Vinnumarkaðsmál
29.9.2006
Búlgarar og Rúmenar fái fullan aðgang að íslenskum vinnumarkaði
SA sjá enga ástæðu til þess að takmarka aðgang rúmenskra og búlgarskra ríkisborgara að íslenskum vinnumarkaði í kjölfar þess að umrædd ríki gerast aðilar að ESB og EES um næstu áramót. Þvert á móti ber okkur að taka vel á móti þessum nýju aðildarríkjum EES með öllum þeim réttindum og skyldum sem aðild hefur í för með sér. Þenslan á íslenskum vinnumarkaði er líklega sú mesta í allri álfunni og greiður aðgangur erlends starfsfólks hefur verið grundvallarforsenda þess hagvaxtar og þeirra lífskjarabóta sem Íslendingar hafa notið undanfarin ár. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Ragnars Árnasonar, forstöðumanns vinnumarkaðssviðs SA, á ráðstefnu EES vinnumiðlunar um íslenskan vinnumarkað í kjölfar stækkunar ESB.
19.9.2006
Ráðstefna um íslenskan vinnumarkað í kjölfar stækkunar ESB
Föstudaginn 29. september verður í Sunnusal Hótel Sögu haldin ráðstefna EES vinnumiðlunar um íslenskan vinnumarkað í kjölfar stækkunar Evrópusambandsins. Ráðstefnan er hluti af evrópsku verkefni þar sem áhersla er lögð á hreyfanleika á vinnumarkaði á árinu 2006 - European Year of Workers Mobility 2006. Ráðstefnan fer fram á ensku og er öllum opin. Í tengslum við ráðstefnuna verður kynning á atvinnu- og námstækifærum í Evrópu, þar sem erlendir sérfræðingar kynna atvinnutækifæri í sínum löndum auk þess sem kynning verður á ýmsum þáttum sem tengjast námi erlendis. Sjá nánari dagskrá ráðstefnunnar á vef Vinnumálastofnunar.
13.9.2006
Ísland með lang hæsta hlutfall fólks á vinnumarkaði
Nýjar tölur frá Eurostat sýna að hlutfall starfandi fólks á vinnumarkaði er mun hærra hér á landi en í flestum samanburðarlöndunum, eða tæp 84% á aldrinum 15 til 64 ára, en meðaltalið innan ESB eru tæp 64%. Árið 2001 settu leiðtogar aðildarríkja ESB sér markmið um að árið 2005 yrði hlutfall fólks á vinnumarkaði a.m.k. 67%, til að hægt væri að fjármagna hækkandi eftirlaunakostnað og rekstur kostnaðarsamra velferðarkerfa. Ljóst er að a.m.k. mörg aðildarríkja ESB eiga þar nokkuð langt í land.
12.9.2006
1,2% atvinnuleysi í ágúst
Í ágústmánuði síðastliðnum voru skráðir 44.848 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 1.948 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,4% í júlí sl. og 1,8% í ágúst 2005. Vinnumálastofnun reiknar með að vegna mikilla umsvifa og eftirspurnar á vinnumarkaði auk árstíðasveiflu þegar skólafólk fer af vinnumarkaði megi gera ráð fyrir því að atvinnuleysi muni enn minnka og verða á bilinu 0,9% til 1,3% í september. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
5.9.2006
Vika símenntunar
Vika símenntunar verður haldin dagana 24. - 30. september næstkomandi.










