftir starfsfólki urðu hækkanirnar meiri. Kjarasamningar sem gerðir voru síðastliðið vor í Þýskalandi til eins árs höfðu þar áhrif, en samið var um 3,5% hækkun launa. Umsamdar launahækkanir á Norðurlöndum eru allt að 3,6% á ári og ljóst að það setur fyrirtækjum nokkuð þröngar skorður. Í yfirliti yfir endurnýjun kjarasamninga á Norðurlöndum má sjá umsamdar launahækkanir og útfærslu samninganna.
6.9.2007
Nýtt fyrirkomulag áfallatrygginga
SA og ASÍ hafa á undanförnum mánuðum rætt ítarlega um nýtt fyrirkomulag áfallatrygginga en það er eðlilegt að
6.9.2007
SA undirbúa kjaraviðræður
Kjarasamningar landasambanda ASÍ og fjölmargir aðrir kjarasamningar falla úr gildi um næstu áramót. Þar á meðal eru kjarasamningar verkafólks, iðnaðarmanna, verslunar- og skrifstofufólks, flugliða og farmanna. Ætla má að yfir 70 þúsund launamenn séu félagar í hlutaðeigandi stéttarfélögum. Margir samningar gilda fram á haustið 2008, m.a. samningar stóriðjufyrirtækja, orku- og veitufyrirtækja, fjármálafyrirtækja og sérsamningar einstakra fyrirtækja.
5.9.2007
Styrkir til íslenskukennslu starfsmanna
3.9.2007
Fjölmennur fundur um atvinnulíf og loftslagssamninga
Nær 100 manns sóttu morgunverðarfund Samtaka atvinnulífsins þar sem Halldór Þorgeirsson fjallaði um atvinnulíf og loftslagssamninga. Halldór sem er forstöðumaður hjá skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Bonn kom víða við í fyrirlestri sínum og fjallaði um kolefnismarkaði, stöðuna í alþjóðaviðræðum og hvað taki við eftir 2012 og svo framtíðarsýn um hvernig verði dregið úr útstreymi til lengri tíma.










