Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

13.12.2006

1,1% atvinnuleysi í nóvember

Í nóvembermánuði sl. voru skráðir 38.457 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 1.749 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,1% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,5% í nóvember 2005 en 1,0% í október sl. Vinnumálastofnun telur líkur á að atvinnuleysið aukist lítilsháttar í desember, m.a. vegna árstíðarsveiflu, og verði á bilinu 1%-1,3%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

7.12.2006

Almenn launahækkun 2,9% um áramót

Um næstu áramót mun almenn launahækkun í helstu kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins við stéttarfélög og landssambönd verða 2,9%. Um áramótin hækkar ennfremur iðgjald atvinnurekenda til samtryggingarlífeyrissjóðs og framlag atvinnurekenda í fræðslusjóði verkafólks.

23.11.2006

Minnt á mikilvægi sveigjanleika á vinnumarkaði

Framkvæmdastjórn ESB hefur kynnt svokallaða grænbók sem ætlað er að auka umræður og skoðanaskipti aðila um hvernig hægt sé að þróa evrópska vinnumarkaðslöggjöf í þá átt að tryggja sveigjanleika jafnt sem öryggi á Evrópuvinnumarkaði. UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, leggja áherslu áherslu á að sveigjanleiki og öryggi á vinnustað séu ekki tveir andstæðir pólar og að  sveigjanleiki á vinnumarkaði sé eina leiðin til þess að skapa fleiri störf í Evrópu. Þá minna samtökin á að valdsvið til að þróa vinnumarkaðslöggjöfina liggi fyrst og fremst hjá aðilum á landsvísu.

13.11.2006

Tilkynningarskylda vegna ráðningar erlendra starfsmanna

SA vilja minna fyrirtæki á að tilkynna skal til Vinnumálastofnunar (VMST) um ráðningu ríkisborgara frá Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Póllandi, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklandi eða Ungverjalandi. Í tilkynningunni skal koma fram nafn atvinnurekanda, kennitala og heimilisfang ásamt nafni hins erlenda starfsmanns, kennitölu og aðsetri hans hér á landi og afrit ráðningarsamnings sem tryggi starfsmanninum laun og önnur starfskjör samkvæmt íslenskum lögum og kjarasamningum. Tilkynningin skal berast VMST innan tíu virkra daga frá ráðningu starfsmanns frá framangreindum löndum.

10.11.2006

1% atvinnuleysi í október

Í októbermánuði síðastliðnum voru skráðir 36.180 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 1.645 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Atvinnuleysi hefur ekki mælst lægra síðan í október árið 2000, en til samanburðar mældist það einnig 1% í september sl. en 1,4% í október 2005. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að vegna árstíðasveiflu muni atvinnuleysi aukast lítilsháttar í nóvember og verða á bilinu 1-1,3%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

1.11.2006

Ábyrgð á skattgreiðslum erlendra starfsmanna

Ábyrgð íslenskra fyrirtækja á endanlegri skattgreiðslu erlends starfsmanns er að áliti fjármálaráðuneytisins víðtækari en á skattgreiðslum íslenskra ríkisborgara. Samtök atvinnulífsins hafa mótmælt þessari lagatúlkun og skattaframkvæmd við fjármálaráðuneytið án þess það hafi borið nokkurn árangur. Samtökin hafa jafnframt farið fram á að skattayfirvöld setji fram skýrar leiðbeiningar til fyrirtækja um það hvernig skuli haga síðasta launauppgjöri við erlendan starfsmann sem er á förum frá landinu, þannig að þau geti varið sig gegn þessari skattaábyrgð löngu síðar.

24.10.2006

SPRON hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs

Viðurkenning Jafnréttisráðs árið 2006 hlýtur Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, SPRON. Að mati ráðsins sýnir SPRON gott fordæmi í jafnréttismálum. Þannig hefur t.d. allt frá árinu 1997 verið unnið eftir virkri jafnréttisáætlun en sérstök jafnréttisnefnd hefur það verkefni að fylgja henni eftir til hlítar. Hjá fyrirtækinu starfa 40 stjórnendur og þar af 21 kona. Frá árinu 2004 hefur konum fjölgað í efstu stjórnendastöðum en formaður stjórnar sjóðsins er Hildur Petersen. Sjá nánar á vef félagsmálaráðuneytisins, en Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra afhenti viðurkenninguna.

13.10.2006

Bjartsýni ríkir í atvinnulífinu

Aðstæður í efnahagslífinu eru hagstæðar um þessar mundir ef marka má niðurstöður könnunar Capacent Gallup á stöðu og framtíðarhorfum hjá 400 stærstu fyrirtækjum landsins og ívið betri en í samsvarandi könnun í maí. Horfur eru að vísu lakari þegar litið er 6 og 12 mánuði fram í tímann, en óvissa um framtíðarhorfur er samt minni en í könnunum fyrr á árinu. Áfram er skortur á starfsfólki í mörgum greinum atvinnulífsins, en flest fyrirtæki gera þó ráð fyrir óbreyttum fjölda starfsfólks á næstu sex mánuðum. Könnunin er gerð ársfjórðungslega fyrir Samtök atvinnulífsins, fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands.

11.10.2006

Fundir um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði

Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Fyrsti fundur af þremur verður á Grand hótel þriðjudaginn 17. október nk. kl. 8:30-10:00. Fundinn ávarpa Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, Steinn Logi Björnsson forstjóri Húsasmiðjunnar, Rakel Ýr Guðmundsdóttir starfsmannastjóri SPRON og Sigurður Guðmundsson frá fjármálaráðuneytinu. Annan fundinn 9. nóvember ávarpar m.a. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

11.10.2006

1% atvinnuleysi í september

Í septembermánuði síðastliðnum voru skráðir 34.140 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 1.628 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,2% í ágúst sl. og 1,4% í september 2005. Að mati Vinnumálastofnunar má gera ráð fyrir að atvinnuleysi aukist lítilsháttar í október. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

9.10.2006

Góð reynsla af erlendu starfsfólki

Um níu af hverjum tíu fyrirtækjum í Danmörku sem hafa ráðið til sín erlent starfsfólk segja reynsluna af því vera jákvæða og hyggjast halda því áfram. Aðeins tvö prósent fyrirtækja telja reynslu af ráðningu erlends starfsfólks vera neikvæða. Þetta kemur fram í nýlegri könnun DI, dönsku samtaka iðnaðarins, meðal rúmlega 600 danskra fyrirtækja. Mikill skortur er á starfsfólki í Danmörku og hyggjast um 40% danskra fyrirtækja bregðast við með því að ráða til sín erlent starfsfólk.

29.9.2006

Búlgarar og Rúmenar fái fullan aðgang að íslenskum vinnumarkaði

SA sjá enga ástæðu til þess að takmarka aðgang rúmenskra og búlgarskra ríkisborgara að íslenskum vinnumarkaði í kjölfar þess að umrædd ríki gerast aðilar að ESB og EES um næstu áramót. Þvert á móti ber okkur að taka vel á móti þessum nýju aðildarríkjum EES með öllum þeim réttindum og skyldum sem aðild hefur í för með sér. Þenslan á íslenskum vinnumarkaði er líklega sú mesta í allri álfunni og greiður aðgangur erlends starfsfólks hefur verið grundvallarforsenda þess hagvaxtar og þeirra lífskjarabóta sem Íslendingar hafa notið undanfarin ár. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Ragnars Árnasonar, forstöðumanns vinnumarkaðssviðs SA, á ráðstefnu EES vinnumiðlunar um íslenskan vinnumarkað í kjölfar stækkunar ESB.

19.9.2006

Ráðstefna um íslenskan vinnumarkað í kjölfar stækkunar ESB

Föstudaginn 29. september verður í Sunnusal Hótel Sögu haldin ráðstefna EES vinnumiðlunar um íslenskan vinnumarkað í kjölfar stækkunar Evrópusambandsins. Ráðstefnan er hluti af evrópsku verkefni þar sem áhersla er lögð á hreyfanleika á vinnumarkaði á árinu 2006 - European Year of Workers Mobility 2006. Ráðstefnan fer fram á ensku og er öllum opin. Í tengslum við ráðstefnuna verður kynning á atvinnu- og námstækifærum í Evrópu, þar sem erlendir sérfræðingar kynna atvinnutækifæri í sínum löndum auk þess sem kynning verður á ýmsum þáttum sem tengjast námi erlendis. Sjá nánari dagskrá ráðstefnunnar á vef Vinnumálastofnunar.

 

13.9.2006

Ísland með lang hæsta hlutfall fólks á vinnumarkaði

Nýjar tölur frá Eurostat sýna að hlutfall starfandi fólks á vinnumarkaði er mun hærra hér á landi en í flestum samanburðarlöndunum, eða tæp 84% á aldrinum 15 til 64 ára, en meðaltalið innan ESB eru tæp 64%. Árið 2001 settu leiðtogar aðildarríkja ESB sér markmið um að árið 2005 yrði hlutfall fólks á vinnumarkaði a.m.k. 67%, til að hægt væri að fjármagna hækkandi eftirlaunakostnað og rekstur kostnaðarsamra velferðarkerfa. Ljóst er að a.m.k. mörg aðildarríkja ESB eiga þar nokkuð langt í land.

12.9.2006

1,2% atvinnuleysi í ágúst

Í ágústmánuði síðastliðnum voru skráðir 44.848 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 1.948 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,4% í júlí sl. og 1,8% í ágúst 2005. Vinnumálastofnun reiknar með að vegna mikilla umsvifa og eftirspurnar á vinnumarkaði auk árstíðasveiflu þegar skólafólk fer af vinnumarkaði megi gera ráð fyrir því að atvinnuleysi muni enn minnka og verða á bilinu 0,9% til 1,3% í september. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

5.9.2006

Vika símenntunar

Vika símenntunar verður haldin dagana 24. - 30. september næstkomandi. Menntamálaráðuneytið stendur fyrir vikunni en Mennt sér um skipulagningu og framkvæmd verkefnisins í samstarfi við símenntunarmiðstöðvarnar níu á landsbyggðinni og Mími á höfuðborgarsvæðinu. Nánari upplýsingar um dagskrá vikunnar eru á slóðinni: www.mennt.is/simenntun

11.8.2006

1,4% atvinnuleysi í júlí

Í júlímánuði síðastliðnum voru skráðir 45.902 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.184 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,4% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,3% í júní sl. en 2,0% í júlí 2005. Að mati Vinnumálastofnunar bendir flest til að atvinnuleysi í ágúst muni aukast lítillega frá því í júlí og verða á bilinu 1,3%-1,6%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

12.7.2006

1,3% atvinnuleysi í júní

Í júnímánuði síðastliðnum voru skráðir 44.720 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.029 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið einnig 1,3% í maí sl., en 2,1% í júní 2005. Að sögn Vinnumálastofnunar bendir flest til að atvinnuleysi í júlí muni lítið breytast í júlí og verða á bilinu 1,2%-1,5%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

29.6.2006

Ný kaupgjaldsskrá SA, ásamt skýringum og leiðbeiningum

Í kjölfar kjarasamninga SA við ASÍ og landssambönd þess um taxtaviðauka hafa SA gefið út nýja kaupgjaldsskrá sem gildir frá 1. júlí 2006. Samningarnir sem undirritaðir voru 22. júní sl. kveða ekki á um almenna hækkun launa, heldur einungis krónutöluviðbætur við kjarasamningbundna launataxta. Þá gerði forsendunefnd sú sem starfar skv. kjarasamningum samkomulag um einstaklingsbundna launaþróunartryggingu sem tryggir launamönnum að lágmarki 5,5% launahækkun á tímabilinu júní 2005-júní 2006. Sjá nýja kaupgjaldsskrá SA, samningana frá 22. júní og ítarlegar skýringar og leiðbeiningar á vef SA.

23.6.2006

Ánægður með niðurstöðuna

Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, segist í samtali við Morgunblaðið vera ánægður með samkomulag SA og ASÍ. Þannig hefði verið óþægileg tilhugsun að horfa til þess að kjarasamningar yrðu hugsanlega lausir um áramót samhliða vaxandi verðbólgu og því til viðbótar aðdraganda alþingiskosninga. „Sem betur fer lendum við ekki í þeirri stöðu og höfum náð núna með þessari undirskrift að tryggja kjarasamninga til loka árs 2007 eins og upphaflega var stefnt að. Það er sérstakt fagnaðarefni að mínu mati.“ Ingimundur segir samskipti aðila beggja vegna borðsins hafa verið einstaklega góð og það hafi verið forsenda þess að niðurstaða hafi fengist á svo skömmum tíma. „Ég óska þess að gjörningurinn megi verða umbjóðendum beggja aðila og þjóðinni allri til hagsbóta,“ segir Ingimundur.

23.6.2006

Þjóðartilraun til sáttar

„Þetta er þjóðartilraun til að ná verðbólgunni niður og ég hef fulla trú á því að það gangi upp. Það er mikill ásetningur okkar megin, hjá verkalýðshreyfingunni og ríkisstjórninni að ná verðbólgunni niður á næsta ári," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Fréttablaðið. „Þetta var eitthvað sem Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin þurftu að leggja á sig til að eiga möguleika á því að ná verðbólgunni niður á næsta ári. Nú þurfa bara allir að leggjast á eitt.“ Vilhjálmur segir að það hafi þurft „ákveðna sýn og þor“ til að ná þessu samkomulagi. „Báðir samningsaðilar taka áhættu en báðir höfðu kjark og þor til að takast á við þetta,“ segir Vilhjálmur.

22.6.2006

Kjarasamningar í gildi a.m.k. út árið 2007

Á vettvangi forsendunefndar kjarasamninga hefur náðst samkomulag um 5,5% launaþróunartryggingu og þar með halda kjarasamningar gildi sínu áfram út samningstímann. Ennfremur hefur náðst samkomulag milli SA annars vegar og ASÍ og landssambanda þess hins vegar um 15.000 króna taxtaviðauka, sem á rætur sínar að rekja til meiri hækkana í kjarasamningum hjá hinu opinbera en í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Taxtaviðaukinn hefur ekki áhrif til hækkunar launa sem eru hærri en umsamdir launataxtar. Ríkisstjórn Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu um aðgerðir í tengslum við þessa niðurstöðu. Meginmarkmið samkomulags aðila vinnumarkaðarins og aðgerða ríkisstjórnarinnar er að breyta væntingum um verðbólgu árið 2007.

21.6.2006

Ólöglegar verkfallsaðgerðir ekki liðnar

Boðuð vinnustöðvun starfsfólks hjá IGS í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er klárlega ólögleg segir Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Fréttablaðið. Hann segir SA líta aðgerðirnar alvarlegum augum. „Ef trúnaðarmenn stéttarfélaga taka þátt í boðun ólögmætrar vinnustöðvunar þá er stéttarfélagið sjálft ábyrgt og getur verið skaðabótaskylt. Við líðum ekki svona vinnubrögð og ef meiriháttar tjón hlýst af þessum aðgerðum verður skoðað hvort stéttarfélagið eða starfsmenn sjálfir séu bótaskyldir,“ segir Ragnar.

20.6.2006

Tillögur SA og ASÍ um vinnumarkaðsmál

Í tengslum við skoðun kjarasamninga hafa Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands sett fram sameiginlegar tillögur vegna erlendra starfsmanna, gerviverktöku, opinberra innkaupa og lögbrota í atvinnustarfsemi. SA og ASÍ leggja áherslu á að leikreglur á vinnumarkaði þurfa að vera skýrar og þeim fylgt eftir af stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins með markvissu og skilvirku eftirliti. Sjá tillögur SA og ASÍ.

14.6.2006

Væntingar um áframhaldandi þenslu en bætta stöðu útflutnings

Niðurstöður úr nýrri könnun IMG Gallup á stöðu og framtíðarhorfum í atvinnulífinu gefa til kynna að aðstæður í efnahagslífinu séu tiltölulega góðar en þó heldur lakari en í samsvarandi könnun í febrúar. Stjórnendur sjá fram á versnandi horfur þegar litið er hálft ár fram í tímann varðandi innlenda eftirspurn þótt áfram verði þensla á vinnumarkaði. Könnunin staðfestir á hinn bóginn þá breytingu að hagur útflutningsgreina fer batnandi vegna gengisþróunar undanfarna mánuði. Könnun þessi er gerð ársfjórðungslega fyrir Samtök atvinnulífsins, fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands. Ekki er um að ræða samræmda túlkun samstarfsaðilanna á niðurstöðum.

2.6.2006

SA leggja til taxtahækkanir um kr. 12.000 nú þegar

Samtök atvinnulífsins hafa lagt fyrir ASÍ og landssambönd þess hugmynd að samkomulagi í ljósi fyrirsjáanlegra vandræða á vinnumarkaðnum á næstu mánuðum og misserum, og hættu á efnahagslegu tjóni til langs tíma af völdum verðbólgu. Ef samkomulag næst á grundvelli þessarar hugmyndar munu samningsbundnir launataxtar hækka um sérstakan taxtaviðauka að upphæð 12.000 krónur á mánuði. Hluti af samkomulaginu er að forsendunefnd kjarasamninga telst hafa lokið störfum vegna mats á þróun verðbólgu og samningar verða því ekki uppsegjanlegir frá og með næstu áramótum heldur gilda a.m.k. út árið 2007.

1.6.2006

Skrá ber erlenda starfsmenn

Fyrirtæki sem ráða til sín starfsmenn frá nýju aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins skulu tilkynna um þá til Vinnumálastofnunar og skal ráðningarsamningur fylgja tilkynningunni. Einnig ber að tilkynna um aðra erlenda starfsmenn til Útlendingastofnunar.

12.5.2006

1,3% atvinnuleysi í apríl

Í aprílmánuði síðastliðnum voru skráðir 42.226 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.112 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,5% í mars sl. og 2,3% í apríl 2005. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið muni lítið breytast og verða á bilinu 1,2-1,5% í maí. Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna en nú síðan í október 2001 og í einstökum aprílmánuði hefur það ekki mælst minna síðan í apríl árið 1988. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

11.5.2006

Vaxandi verðbólga alvarlegt áhyggjuefni

Vaxandi verðbólga sem endurspeglast í verðbólgumælingu Hagstofunnar er alvarlegt áhyggjuefni, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttavefinn Mbl.is. Hann hækkun vísitölu neysluverðs meiri en flestir höfðu vænst og að vegna mikillar kaupmáttaraukningar og eftirspurnarþrýstings taki markaðurinn við verðhækkunum. Gengisbreytingar komi því tiltölulega hratt fram í hækkun verðlags. Hannes segir að eftir mikla kaupmáttaraukningu að undanförnu myndu frekari launahækkanir aðeins virka sem olía á verðbólgubálið.

8.5.2006

SA og ASÍ semja um innleiðingu Evrópusamnings um fjarvinnu

SA og ASÍ hafa gert sérstakan kjarasamning um innleiðingu evrópsks rammasamnings um fjarvinnu. Samningurinn hefur að geyma ákvæði um upplýsingagjöf, vernd gagna, búnað, skipulag vinnunnar og fleira. Tekið er fram í samningnum að fjarvinna byggi á frjálsu vali viðkomandi starfsmanns og vinnuveitanda og að upptaka fjarvinnu hafi engin áhrif á stöðu fjarvinnustarfsmanns sem launamanns. Þá kveður samningurinn á um að höfnun starfsmanns á tilboði um fjarvinnu sé sem slík ekki gild ástæða fyrir uppsögn eða breytingu á ráðningarkjörum.

2.5.2006

Stækkun ESB dýrmæt „prufukeyrsla“ fyrir hnattvæðingu

Stækkun ESB hefur reynst nýju aðildarríkjunum gríðarlega dýrmæt en einnig haft mjög jákvæð áhrif á atvinnulífið í þeim eldri, skv. nýrri skýrslu Centre for European Reform. Forseti danska starfsgreinasambandsins segir stækkunina hafa verið eins konar „prufukeyrslu“ fyrir hnattvæðinguna. Fyrirtæki í Vestur-Evrópu hafi flutt vinnuaflsfrek störf til austurhluta álfunnar, sem hafi gert þeim kleift að viðhalda samkeppnishæfni sinni og skapa ný störf í staðinn á sviðum þróunar, rannsókna og hönnunar. Skýrslan var unnin fyrir danska starfsgreinasambandið og dönsku samtök iðnaðarins. Bæði samtökin og skýrsluhöfundar telja mikilvægt að flytja þessi skilaboð um jákvæð áhrif stækkunar, en í eldri aðildarríkjunum hafa verið ýmsar efasemdarraddir.

27.4.2006

SA lýsa undrun á frumvarpi um kjararáð

Í frumvarpi um kjararáð er ákvæði sem heimilar ráðinu að láta launabreytingar þjóðkjörinna manna, dómara og hæst settra embættismanna taka breytingum almennrar launavísitölu. SA lýsa í umsögn sinni undrun á þessu ákvæði frumvarpsins og minna á að  vísitölubinding launa olli miklu tjóni á efnahagslífi landsmanna áratugum saman og að það kostaði gríðarleg átök að afnema hana á níunda áratug síðustu aldar. Samtökin mótmæla þessari heimild frumvarpsins eindregið.

25.4.2006

Í okkar valdi að koma í veg fyrir langvinnt samdráttarskeið

„Stjórnvöld, bæði á vettvangi ríkis og sveitarfélaga, verða að endurskoða sín framkvæmdaáform og forgangsraða þeim með það að markmiði að auka trúverðugleika efnahagsstefnunnar,“ sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna. Hann sagði blikur á lofti í verðlagsmálum og að ástæða væri til að óttast langvinnt skeið samdráttar í efnahagslífinu ef verðbólgan næði að festast í sessi. Slík þróun væri þó fjarri því óhjákvæmileg og í okkar valdi að koma í veg fyrir hana.

12.4.2006

1,5% atvinnuleysi í mars

Í marsmánuði síðastliðnum voru skráðir 50.256 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.183 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,5% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,6% í febrúar en 2,6% í mars 2005. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið í apríl muni minnka og verða á bilinu 1,2%-1,5%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

6.4.2006

Örorkugreiðslur lífeyrissjóða: úr fimm milljörðum í tíu

Örorkulífeyrisgreiðslur lífeyrissjóða munu aukast verulega á komandi árum, m.a. vegna fjölgunar öryrkja og lækkandi aldurs þeirra. Þær voru 5 milljarðar króna 2005 en framreikningar benda til að þær aukist  í 8 milljarða 2015 og tæplega 10 milljarða 2025, þ.e. tvöfaldist á næstu tveimur áratugum. Örorkulífeyrisgreiðslur Tryggingastofnunar munu hins vegar aukast mun hægar, úr rúmum 10 milljörðum í 12 milljarða króna á sama tímabili. Tryggingastofnun greiðir nú 1,7 milljörðum króna lægri örorkubætur en ella vegna tekjutengingar við örorkugreiðslur lífeyrissjóða og mun sú tala hækka í 2,6 milljarða árið 2025.

4.4.2006

Íslenska lífeyriskerfið í umbreytingu

Samtök atvinnulífsins hafa gefið út Íslenska lífeyriskerfið í umbreytingu. Þar er í fyrsta sinn lagt mat á samspil almannatrygginga og lífeyrissjóða næstu áratugina en líkur eru á að smám saman verði hlutverk lífeyrissjóðanna yfirgnæfandi þegar kemur að greiðslu lífeyris í stað hins opinbera. Í skýrslunni er dregin upp mynd af framtíðarþróun íslenska lífeyriskerfisins og þeim áskorunum sem það stendur frammi fyrir. Til að varpa ljósi á þessar áskoranir gerðu SA könnun á tryggingafræðilegum uppgjörum 15 lífeyrissjóða. Um framreikning á lífeyrisgreiðslum næstu áratugi sá Bjarni Guðmundsson, tryggingastærðfræðingur.

4.4.2006

SA fagna bættu aðgengi að íslenskum vinnumarkaði

Ríkisstjórnin hefur samþykkt frumvarp félagsmálaráðherra varðandi aðgengi ríkisborgara átta nýrra aðildarríkja ESB að íslenskum vinnumarkaði frá og með 1. maí nk. Lagt er til að þeim verði heimilt að koma hingað til lands í atvinnuleit og ráða sig til starfa hér á landi án sérstakra atvinnuleyfa, en að atvinnurekendum beri að tilkynna Vinnumálastofnun um ráðningu þeirra innan tíu virkra daga og að ráðningarsamningur fylgi tilkynningunni. Samtök atvinnulífsins fagna afnámi kröfunnar um atvinnuleyfi fyrir þetta fólk, sem draga mun úr reglubyrði fyrirtækja og stuðla að betra jafnvægi á íslenskum vinnumarkaði, að ógleymdu því hagræði sem þetta mun hafa í för með sér fyrir viðkomandi starfsfólk. Sjá nánar um frumvarpið á vef félagsmálaráðuneytis.

20.3.2006

Könnun á horfum í atvinnulífi ber vott um þenslu

Niðurstöður úr nýrri könnun IMG Gallup á stöðu og framtíðarhorfum í atvinnulífinu bera vitni um þá miklu þenslu sem ríkir í efnahagslífinu um þessar mundir. Stjórnendur meta stöðu fyrirtækjanna góða og almenn tilhneiging er til þess að hagnaður og framlegð fyrirtækja fari vaxandi. Mikill skortur er á starfsfólki og víða eru áform um fjölgun þess. Fjárfestingarstig helst hátt. Að jafnaði telja stjórnendur að verðbólgan verði yfir þolmörkum Seðlabankans, launaskrið verði töluvert, gengi krónunnar muni síga og vextir Seðlabankans hækki verulega á árinu. Svör stjórnenda í sjávarútvegi skera sig nokkuð úr þar sem mat á stöðu og framtíðahorfum markast mjög af því hve hágengi krónunnar hefur kreppt að afkomu greinarinnar.

13.3.2006

1,6% atvinnuleysi í febrúar

Í febrúar sl. voru skráðir 46.704 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.338 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 1,6% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið einnig 1,6% í janúar sl. en 2,8% í febrúar 2005. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið breytist lítið í mars og verði á bilinu 1,4-1,7%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

6.3.2006

Um vinnutíma á Íslandi

Samanburður á vinnutíma milli landa er flókinn og nokkrir þættir valda mikilli bjögun upp á við í niðurstöðum mælinga á vinnutíma á Íslandi, að því er fram kemur í athugasemd frá SA sem birt er í Morgunblaðinu. Þessar bjaganir valda því að flestir standa í þeirri trú að vinnutími hér á landi sé almennt mun lengri en í nálægum löndum. Það er ekki rétt, þótt vissulega séu dæmi um langan vínnutíma í vissum atvinnugreinum og starfsstéttum. Þá hefur vinnutími fólks í fullu starfi verið að styttast hér á landi.

2.3.2006

Frjálsa för EES-borgara til Íslands frá 1. maí

Líklega býr ekkert ríki á EES-svæðinu við meiri þenslu á vinnumarkaði en Íslendingar og þar af leiðandi eru hvergi sterkari rök fyrir afnámi takmarkana á frjálsri för nýrra EES-borgara en hér á landi, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann minnir á að SA hafi í nóvember gengið frá samkomulagi um áframhald kjarasamninga í þeirri trú að þessum takmörkunum yrði aflétt í vor og segir samtökin treysta því að svo verði.

27.2.2006

Afnema ber takmarkanir á frjálsri för nýrra EES-borgara

Afnema ber takmarkanir á frjálsri för launafólks frá hinum nýju ríkjum ESB hingað til lands, segir Hannes G Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins. Hann segir að reynsla ríkja sem hafa leyft frjálsa för launafólks sé góð og nefnir í því sambandi Svíþjóð, England og Írland. Hannes á von á að íslensk stjórnvöld aflétti öllum takmörkunum á því að hingað komi fólk frá nýju ríkjunum í ESB og EES. Sjá nánar á vef RÚV.

13.2.2006

1,6% atvinnuleysi í janúar

Í janúar sl. voru alls skráðir 53.682 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.443 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysskrá í mánuðinum, eða 1,6% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,5% í desember sl. en 3,0% í janúar 2005. Að sögn Vinnumálastofnunar eru yfirleitt litlar breytingar á atvinnustigi milli janúar og febrúar. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

9.2.2006

Orka og ál: hátækni og góð störf

Virkjun raforku og álframleiðsla voru fyrstu hátæknigreinarnar í íslensku atvinnulífi og sumar af stærstu verkfræðistofum landsins er að finna innanhúss í orku- og álfyrirtækjum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í Morgunblaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar, forstöðumanns hjá SA. Hann bendir jafnframt á að störf í álverum séu almennt séð góð og vel launuð störf líkt og óvenju langur starfsaldur ber vitni og segir mál að linni þeim ofurneikvæðu ummælum sem iðulega eru látin falla í þessu sambandi um eðli og ágæti starfa við virkjanir og áliðnað.

8.2.2006

Evrópa og einstök ríki græða á frjálsri för launafólks

Aðgangur íbúa nýrra aðildarríkja ESB að vinnumarkaði eldri aðildarríkjanna hefur einkum haft þar jákvæð áhrif, en þó almennt séð minni áhrif en talið var, skv. nýrri skýrslu ESB. Starfsfólk frá nýjum aðildarríkjum ESB hefur lagt sitt af mörkum til bætts efnahags og til að draga úr skorti á starfsfólki. Flest aðildarríki ESB settu þó takmarkanir á vinnumarkaðsaðgang íbúa nýju aðildarríkjanna við stækkun árið 2004, en framkvæmdastjórnin hvetur þau til að skoða vandlega hvort þörf sé á að endurnýja þær takmarkanir í vor í ljósi þessarar góðu reynslu. Ísland setti jafnframt slíkar takmarkanir, sem ætla verður að verði ekki framlengdar í vor.

8.2.2006

Eru sveigjanleg starfslok valkostur?

Ráðstefna um sveigjanleg starfslok verður haldin í Salnum Kópavogi, fimmtudaginn 9. febrúar kl. 13:15-16:20. Öldrunarráð Íslands stendur fyrir ráðstefnunni í samvinnu við Samtök atvinnulífsins og fleiri. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Eru sveigjanleg starfslok valkostur?  Fjölbreytt erindi verða flutt á ráðstefnunni en hún er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Sjá nánar dagskrá ráðstefnunnar, (PDF-skjal).

2.2.2006

Kjarabætur teknar að láni

Í byrjun desember sl. gerði Reykjavíkurborg gamaldags verðbólgusamning í aðdraganda kosninga, nokkuð sem ekki hefur tíðkast í íslenskum stjórnmálum í tæpa tvo áratugi, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir samninginn hafa sett kjaramál annarra sveitarfélaga í uppnám og að viðbrögð launanefndar sveitarfélaga markist af því. Sveitarfélögin í heild séu hins vegar þegar rekin með halla og verði að slá lán fyrir hærri launagreiðslum. Óhugsandi sé að launagreiðendur hjá hinu opinbera ákveði hvaða launabreytingar gangi yfir samkeppnisgreinar atvinnulífsins.

30.1.2006

Samið til 2010

Samtök atvinnulífsins og Sjómannasamband Íslands hafa undirritað kjarasamninga um kaup og kjör háseta og þjónustufólks á m.s. Herjólfi sem gilda til ársloka 2010. Fá hóparnir sömu launabreytingar og samið hefur verið um við aðra hópa á kaupskipum í samningum sem gilda til ársloka 2007. Á árunum 2008 – 2010 eru hópunum tryggðar hliðstæðar launabreytingar og samið verður um í kjarasamningum við sambærilega starfshópa. 

30.1.2006

Ekki tilefni til endurskoðunar

Launanefnd sveitarfélaga hefur heimilað sveitarfélögum að hækka lægstu laun starfsmanna þeirra auk þess að hækka laun leikskólakennara að meðaltali um 12%. Í samtali við Morgunblaðið segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, að nú séu í gildi fjögurra ára samningar á almennum vinnumarkaði og tímabilið rétt hálfnað. Ekkert tilefni sé til að endurskoða launaliði bundinna samninga vegna atburða sem tengjast þeim ekki.

27.1.2006

Góð störf og mikill stöðugleiki í starfsmannahaldi

Góð og vel launuð störf og mikill stöðugleiki í starfsmannahaldi er meðal þess sem Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, fjallaði um í erindi sínu á Orkulindinni Ísland – ráðstefnu SA, SI og Samorku um gildi ál- og orkuframleiðslu. Meðalstarfsaldur hjá Alcan er þannig með því lengsta sem gerist, eða yfir 15 ár í árslok 2005. Veltuhraði starsfsmanna þar er einnig með því lægsta sem þekkist, eða 3,5 – 4% í áliðnaði árið 2004. Í samanburði er meðaltalið meðal félagsmanna ASÍ yfir 30%. Þá sagði Gylfi álverin í fararbroddi í öryggis- og aðbúnaðarmálum.

27.1.2006

Atvinnurekstur er forsenda byggðar

Atvinnulíf og atvinnurekstur er forsenda byggðar eða a.m.k. mikilvægasta undirstaða hennar. Ef engin fyrirtæki og engin starfsemi er til staðar, þá er engin forsenda fyrir byggð! Þetta sagði Guðmundur Páll Jónsson, bæjarstjóri Akranesskaupstaðar, í erindi sínu á Orkulindinni Ísland – ráðstefnu SA, SI og Samorku um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi. Hann fjallaði m.a. um nábýli Akraness við stóriðju á Grundartanga og jákvæð áhrif þessara fyrirtækja á íbúaþróun, aðra atvinnustarfsemi og menntun á Akranesi.

18.1.2006

1,5% atvinnuleysi í desember

Í desembermánuði sl. voru skráðir 50.843 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.317 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,5% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið einnig 1,5% í nóvember sl. en 2,7% í desember 2004. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi aukist nokkuð í janúar og verði á bilinu 1,5-1,8%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

10.1.2006

Skráning hafin á Orkulindina Ísland

Ráðstefna um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi fer fram á Hótel Nordica föstudaginn 27. janúar 2006. Ráðstefnan ber yfirskriftina Orkulindin Ísland, og er skráning hafin. Í pallborðsumræðum þar sem rætt verður um stöðu og horfur taka þátt, Björgólfur Thorsteinsson, formaður Landverndar, Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Norðuráli og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls. Sjá nánar.

5.1.2006

Takk fyrir ánægjulegan tíma

Ég hef haft ómælda ánægju af þessu starfi og vil að lokum þakka öllum aðildarfyrirtækjum samtakanna fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna að málefnum íslensks atvinnulífs á þessum skemmtilegu uppgangs og umbrotatímum, segir Ari Edwald, fráfarandi framkvæmdastjóri SA, m.a. í kveðjuleiðara í fréttabréfinu Af vettvangi. Ari hefur störf sem forstjóri 365 fjölmiðla þann 1. febrúar nk., en hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra SA frá stofnun samtakanna haustið 1999.

5.1.2006

Af kröfum um réttlætingu uppsagna

Rýmri uppsagnarréttur fyrirtækja er á dagskrá stjórnvalda í sumum fjölmennustu ríkjum Evrópu, en ósveigjanlegum vinnumarkaðsreglum er m.a. kennt um mikið atvinnuleysi og lítinn hagvöxt. Á sama tíma kemur iðulega fram krafa um það hérlendis að íslensk stjórnvöld dragi úr þeim sveigjanleika sem Íslendingar hafa í aðalatriðum borið gæfu til að viðhalda. Ákvörðun um að skylda vinnuveitanda til að réttlæta uppsögn hverju sinni væri því ákvörðun um grundvallarbreytingu á íslenskum vinnumarkaði, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hún segir að slík breyting gæti stuðlað að minni umsvifum í efnahagslífinu og lægra atvinnustigi í landinu.

5.1.2006

Hækkun framlags í Ábyrgðasjóð launa frá og með 1. janúar 2006

Ábyrgðasjóðsgjaldið var hækkað úr 0,04% í 0,10% um síðustu áramót, en gjaldið er innheimt með tryggingagjaldi. Sú hækkun kemur til vegna fjárhagsstöðu Ábyrgðasjóðs launa, en staða sjóðsins endurspeglar bæði fjölgun og stærð gjaldþrota.

5.1.2006

Orkulindin Ísland – ráðstefna um gildi ál- og orkuframleiðslu

Föstudaginn 27. janúar nk. munu Samorka, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins standa fyrir ráðstefnu á Hótel Nordica um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi. Fjallað verður um hagvöxt, umhverfismál, atvinnumál, þekkingariðnað, umhverfi starfsfólks, viðhorf almennings o.fl. Formaður Landverndar og fulltrúar Alcan, Alcoa, Hitaveitu Suðurnesja, Landsvirkjunar, Norðuráls og Orkuveitu Reykjavíkur munu ræða stöðu og horfur.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english