Vinnumarkaðsmál
30.1.2006
Samið til 2010
Samtök atvinnulífsins og Sjómannasamband Íslands hafa undirritað kjarasamninga um kaup og kjör háseta og þjónustufólks á m.s. Herjólfi sem gilda til ársloka 2010. Fá hóparnir sömu launabreytingar og samið hefur verið um við aðra hópa á kaupskipum í samningum sem gilda til ársloka 2007. Á árunum 2008 – 2010 eru hópunum tryggðar hliðstæðar launabreytingar og samið verður um í kjarasamningum við sambærilega starfshópa.
30.1.2006
Ekki tilefni til endurskoðunar
Launanefnd sveitarfélaga hefur heimilað sveitarfélögum að hækka lægstu laun starfsmanna þeirra auk þess að hækka laun leikskólakennara að meðaltali um 12%. Í samtali við Morgunblaðið segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, að nú séu í gildi fjögurra ára samningar á almennum vinnumarkaði og tímabilið rétt hálfnað. Ekkert tilefni sé til að endurskoða launaliði bundinna samninga vegna atburða sem tengjast þeim ekki.
27.1.2006
Góð störf og mikill stöðugleiki í starfsmannahaldi
Góð og vel launuð störf og mikill stöðugleiki í starfsmannahaldi er meðal þess sem Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, fjallaði um í erindi sínu á Orkulindinni Ísland – ráðstefnu SA, SI og Samorku um gildi ál- og orkuframleiðslu. Meðalstarfsaldur hjá Alcan er þannig með því lengsta sem gerist, eða yfir 15 ár í árslok 2005. Veltuhraði starsfsmanna þar er einnig með því lægsta sem þekkist, eða 3,5 – 4% í áliðnaði árið 2004. Í samanburði er meðaltalið meðal félagsmanna ASÍ yfir 30%. Þá sagði Gylfi álverin í fararbroddi í öryggis- og aðbúnaðarmálum.
27.1.2006
Atvinnurekstur er forsenda byggðar
Atvinnulíf og atvinnurekstur er forsenda byggðar eða a.m.k. mikilvægasta undirstaða hennar. Ef engin fyrirtæki og engin starfsemi er til staðar, þá er engin forsenda fyrir byggð! Þetta sagði Guðmundur Páll Jónsson, bæjarstjóri Akranesskaupstaðar, í erindi sínu á Orkulindinni Ísland – ráðstefnu SA, SI og Samorku um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi. Hann fjallaði m.a. um nábýli Akraness við stóriðju á Grundartanga og jákvæð áhrif þessara fyrirtækja á íbúaþróun, aðra atvinnustarfsemi og menntun á Akranesi.
18.1.2006
1,5% atvinnuleysi í desember
Í desembermánuði sl. voru skráðir 50.843 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.317 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,5% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið einnig 1,5% í nóvember sl. en 2,7% í desember 2004. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi aukist nokkuð í janúar og verði á bilinu 1,5-1,8%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
10.1.2006
Skráning hafin á Orkulindina Ísland
Ráðstefna um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi fer fram á Hótel Nordica föstudaginn 27. janúar 2006. Ráðstefnan ber yfirskriftina Orkulindin Ísland, og er skráning hafin. Í pallborðsumræðum þar sem rætt verður um stöðu og horfur taka þátt, Björgólfur Thorsteinsson, formaður Landverndar, Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Norðuráli og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls. Sjá nánar.
5.1.2006
Takk fyrir ánægjulegan tíma
Ég hef haft ómælda ánægju af þessu starfi og vil að lokum þakka öllum aðildarfyrirtækjum samtakanna fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna að málefnum íslensks atvinnulífs á þessum skemmtilegu uppgangs og umbrotatímum, segir
5.1.2006
Af kröfum um réttlætingu uppsagna
Rýmri uppsagnarréttur fyrirtækja er á dagskrá stjórnvalda í sumum fjölmennustu ríkjum Evrópu, en ósveigjanlegum vinnumarkaðsreglum er m.a. kennt um mikið atvinnuleysi og lítinn hagvöxt. Á sama tíma kemur iðulega fram krafa um það hérlendis að íslensk stjórnvöld dragi úr þeim sveigjanleika sem Íslendingar hafa í aðalatriðum borið gæfu til að viðhalda. Ákvörðun um að skylda vinnuveitanda til að réttlæta uppsögn hverju sinni væri því ákvörðun um grundvallarbreytingu á íslenskum vinnumarkaði, segir
5.1.2006
Hækkun framlags í Ábyrgðasjóð launa frá og með 1. janúar 2006
5.1.2006
Orkulindin Ísland – ráðstefna um gildi ál- og orkuframleiðslu
Föstudaginn 27. janúar nk. munu Samorka,










