Vinnumarkaðsmál
31.12.2007
Brýnt að ná jafnvægi á næsta ári
Þróun atvinnulífsins og efnahagsmála hefur sett mestan svip á starf Samtaka atvinnulífsins á árinu,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið í dag inntur eftir því hvað hæst hafi borið á árinu. „Rekstur margra fyrirtækja hefur gengið vel. Þau hafa ráðið til sín fólk og kaupmáttur hefur farið vaxandi. Þá hefur atvinnuleysi verið sáralítið. Annað hefur hins vegar ekki gengið jafnvel. Verðbólgan hefur aukist og veldur því fyrst og fremst hækkun íbúðaverðs. Við höfum horft á Seðlabankann hækka vexti án þess að það hefði nokkur áhrif á verðbólguna. Ýmis útflutningsfyrirtæki hafa síðan lent í vandræðum vegna aðgerða bankans. Þótt árið hafi að flestu leyti verið uppgangsár hefur það verið á ýmsan hátt erfitt. Það ber brýna nauðsyn til að ná betra jafnvægi á næsta ári.“
28.12.2007
Hjöðnun verðbólgu forgangsmál
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í grein í Fréttablaðinu í dag að hjöðnun verðbólgu hljóti að vera forgangsmál fyrir
27.12.2007
Mikilvægt að verja lífskjörin
Á síðasta einum og hálfa áratug hefur Íslendingum farnast vel. Á árunum 2000-2007 jókst kaupmáttur launa samkvæmt launavísitölu Hagstofunnar um 20% til viðbótar við 22% aukningu á árunum 1990-2000. Sé litið til umsaminna lágmarkslauna þá jókst kaupmáttur þeirra um 45% frá 1990-2000 og um rúm 18% á árunum 2000-2007. Samtals jókst kaupmáttur umsaminna lágmarkslauna um 71% milli áranna 1990 og 2007. Launahækkanir á Íslandi hafa verið mun meiri undanfarin ár en gerist meðal nálægra þjóða. Það þarf öflugt atvinnulíf til að greiða há laun og ástæða til að óska Íslendingum til hamingju með árangur liðinna ára.
17.12.2007
Hvernig á að fallbeygja kýr?
SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu standa ásamt fleiri aðilum að sérstöku átaki til að virkja Íslendinga til að hjálpa erlendu starfsfólki í verslunar- og þjónustustörfum að tala íslensku. Framleidd voru sérstök barmmerki með mismunandi áletrunum, m.a. spurningunni um hvernig skuli fallbeygja orðið kýr, en einnig má fá merki með yfirlýsingunni: Íslenska er mínar ær og kýr.
6.12.2007
Almennar launahækkanir verðbólgufóður
„Að undanförnu hafa verið settar fram kröfur um miklar samningsbundnar launahækkanir frá ýmsum hópum sem ekki byggja á neinu faglegu mati á þróun á vinnumarkaði eða stöðu atvinnulífsins. Það leysir engin vandamál að nálgast kjarasamninga eins og einhvers konar kröfukeppni milli einstakra hópa.” Þetta segir
6.12.2007
Ályktun stjórnar SA um kjarasamninga og efnahagsmál
Kaupmáttur launa hefur aukist mjög á núverandi samningstímabili og meira en gerist meðal nálægra þjóða. Laun hafa hækkað mikið og verðbólga verið allt of mikil. Nú er tími til kominn að hægja á launa- og verðbreytingum. Þetta segir stjórn Samtaka atvinnulífsins í ályktun sem samþykkt var þann 4. desember. Í ályktuninni segir ennfremur að nýta eigi svigrúm í komandi kjarasamningum til að hækka lægstu laun og færa kauptaxta nær greiddum launum. Stjórnin telur ekki svigrúm til almennra launahækkana og að þær yrðu beinlínis skaðlegar íslensku efnahagslífi. Stjórnin styður áform um stofnun áfallatryggingasjóðs og hvetur stjórnvöld til ábyrgðar í hagstjórn. Varað er við nýrri og íþyngjandi lagasetningu sem dragi úr samkeppnishæfni atvinnulífsins án sýnilegs ávinnings s.s. á sviði jafnréttismála og samkeppnismála. Stjórn SA telur ekki svigrúm til nýrra kjarasamninga með auknum tilkostnaði atvinnulífsins verði umgjörð hagstjórnarinnar ekki bætt, aðhalds gætt í opinberum útgjöldum og verðbólgumarkmiði Seðlabankans breytt. Stjórn SA leggur áherslu á að launakostnaður opinberra aðila aukist ekki umfram það sem gerist í samningum SA á almennum vinnumarkaði.
6.12.2007
Mennt slitið
Á aðalfundi Menntar 27. nóvember var ákveðið að slíta félaginu. Fyrir rúmu ári var staða og hlutverk félagsins endurmetin og gerð úttekt á starfsemi og fjármálum þess. Niðurstaða þeirrar úttektar var lögð fyrir framhaldsaðalfund í janúar s.l. Þar var lagt til að Mennt skyldi vera áfram til í breyttri mynd, rekstur skorinn niður og haldnir yrðu tveir félagsfundir á ári. Formlegum rekstri skrifstofu skyldi hætt á miðju ári og verkefnum komið fyrir annars staðar. Þetta gekk ekki eftir sem skyldi. Ákvað aðalfundur því nú að leggja Mennt alfarið niður og fól stjórn að ganga frá lausum endum og slíta félaginu formlega á fyrri hluta næsta árs.
6.12.2007
Icelandair fékk Starfsmenntaverðlaunin 2007
Starfmenntaverðlaunin voru afhent í áttunda sinn nýverið og fékk Icelandair verðlaunin í flokki fyrirtækja og félagasamtaka. Icelandair fékk verðlaunin fyrir þá áherslu sem lögð er á þjálfun og símenntun starfsmanna svo hæfileikar þeirra njóti sín sem best en fyrirtækið lítur á þekkingu og öfluga þjálfun sem samkeppnisforskot til framtíðar. Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum fékk verðlaunin í flokki fræðsluaðila fyrir öflugt starf og
6.12.2007
Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) fór fram 28. nóvember. Sama dag kom út Gátt 2007, ársrit um fullorðinsfræðslu og starfsmenntun. Á ársfundi FA fengu Elín Þór Björnsdóttir og Kornína Óskarsdóttir viðurkenningu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins fyrir að vera „Fyrirmyndir í námi fullorðinna 2007” en þær hafa sýnt frumkvæði og kjark og yfirstigið hindranir sem getur hvatt aðra til náms. Sjá nánar um starfsemi ársins í Gáttinni og á vef FA
28.11.2007
Ályktun fulltrúaráðs SA um kjarasamninga og efnahagsmál
Fulltrúaráð SA kom saman til fundar í morgun og ályktaði um kjarasamninga og efnahagsmál. Fulltrúaráð SA hefur æðsta vald í málefnum samtakanna milli aðalfunda. Í upphafsorðum ályktunarinnar segir m.a. að óvissa og óróleiki á erlendum og innlendum fjármálamörkuðum muni marka efnahagsframvinduna á næstu mánuðum og jafnvel misserum. Íslendingar muni ekki fara varhluta af þessari þróun sem auk hás olíuverðs og minnkandi sjávarafla muni leiða til þess að hagvöxtur verður að líkindum óverulegur á næsta ári. Við þessar aðstæður gangi
28.11.2007
Gögn frá fundi SA um kjarasamninga og efnahagshorfur
Samtök atvinnulífsins efndu í morgun til opins morgunverðarfundar á Hilton Reykjavík Nordica þar sem rætt var um komandi kjaraviðræður og lagt mat á stöðu og horfur í efnahagsmálum. Yfirskrift fundarins var Hvert stefnir vinnumarkaðurinn? Meðal frummælenda voru Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, Hrund Rudolfsdóttir, formaður SVÞ og Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika.
26.11.2007
Jafnrétti meira meðal yngra fólks
Það er með öllu óljóst að breytingar sem lagðar eru til í frumvarpi félagsmálaráðherra um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna, muni breyta einhverju um hlutfallslega stöðu karla og kvenna í atvinnulífinu. Fyrir því hafa ekki verið færð nein rök. Þetta kom m.a. fram í máli Hrafnhildar Stefánsdóttur, yfirlögfræðings Samtaka atvinnulífsins, á fundi Landssambands sjálfstæðiskvenna. Í erindi sínu rakti hún gagnrýni SA á frumvarpið og fór yfir rökstuðninginn sem að baki því liggur. Benti hún jafnframt á að nýleg könnun og rannsókn sýni að jafnrétti sé meira meðal yngra fólks en þeirra eldri og því vísbendingar um að jákvæðar breytingar séu að eiga sér stað á íslenskum vinnumarkaði – konur séu að sækja á.
23.11.2007
Skaðlegar og íþyngjandi reglur í jafnréttisfrumvarpi
22.11.2007
Kjarasamningar og horfur í efnahagsmálum
Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunverðarfundar á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 28. nóvember kl. 8:15-9:30. Á fundinum verður rætt um komandi kjaraviðræður og lagt mat á stöðu og horfur í efnahagsmálum. Yfirskrift fundarins er Hvert stefnir vinnumarkaðurinn? Meðal frummælenda eru
14.11.2007
Áskoranir á evrópskum vinnumarkaði
Aðilar vinnumarkaðarins í Evrópu hafa komist að samkomulagi um brýnustu úrlausnarefnin á vinnumarkaði í löndum Evrópusambandsins. Í sameiginlegri greiningu er þróun og horfum á evrópskum vinnumarkaði lýst og settar fram tillögur um hvað megi betur fara. Samkomulagið þykir mikilvægt innlegg í umræðuna um sveigjanleika og öryggi á vinnumarkaði í Evrópu sem verður til umfjöllunar á vettvangi Evrópuráðsins í desember.
13.11.2007
Of mikil verðbólga á Íslandi
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Morgunblaðið að verðbólgan sé allt of mikil og nýjustu verðbólgutölur auðveldi ekki kjaraviðræður.
1.11.2007
Kynbundinn launamunur þingmanna 4-6%
Meðallaun kvenna á Alþingi eru 5,7% lægri en karla þegar horft er til þingmanna sem ekki eru ráðherrar. Meðallaun karlkyns þingmanna eru rúmlega 602 þúsund krónur en meðallaun kvenkyns þingmanna rúmlega 34 þúsund krónum lægri á mánuði. Með því að beita algengri aðferð við að skýra launamun kynjanna fæst sú niðurstaða að óútskýrður kynbundinn launamunur þingmanna sé 3,7%, þ.e. að sá munur verði eingöngu rakinn til kynferðis. Ef málið er hins vegar skoðað ofan í kjölinn, og tillit tekið til álagsgreiðslna sem þingmenn fá, hverfur óútskýrður launamunur – en karlkyns þingmenn fá þær í ríkari mæli en þingkonur. Vilji Alþingi jafna þennan launamun í gildandi launakerfi, verður það ekki gert nema með auknum hlut þingkvenna í álagsgreiðslum, t.d. með fjölgun kvenna sem eru formenn stjórnmálaflokka í stjórnarandstöðu.
1.11.2007
Fjarvistir vegna veikinda virðast hafa minnkað
Niðurstöður rannsóknar Heilbrigðisþjónustu InPro, sem gerð var í samstarfi við
1.11.2007
Kjaraviðræður að hefjast
Starfsgreinasamband Íslands og Flóabandalagið hafa nú kynnt sínar megináherslur í komandi kjaraviðræðum. Endanlegar kröfugerðir verða þó ekki lagðar fram fyrr en um miðjan nóvember. Rafiðnaðarsambandið hefur lagt fram kröfugerð og munu viðræður hefjast fljótlega. Önnur félög hafa ekki lagt fram kröfugerðir.
24.10.2007
Viðurkenning fyrir framúrskarandi vinnuverndarstarf
Fjögur fyrirtæki hlutu viðurkenningu Vinnueftirlitsins fyrir framúrskarandi vinnuverndarstarf á ráðstefnu sem haldin var í tilefni af Vinnuverndarvikunni sem nú stendur yfir. Fyrirtækin eru Hjúkrunar- og dvalarheimilið Lundur á Hellu, Kjötvinnsla Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki, Jarðboranir og Mjólkursamsalan. Í Vinnuverndarviku er reynt að vekja sérstaka athygli á því hvernig tryggja megi öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi.
23.10.2007
Aðalverkefnið að hækka laun þeirra sem setið hafa eftir
Í kjarasamningunum sem eru framundan er aðalverkefnið að hækka laun þeirra sem hafa af einhverjum ástæðum setið eftir í launaþróuninni. Þetta sagði
22.10.2007
Vinnumarkaður næstu áratuga
Eldra fólki mun fjölga hlutfallslega á íslenskum vinnumarkaði á næstu áratugum og ungmennum mun að sama skapi fækka. Það hefur að líkindum í för með sér að hér á landi mun verða viðvarandi vinnuaflsskortur og innflytjendum mun fjölga. Þetta kom m.a. fram í erindi Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, á fundi um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Hannes sagði breytta aldurssamsetningu snerta nánast öll svið efnahags- og þjóðmála og kalla á nýja hugsun og nýja nálgun stjórnvalda.
22.10.2007
Ráðstefna Vinnuverndarvikunnar 2007
Hæfilegt álag er heilsu best er yfirskrift Vinnuverndarvikunnar sem nú stendur yfir. Ráðstefna Vinnuverndarvikunnar verður haldin á Grand Hótel Reykjavík, Gullteigi, þriðjudaginn 23. október frá kl. 13.00-16.00. Meðal fyrirlesara er Guðrún S. Eyjólfsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins, og mun hún fjalla um áherslur atvinnulífsins á sviði vinnuverndar. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins
16.10.2007
Sveigjanleg starfslok – ávinningur allra
Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Fyrsti fundurinn af þremur verður á Grand Hótel Reykjavík, Háteigi þann 19. október n.k. kl. 8:30-10:00. Hver er ávinningur þjóðfélagsins af atvinnuþátttöku eldra fólks? Hvað kostar það samfélagið að fólk fer fyrr af vinnumarkaði s.s. vegna örorku eða atvinnuleysis? Hver verður mannfjöldaþróunin á Íslandi á næstu áratugum og hvaða áhrif hefur það á vinnumarkaðinn? Leitað verður svara við þessum spurningum en Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins fjallar um breytingar í mannfjöldaþróun næstu áratuga og áhrif breytinganna á íslenskan vinnumarkað.
15.10.2007
Fyrirtæki fari reglulega og kerfisbundið yfir launagreiðslur
Það er mikilvægt að fyrirtæki fari reglulega og kerfisbundið yfir launagreiðslur sínar til að ekki myndist skekkja milli starfsmanna, en mismunun getur komið upp við nýráðningar og einstaklingsbundnar launaákvarðanir. Þetta kom m.a. fram í máli Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, á súpufundi hjá Kvenréttindafélagi Íslands. Þar kom einnig fram að stefnt sé að því að halda áfram samstarfi Samtaka atvinnulífsins, ParX viðskiptaráðgjafar IBM og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem hafa rannsakað launagreiðslur íslenskra fyrirtækja. Niðurstöður rannsóknar þessara aðila fyrir árið 2006 sýndu 10-12% óútskýrðan launamun milli kynja. Gögn um ábyrgð starfsmanna, frammistöðu eða fjölskylduaðstæður voru ekki tiltæk, en vera kann að hluta launamunarins megi rekja til þessara þátta og því ekki hægt að fullyrða að einungis sé um kynbundinn launamun að ræða. Í rannsókninni fyrir árið 2007 verður sérstaklega horft til áhrifa ábyrgðar starfsmanna á launagreiðslur.
4.10.2007
Fjölgun örorkulífeyrisþega hefur mikil áhrif á vinnumarkað
Nýjar tölur sýna að á fyrstu 6 mánuðum þessa árs hefur örorkulífeyrisþegum haldið áfram að fjölga í sama takti og undanfarin ár. Fjölgun örorkulífeyrisþega á Íslandi hefur verið mikil á undanförnum árum en í árslok 2006 voru þeir rúmlega 13.200 eða tæp 8% af vinnuafli í landinu. Lítil atvinnuþátttaka örorkulífeyrisþega hefur leitt til þess að Íslendingum á vinnumarkaði hefur fjölgað mjög lítið. Það hefur m.a. leitt til mikillar eftirspurnar eftir erlendum starfsmönnum auk þess að hafa veruleg fjárhagsleg áhrif á gjöld og skuldbindingar ríkissjóðs og lífeyrissjóða.
25.9.2007
Símenntunardagur í fyrirtækjum
Árlegur símenntunardagur í fyrirtækjum er miðvikudagurinn 26. september. Fyrirtæki eru hvött til að tileinka þann dag fræðslumálum starfsmanna, t.d. með því að kynna fræðslustefnu sína eða halda námskeið. Þá fjalla fræðsluaðilar almennt um fræðslumál. Mímir símenntun stendur m.a. fyrir opnum fundi undir yfirskriftinni Viskubrunnar fyrirtækjanna þar sem fjallað verður um þarfir, hindranir og tækifæri fyrirtækja og einstaklinga með litla formlega menntun. Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, flytur ávarp en meðal frummælenda er Gunnhildur Arnardóttir, forstöðumaður starfsmannasviðs Securitas. Skráning er á vef Mímis
18.9.2007
Umtalsverðar launahækkanir á Norðurlöndunum
Kjarasamningar á öllum Norðurlöndum hafa verið endurnýjaðir á þessu ári að Íslandi undanskildu. Umsamdar launabreytingar þar hafa undanfarin ár verið nokkuð meiri en í samkeppnisríkjunum og varð engin breyting þar á þetta árið. Samtök atvinnurekenda í hverju landi fyrir sig settu sér þau markmið í samningaviðræðunum að launabreytingar yrðu svipaðar og verið hafa á meginlandi Evrópu undanfarin ár, en vegna þenslu og mikillar eftirspurnar eftir starfsfólki urðu hækkanirnar meiri. Kjarasamningar sem gerðir voru síðastliðið vor í Þýskalandi til eins árs höfðu þar áhrif, en samið var um 3,5% hækkun launa. Umsamdar launahækkanir á Norðurlöndum eru allt að 3,6% á ári og ljóst að það setur fyrirtækjum nokkuð þröngar skorður. Í yfirliti yfir endurnýjun kjarasamninga á Norðurlöndum má sjá umsamdar launahækkanir og útfærslu samninganna.
6.9.2007
Nýtt fyrirkomulag áfallatrygginga
SA og ASÍ hafa á undanförnum mánuðum rætt ítarlega um nýtt fyrirkomulag áfallatrygginga en það er eðlilegt að
6.9.2007
SA undirbúa kjaraviðræður
Kjarasamningar landasambanda ASÍ og fjölmargir aðrir kjarasamningar falla úr gildi um næstu áramót. Þar á meðal eru kjarasamningar verkafólks, iðnaðarmanna, verslunar- og skrifstofufólks, flugliða og farmanna. Ætla má að yfir 70 þúsund launamenn séu félagar í hlutaðeigandi stéttarfélögum. Margir samningar gilda fram á haustið 2008, m.a. samningar stóriðjufyrirtækja, orku- og veitufyrirtækja, fjármálafyrirtækja og sérsamningar einstakra fyrirtækja.
5.9.2007
Styrkir til íslenskukennslu starfsmanna
3.9.2007
Fjölmennur fundur um atvinnulíf og loftslagssamninga
Nær 100 manns sóttu morgunverðarfund Samtaka atvinnulífsins þar sem Halldór Þorgeirsson fjallaði um atvinnulíf og loftslagssamninga. Halldór sem er forstöðumaður hjá skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Bonn kom víða við í fyrirlestri sínum og fjallaði um kolefnismarkaði, stöðuna í alþjóðaviðræðum og hvað taki við eftir 2012 og svo framtíðarsýn um hvernig verði dregið úr útstreymi til lengri tíma.
31.8.2007
Jafnvægi á vinnumarkaði
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í ítarlegu viðtali við helgarblað Viðskiptablaðsins að mjög mikilvægt sé að vinnumarkaðurinn sé í eðlilegu jafnvægi. „Þar tökum við eftir því að þær takmarkanir sem eru á aðflutningi sérhæfðs starfsfólks frá löndum utan Evrópusambandsins setur óþarfa hömlur á fyrirtækin. Við teljum að það sé mjög brýnt að
29.8.2007
Efnahagslegur stöðugleiki og lítil verðbólga
Meginmarkmið Samtaka atvinnulífsins í komandi kjaraviðræðum er að næstu kjarasamningar samræmist lítilli verðbólgu, efnahagslegum stöðugleika og þeir raski ekki samkeppnishæfni atvinnulífsins segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í viðtali við Morgunblaðið. „Flestir samningar sem við gerum renna út um áramótin en þar er um að ræða vel á annað hundrað samninga, stóra og smáa. Við lítum svo á við samningsgerðina að skoða verði alla þessa samninga í samhengi. Við þurfum því að horfa yfir allt sviðið og velta því fyrir okkur hvaða áhrif útkoman úr samningunum mun hafa á efnahagsþróunina, á samkeppnisstöðu atvinnulífsins, verðbólguna og þróunina almennt á vinnumarkaðinum,“ segir Vilhjálmur.
16.7.2007
Bakgrunnur stjórnarmanna ræður úrslitum
Athugun Samtaka atvinnulífsins á bakgrunni stjórnarmanna í 15 stórum fyrirtækjum á íslenskum hlutabréfamarkaði leiðir í ljós að yfir 95% stjórnarmannanna höfðu reynslu af setu í stjórnum eða reynslu af rekstri fyrirtækis. Reynsla af stjórnun er því grundvallarþáttur þegar kemur að því að skipa í stjórnir fyrirtækjanna. Eignarhald ræður einnig miklu en 65% stjórnarmanna í umræddum fyrirtækjum eru sjálfir hluthafar í fyrirtækjunum eða sitja í stjórn fyrir hönd ákveðinna eigenda. Eigendur fjármagns eru því ráðandi í stjórnum fyrirtækja á Íslandi en þriðjungur stjórnarmanna í fyrirtækjunum sitja þar án eignatengsla. Menntun stjórnarmanna virðist ekki eins mikilvægur þáttur en í opinberri umræðu hafa margir furðað sig á því að kynjahlutfall í stjórnum íslenskra fyrirtækja hafi ekki jafnast í kjölfar þess að konum með háskólamenntun og konum í ábyrgðarstöðum hafi fjölgað verulega á undanförnum árum.
22.6.2007
Óskýrður launamunur mælist 10-12%
Niðurstöður nýrrar rannsóknar Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á launagreiðslum íslenskra fyrirtækja árið 2006 eru þær að munur á föstum mánaðarlaunum karla og kvenna sem ekki verði skýrður með öðru en kyni mælist 10-12%. Rannsóknin var unnin í samvinnu við ParX viðskiptaráðgjöf IBM og
5.6.2007
Þjónustuviðskipti innan EES – nýjar kröfur til erlendra fyrirtækja og íslenskra notendafyrirtækja
Erlendum fyrirtækjum sem senda starfsmenn til Íslands ber að tilkynna Vinnumálastofnun um starfsemi sína hér á landi, greiða laun samkvæmt íslenskum kjarasamningum, slysatryggja starfsmenn og í vissum tilvikum hafa fulltrúa hér á landi. Notendafyrirtæki hér á landi skal óska eftir staðfestingu þess að erlenda fyrirtækið hafi sinnt upplýsingaskyldu sinni og ber að afhenda Vinnumálastofnun gögn, sé þess óskað.
16.5.2007
Málþing um starfsmenntun og fræðslu í atvinnulífinu
Landsmennt efnir til málþings um starfsmenntun og fræðslu í atvinnulífinu í lok maí. Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni en á þinginu verður einnig fjallað um starfsemi Landsmenntar. Í fyrra veitti sjóðurinn fræðslustyrki til 79 fyrirtækja fyrir um 17 milljónir króna. Þá voru veittir 1866 styrkir samtals að upphæð 46 milljónum króna. Málþingið verður í Skíðaskálanum í Hveradölum 30. maí kl. 11.30 – 15.30.
9.5.2007
Hár launakostnaður á Íslandi
Heildarlaunakostnaður á Íslandi er hærri en meðaltal heildarlaunakostnaðar innan Evrópusambandsins þegar horft er til helstu atvinnugreina á almennum vinnumarkaði. Ný rannsókn á launakostnaði fyrirtækja í Evrópu sýnir að á Íslandi er heildarlaunakostnaður á almennum vinnumarkaði mestur í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 29 evrur á vinnustund en minnstur í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, 22,5 evrur. Hlutfall annars launakostnaðar en launagreiðslna af heildarlaunakostnaði er hæst í samgöngum og flutningum, 17% en lægst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 14,7%. Frá þessu er greint á vef Hagstofunnar.
7.5.2007
Frumvarp til jafnréttislaga verði endurskoðað
Endurskoða þarf frumvarp til jafnréttislaga sem nú liggur fyrir og er í opnu umsagnarferli. Þetta er mat Hrafnhildar Stefánsdóttur, yfirlögfræðings SA, en hún fjallaði um álitaefni varðandi frumvarpið á vinnuréttardegi Háskólans á Bifröst. Endurskoðunarnefnd jafnréttislaga samdi frumvarpið en Hrafnhildur fjallaði aðallega um jafnrétti og jöfn laun og hvaða áhrif jafnréttisreglur hafi á stjórnunarrétt atvinnurekenda samkvæmt frumvarpinu samanborið við skilgreiningar Evrópuréttar og dómaframkvæmd.
25.4.2007
Seðlabankinn segir erlent starfsfólk hafa jákvæð efnahagsleg áhrif
Auður íslenskra heimila væri allt að 5% minni ef aðgangur erlends starfsfólks hefði verið takmarkaður að íslenskum vinnumarkaði. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefði verið allt að 4,5% minni á síðasta ári, verðbólga og stýrivextir hefðu verið hærri og einkaneysla minni. Þetta kom fram í máli Rannveigar Sigurðardóttur, forstöðumanns greiningar og útgáfudeildar Seðlabanka Íslands á morgunverðarfundi SA um erlent starfsfólk á Íslandi. Sólveig Jónasdóttir, verkefnastjóri hjá Alþjóðahúsi sagði Íslendinga þurfa að ákveða hvort þeir ætli að líta á erlent fólk sem hingað kemur sem erlent vinnuafl eða framtíðar ríkisborgara.
25.4.2007
Mikil hækkun launa þrátt fyrir fjölgun erlendra starfsmanna
Samkvæmt launakönnun Hagstofunnar hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 17% að meðaltali frá upphafi ársins 2005 til loka ársins 2006. Sú starfsstétt sem hækkaði mest var verkafólk, um 19%, en erlendir starfsmenn eru fjölmennastir í þeirri starfsstétt. Laun í byggingariðnaði, en í þeirri atvinnugrein eru erlendir starfsmenn fjömennastir, hækkuðu um 17%, eða um það sama og meðaltal allra.
24.4.2007
Morgunverðarfundur um erlent starfsfólk á Íslandi
Samtök atvinnulífsins efna til morgunverðarfundar um erlent starfsfólk á Íslandi miðvikudaginn 25. apríl. Yfirskrift fundarins er Góðir Íslendingar – erlent starfsfólk á íslenskum vinnumarkaði og fer fundurinn fram á Grand Hótel Reykjavík kl. 8:00-10:00. Framsögur flytja Rannveig Sigurðardóttir forstöðumaður greiningardeildar Seðlabanka Íslands, Ragnar Árnason forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA og Sólveig Jónasdóttir verkefnastjóri hjá Alþjóðahúsi. Fundarstjóri er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Þátttökugjald er kr. 1.500 með morgunverði. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA
20.4.2007
1,3% atvinnuleysi í mars
Í marsmánuði síðastliðnum voru skráðir 42.540 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngildir því að 1.934 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Atvinnuleysi í janúar og febrúar mældist einnig 1,3% en atvinnuleysi í mars er minna en á sama tíma fyrir ári þegar það mældist 1,5%. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir því að draga muni úr atvinnuleysi í apríl og það verði líklega á bilinu 1,1%-1,4%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar
10.4.2007
Blikur á lofti á íslenskum vinnumarkaði
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar Námsmatsstofnunar sem gerð var fyrir SA stefnir meginþorri ungs fólks sem er á leið í framhaldsnám á Íslandi að því að verða háskólamenntaðir sérfræðingar sem starfa í mennta- eða heilbrigðisgeiranum eða starfa við verslun og þjónustu. Rætt var við 15 ára ungmenni árin 2000, 2003 og 2006. Niðurstöður rannsóknarinnar endurspegla viðhorf þess fólks sem verður ráðandi í íslensku þjóðfélagi á árunum 2030-2050.
23.3.2007
Ný tækifæri til atvinnuþátttöku
Finna þarf form á frjálsum samningum á milli fyrirtækja og þeirra aðila sem fara með málefni þeirra sem búa við skerta starfsorku. Sníða þarf ráðningarsamninga að þörfum þessa hóps með sveigjanlegum vinnutíma og afkastakröfum og láta kostnað vegna greiðslu launa í veikindum falla á sameiginlegan sjóð. Þetta sagði
15.3.2007
Verslunarstörf henta eftirlaunaþegum vel
Í viðhorfskönnun sem Rannsóknasetur verslunarinnar lét gera meðal eldri borgara í lok febrúar kemur í ljós að um 66% þeirra sem eru á eftirlaunaaldri, eða eru að komast á þann aldur, telja að verslunarstörf henti eftirlaunaþegum mjög vel eða frekar vel. Könnunin er liður í stærri rannsókn sem Rannsóknasetur verslunarinnar vinnur að varðandi starfsmannamál í verslunum og aukna atvinnuþátttöku eldri borgara og öryrkja. Könnunin náði til 800 manna hóps fólks á aldrinum 65 – 71 árs og byggði á 400 manna tilviljanaúrtaki úr þjóðskrá og sambærilegu úrtaki úr félagaskrá Landssambands eldri borgara.
12.3.2007
Atvinnuleysi 1,3% í febrúar
Í febrúarmánuði síðastliðnum voru skráðir 40.682 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.037 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Atvinnuleysi er töluvert minna en á sama tíma fyrir ári þegar það mældist 1,6%, en ef litið er til febrúar 2006 hefur fækkað um 301 í hópi atvinnulausra, eða um 13%. Atvinnuleysi mældist 1,3% í janúar. Að sögn Vinnumálastofnunar breytist atvinnuástand yfirleitt lítið frá febrúar til mars. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
6.3.2007
Endurskoðun örorkumats og efling starfsendurhæfingar
Bæta á hag þeirra einstaklinga sem búa við skerta starfsorku vegna örorku og auka atvinnuþátttöku þeirra. Þetta er einróma niðurstaða nefndar forsætisráðherra sem falið var að koma með tillögur um hvernig endurskoða mætti örorkumat og efla starfsendurhæfingu ásamt því að einfalda og bæta þjónustu. Í nefndinni sátu fulltrúar stjórnvalda, ASÍ, SA, lífeyrissjóða og Öryrkjabandalagsins. Nefndin telur að huga þurfi sérstaklega að þeim sem horfið hafi af vinnumarkaði af ýmsum ástæðum og að brýn þörf sé á að breyta núverandi fyrirkomulagi örorkumats. Óbreytt ástand og áframhaldandi fjölgun lífeyrisþega hafi í för með sér vaxandi útgjöld vegna aukinna bótagreiðslna ríkis og lífeyrissjóða.
15.2.2007
Fyrirtæki geri áhættumat á vinnustað
Samkvæmt nýrri reglugerð ber öllum fyrirtækjum að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði starfsmanna sinna, óháð stærð, starfsgrein eða starfsmannafjölda. Reglugerðin felur í sér að kerfisbundnu vinnuverndarstarfi verði komið á innan fyrirtækja til að draga úr hættu á heilsutjóni, draga úr veikindafjarvistum og stuðla að andlegri og líkamlegri vellíðan starfsmanna á vinnustað. Almennt eiga atvinnurekendur að geta útbúið sjálfir skriflegt áhættumat sem felur í sér áætlun um öryggi og heilbrigði starfsmanna.
12.2.2007
1,3% atvinnuleysi í janúar
Í janúarmánuði síðastliðnum voru skráðir 45.548 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 1.977 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysi í desember síðastliðnum 1,2%, en á sama tíma í fyrra mældist atvinnuleysi 1,6%. Frá janúar 2006 hefur fækkað í hópi atvinnulausra um 19% eða um 466. Að sögn Vinnumálastofnunar eru yfirleitt litlar breytingar á atvinnustigi milli janúar og febrúar. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
7.2.2007
Námskeiðaröð SA um starfsmannamál - skráning stendur yfir
SA halda á næstunni námskeið um starfsmannamál fyrir félagsmenn sína, bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni. Boðið verður upp á almenn námskeið um túlkun og framkvæmd kjarasamninga og námskeið um nýjungar í kjarasamningum og lögum og sérhæfða þætti starfsmannamála. Námskeiðin hefjast þriðjudaginn 13. febrúar í Húsi atvinnulífsins en fullbókað er á fyrsta námskeiðið.
1.2.2007
Um brotthlaup starfsmanna
Að undanförnu hefur nokkur fjöldi fyrirtækja haft samband við
26.1.2007
Rætt um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen og Rannsóknarþjónustan Sýni standa fyrir námstefnu þann 31. janúar undir yfirskriftinni ,,Öryggi og heilbrigði á vinnustað – Hagur allra”. Markmið námstefnunnar er að fylgja eftir nýrri reglugerð um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs í fyrirtækjum. Samkvæmt reglugerðinni ber atvinnurekanda að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað sem á að marka stefnu varðandi aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustaðnum.
21.1.2007
Ráðstefna um áhættumat og forvarnir á vinnustöðum
Vinnueftirlitið efnir til ráðstefnu um áhættumat og forvarnir á vinnustöðum á Grand Hótel þriðjudaginn 23. janúar frá klukkan 13-16. Á ráðstefnunni verða kynnt ný ákvæði um skyldu atvinnurekenda til að
16.1.2007
Styrkir til námskeiða í íslensku
Menntamálaráðuneyti hefur auglýst fyrstu úthlutun styrkja til fræðsluaðila og fyrirtækja sem bjóða nám í íslensku sem ekki er hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi árið 2007. Styrkveitingar þessar byggja á samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 10. nóvember síðastliðnum þar sem ákveðið var að fela menntamálráðuneyti framkvæmd verkefnis um íslenskukennslu fyrir útlendinga og verja til þess 100 milljónum króna árið 2007. Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki sem ekki eru fræðsluaðilar þurfa að hafa samning við hæfan fræðsluaðila sem annast kennsluna. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2007. Sjá nánar á vef menntamálaráðuneytis.
15.1.2007
Atvinnuleysi 1,3% að jafnaði árið 2006
Á árinu 2006 mældist að jafnaði 1,3% atvinnuleysi, 1,8% meðal kvenna og 0,9% meðal karla. Mest var atvinnuleysið í upphafi árs, 2,6% en minnkaði jafnt og þétt eftir því sem leið á árið allt fram í október þegar það mældist 1,0%. Síðustu tvo mánuði ársins jókst það lítið eitt og mældist 1,2% í lok árs. Í desembermánuði síðastliðnum voru skráðir 39.464 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að um 1.879 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum eða 1,2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Að mati Vinnumálastofnunar má










