Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

24.10.2007

Viðurkenning fyrir framúrskarandi vinnuverndarstarf

Fjögur fyrirtæki hlutu viðurkenningu Vinnueftirlitsins fyrir framúrskarandi vinnuverndarstarf á ráðstefnu sem haldin var í tilefni af Vinnuverndarvikunni sem nú stendur yfir. Fyrirtækin eru Hjúkrunar- og dvalarheimilið Lundur á Hellu, Kjötvinnsla Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki, Jarðboranir og Mjólkursamsalan. Í Vinnuverndarviku er reynt að vekja sérstaka athygli á því hvernig tryggja megi öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi.

23.10.2007

Aðalverkefnið að hækka laun þeirra sem setið hafa eftir

Í kjarasamningunum sem eru framundan er aðalverkefnið að hækka laun þeirra sem hafa af einhverjum ástæðum setið eftir í launaþróuninni. Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2. Aðspurður um ákvörðun Reykjavíkurborgar um að setja 800 milljónir í að leysa mannekluvanda borgarinnar, sagði Vilhjálmur það vera innan ramma þess kjarasamnings sem í gildi er. Samtök atvinnulífsins funda nú með fulltrúum landssambanda verkalýðsfélaganna til að fara yfir stöðu mála og kynna áherslur samtakanna fyrir komandi kjarasamninga.

22.10.2007

Vinnumarkaður næstu áratuga

Eldra fólki mun fjölga hlutfallslega á íslenskum vinnumarkaði á næstu áratugum og ungmennum mun að sama skapi fækka. Það hefur að líkindum í för með sér að hér á landi mun verða viðvarandi vinnuaflsskortur og innflytjendum mun fjölga. Þetta kom m.a. fram í erindi Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, á fundi um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Hannes sagði breytta aldurssamsetningu snerta nánast öll svið efnahags- og þjóðmála og kalla á nýja hugsun og nýja nálgun stjórnvalda.

22.10.2007

Ráðstefna Vinnuverndarvikunnar 2007

Hæfilegt álag er heilsu best er yfirskrift Vinnuverndarvikunnar sem nú stendur yfir. Ráðstefna Vinnuverndarvikunnar verður haldin á Grand Hótel Reykjavík, Gullteigi, þriðjudaginn 23. október frá kl. 13.00-16.00. Meðal fyrirlesara er Guðrún S. Eyjólfsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins, og mun hún fjalla um áherslur atvinnulífsins á sviði vinnuverndar. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins

16.10.2007

Sveigjanleg starfslok – ávinningur allra

Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Fyrsti fundurinn af þremur verður á Grand Hótel Reykjavík, Háteigi þann 19. október n.k. kl. 8:30-10:00. Hver er ávinningur þjóðfélagsins af atvinnuþátttöku eldra fólks? Hvað kostar það samfélagið að fólk fer fyrr af vinnumarkaði s.s. vegna örorku eða atvinnuleysis? Hver verður mannfjöldaþróunin á Íslandi á næstu áratugum og hvaða áhrif hefur það á vinnumarkaðinn? Leitað verður svara við þessum spurningum en Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins fjallar um breytingar í mannfjöldaþróun næstu áratuga og áhrif breytinganna á íslenskan vinnumarkað.

15.10.2007

Fyrirtæki fari reglulega og kerfisbundið yfir launagreiðslur

Það er mikilvægt að fyrirtæki fari reglulega og kerfisbundið yfir launagreiðslur sínar til að ekki myndist skekkja milli starfsmanna, en mismunun getur komið upp við nýráðningar og einstaklingsbundnar launaákvarðanir. Þetta kom m.a. fram í máli Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, á súpufundi hjá Kvenréttindafélagi Íslands. Þar kom einnig fram að stefnt sé að því að halda áfram samstarfi Samtaka atvinnulífsins, ParX viðskiptaráðgjafar IBM og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem hafa rannsakað launagreiðslur íslenskra fyrirtækja. Niðurstöður rannsóknar þessara aðila fyrir árið 2006 sýndu 10-12% óútskýrðan launamun milli kynja. Gögn um ábyrgð starfsmanna, frammistöðu eða fjölskylduaðstæður voru ekki tiltæk, en vera kann að hluta launamunarins megi rekja til þessara þátta og því ekki hægt að fullyrða að einungis sé um kynbundinn launamun að ræða. Í rannsókninni fyrir árið 2007 verður sérstaklega horft til áhrifa ábyrgðar starfsmanna á launagreiðslur.

4.10.2007

Fjölgun örorkulífeyrisþega hefur mikil áhrif á vinnumarkað

Nýjar tölur sýna að á fyrstu 6 mánuðum þessa árs hefur örorkulífeyrisþegum haldið áfram að fjölga í sama takti og undanfarin ár. Fjölgun örorkulífeyrisþega á Íslandi hefur verið mikil á undanförnum árum en í árslok 2006 voru þeir rúmlega 13.200 eða tæp 8% af vinnuafli í landinu. Lítil atvinnuþátttaka örorkulífeyrisþega hefur leitt til þess að Íslendingum á vinnumarkaði hefur fjölgað mjög lítið. Það hefur m.a. leitt til mikillar eftirspurnar eftir erlendum starfsmönnum auk þess að hafa veruleg fjárhagsleg áhrif á gjöld og skuldbindingar ríkissjóðs og lífeyrissjóða.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english