Vinnumarkaðsmál
15.2.2007
Fyrirtæki geri áhættumat á vinnustað
Samkvæmt nýrri reglugerð ber öllum fyrirtækjum að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði starfsmanna sinna, óháð stærð, starfsgrein eða starfsmannafjölda. Reglugerðin felur í sér að kerfisbundnu vinnuverndarstarfi verði komið á innan fyrirtækja til að draga úr hættu á heilsutjóni, draga úr veikindafjarvistum og stuðla að andlegri og líkamlegri vellíðan starfsmanna á vinnustað. Almennt eiga atvinnurekendur að geta útbúið sjálfir skriflegt áhættumat sem felur í sér áætlun um öryggi og heilbrigði starfsmanna.
12.2.2007
1,3% atvinnuleysi í janúar
Í janúarmánuði síðastliðnum voru skráðir 45.548 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 1.977 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysi í desember síðastliðnum 1,2%, en á sama tíma í fyrra mældist atvinnuleysi 1,6%. Frá janúar 2006 hefur fækkað í hópi atvinnulausra um 19% eða um 466. Að sögn Vinnumálastofnunar eru yfirleitt litlar breytingar á atvinnustigi milli janúar og febrúar. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
7.2.2007
Námskeiðaröð SA um starfsmannamál - skráning stendur yfir
SA halda á næstunni námskeið um starfsmannamál fyrir félagsmenn sína, bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni. Boðið verður upp á almenn námskeið um túlkun og framkvæmd kjarasamninga og námskeið um nýjungar í kjarasamningum og lögum og sérhæfða þætti starfsmannamála. Námskeiðin hefjast þriðjudaginn 13. febrúar í Húsi atvinnulífsins en fullbókað er á fyrsta námskeiðið.
1.2.2007
Um brotthlaup starfsmanna
Að undanförnu hefur nokkur fjöldi fyrirtækja haft samband við










