Vinnumarkaðsmál
27.2.2006
Afnema ber takmarkanir á frjálsri för nýrra EES-borgara
Afnema ber takmarkanir á frjálsri för launafólks frá hinum nýju ríkjum ESB hingað til lands, segir Hannes G Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins. Hann segir að reynsla ríkja sem hafa leyft frjálsa för launafólks sé góð og nefnir í því sambandi Svíþjóð,
13.2.2006
1,6% atvinnuleysi í janúar
9.2.2006
Orka og ál: hátækni og góð störf
Virkjun raforku og álframleiðsla voru fyrstu hátæknigreinarnar í íslensku atvinnulífi og sumar af stærstu verkfræðistofum landsins er að finna innanhúss í orku- og álfyrirtækjum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í Morgunblaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar, forstöðumanns hjá SA. Hann bendir jafnframt á að störf í álverum séu almennt séð góð og vel launuð störf líkt og óvenju langur starfsaldur ber vitni og segir mál að linni þeim ofurneikvæðu ummælum sem iðulega eru látin falla í þessu sambandi um eðli og ágæti starfa við virkjanir og áliðnað.
8.2.2006
Evrópa og einstök ríki græða á frjálsri för launafólks
Aðgangur íbúa nýrra aðildarríkja ESB að vinnumarkaði eldri aðildarríkjanna hefur einkum haft þar jákvæð áhrif, en þó almennt séð minni áhrif en talið var, skv. nýrri skýrslu ESB. Starfsfólk frá nýjum aðildarríkjum ESB hefur lagt sitt af mörkum til bætts efnahags og til að draga úr skorti á starfsfólki. Flest aðildarríki ESB settu þó takmarkanir á vinnumarkaðsaðgang íbúa nýju aðildarríkjanna við stækkun árið 2004, en framkvæmdastjórnin hvetur þau til að skoða vandlega hvort þörf sé á að endurnýja þær takmarkanir í vor í ljósi þessarar góðu reynslu. Ísland setti jafnframt slíkar takmarkanir, sem ætla verður að verði ekki framlengdar í vor.
8.2.2006
Eru sveigjanleg starfslok valkostur?
Ráðstefna um sveigjanleg starfslok verður haldin í Salnum Kópavogi, fimmtudaginn 9. febrúar kl. 13:15-16:20. Öldrunarráð Íslands stendur fyrir ráðstefnunni í samvinnu við Samtök atvinnulífsins og fleiri. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Eru sveigjanleg starfslok valkostur? Fjölbreytt erindi verða flutt á ráðstefnunni en hún er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Sjá nánar dagskrá ráðstefnunnar, (PDF-skjal).
2.2.2006
Kjarabætur teknar að láni
Í byrjun desember sl. gerði Reykjavíkurborg gamaldags verðbólgusamning í aðdraganda kosninga, nokkuð sem ekki hefur tíðkast í íslenskum stjórnmálum í tæpa tvo áratugi, segir










