Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

29.6.2006

Ný kaupgjaldsskrá SA, ásamt skýringum og leiðbeiningum

Í kjölfar kjarasamninga SA við ASÍ og landssambönd þess um taxtaviðauka hafa SA gefið út nýja kaupgjaldsskrá sem gildir frá 1. júlí 2006. Samningarnir sem undirritaðir voru 22. júní sl. kveða ekki á um almenna hækkun launa, heldur einungis krónutöluviðbætur við kjarasamningbundna launataxta. Þá gerði forsendunefnd sú sem starfar skv. kjarasamningum samkomulag um einstaklingsbundna launaþróunartryggingu sem tryggir launamönnum að lágmarki 5,5% launahækkun á tímabilinu júní 2005-júní 2006. Sjá nýja kaupgjaldsskrá SA, samningana frá 22. júní og ítarlegar skýringar og leiðbeiningar á vef SA.

23.6.2006

Ánægður með niðurstöðuna

Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, segist í samtali við Morgunblaðið vera ánægður með samkomulag SA og ASÍ. Þannig hefði verið óþægileg tilhugsun að horfa til þess að kjarasamningar yrðu hugsanlega lausir um áramót samhliða vaxandi verðbólgu og því til viðbótar aðdraganda alþingiskosninga. „Sem betur fer lendum við ekki í þeirri stöðu og höfum náð núna með þessari undirskrift að tryggja kjarasamninga til loka árs 2007 eins og upphaflega var stefnt að. Það er sérstakt fagnaðarefni að mínu mati.“ Ingimundur segir samskipti aðila beggja vegna borðsins hafa verið einstaklega góð og það hafi verið forsenda þess að niðurstaða hafi fengist á svo skömmum tíma. „Ég óska þess að gjörningurinn megi verða umbjóðendum beggja aðila og þjóðinni allri til hagsbóta,“ segir Ingimundur.

23.6.2006

Þjóðartilraun til sáttar

„Þetta er þjóðartilraun til að ná verðbólgunni niður og ég hef fulla trú á því að það gangi upp. Það er mikill ásetningur okkar megin, hjá verkalýðshreyfingunni og ríkisstjórninni að ná verðbólgunni niður á næsta ári," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Fréttablaðið. „Þetta var eitthvað sem Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin þurftu að leggja á sig til að eiga möguleika á því að ná verðbólgunni niður á næsta ári. Nú þurfa bara allir að leggjast á eitt.“ Vilhjálmur segir að það hafi þurft „ákveðna sýn og þor“ til að ná þessu samkomulagi. „Báðir samningsaðilar taka áhættu en báðir höfðu kjark og þor til að takast á við þetta,“ segir Vilhjálmur.

22.6.2006

Kjarasamningar í gildi a.m.k. út árið 2007

Á vettvangi forsendunefndar kjarasamninga hefur náðst samkomulag um 5,5% launaþróunartryggingu og þar með halda kjarasamningar gildi sínu áfram út samningstímann. Ennfremur hefur náðst samkomulag milli SA annars vegar og ASÍ og landssambanda þess hins vegar um 15.000 króna taxtaviðauka, sem á rætur sínar að rekja til meiri hækkana í kjarasamningum hjá hinu opinbera en í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Taxtaviðaukinn hefur ekki áhrif til hækkunar launa sem eru hærri en umsamdir launataxtar. Ríkisstjórn Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu um aðgerðir í tengslum við þessa niðurstöðu. Meginmarkmið samkomulags aðila vinnumarkaðarins og aðgerða ríkisstjórnarinnar er að breyta væntingum um verðbólgu árið 2007.

21.6.2006

Ólöglegar verkfallsaðgerðir ekki liðnar

Boðuð vinnustöðvun starfsfólks hjá IGS í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er klárlega ólögleg segir Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Fréttablaðið. Hann segir SA líta aðgerðirnar alvarlegum augum. „Ef trúnaðarmenn stéttarfélaga taka þátt í boðun ólögmætrar vinnustöðvunar þá er stéttarfélagið sjálft ábyrgt og getur verið skaðabótaskylt. Við líðum ekki svona vinnubrögð og ef meiriháttar tjón hlýst af þessum aðgerðum verður skoðað hvort stéttarfélagið eða starfsmenn sjálfir séu bótaskyldir,“ segir Ragnar.

20.6.2006

Tillögur SA og ASÍ um vinnumarkaðsmál

Í tengslum við skoðun kjarasamninga hafa Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands sett fram sameiginlegar tillögur vegna erlendra starfsmanna, gerviverktöku, opinberra innkaupa og lögbrota í atvinnustarfsemi. SA og ASÍ leggja áherslu á að leikreglur á vinnumarkaði þurfa að vera skýrar og þeim fylgt eftir af stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins með markvissu og skilvirku eftirliti. Sjá tillögur SA og ASÍ.

14.6.2006

Væntingar um áframhaldandi þenslu en bætta stöðu útflutnings

Niðurstöður úr nýrri könnun IMG Gallup á stöðu og framtíðarhorfum í atvinnulífinu gefa til kynna að aðstæður í efnahagslífinu séu tiltölulega góðar en þó heldur lakari en í samsvarandi könnun í febrúar. Stjórnendur sjá fram á versnandi horfur þegar litið er hálft ár fram í tímann varðandi innlenda eftirspurn þótt áfram verði þensla á vinnumarkaði. Könnunin staðfestir á hinn bóginn þá breytingu að hagur útflutningsgreina fer batnandi vegna gengisþróunar undanfarna mánuði. Könnun þessi er gerð ársfjórðungslega fyrir Samtök atvinnulífsins, fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands. Ekki er um að ræða samræmda túlkun samstarfsaðilanna á niðurstöðum.

2.6.2006

SA leggja til taxtahækkanir um kr. 12.000 nú þegar

Samtök atvinnulífsins hafa lagt fyrir ASÍ og landssambönd þess hugmynd að samkomulagi í ljósi fyrirsjáanlegra vandræða á vinnumarkaðnum á næstu mánuðum og misserum, og hættu á efnahagslegu tjóni til langs tíma af völdum verðbólgu. Ef samkomulag næst á grundvelli þessarar hugmyndar munu samningsbundnir launataxtar hækka um sérstakan taxtaviðauka að upphæð 12.000 krónur á mánuði. Hluti af samkomulaginu er að forsendunefnd kjarasamninga telst hafa lokið störfum vegna mats á þróun verðbólgu og samningar verða því ekki uppsegjanlegir frá og með næstu áramótum heldur gilda a.m.k. út árið 2007.

1.6.2006

Skrá ber erlenda starfsmenn

Fyrirtæki sem ráða til sín starfsmenn frá nýju aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins skulu tilkynna um þá til Vinnumálastofnunar og skal ráðningarsamningur fylgja tilkynningunni. Einnig ber að tilkynna um aðra erlenda starfsmenn til Útlendingastofnunar.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english