Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

26.9.2005

Leyfa á frjálsa för fólks nú þegar

Í samtali við Morgunblaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins, að hann telji rétt að afnema þegar í stað takmarkanir á frjálsri för fólks frá tíu aðildarríkjum ESB. Ríkin gerðust aðilar að ESB og EES þann 1. maí 2004 og að óbreyttu rennur út frestun á frjálsri för fólks frá þessum ríkjum þann 1. maí 2006. „Í ljósi aðstæðna sem nú blasa við, að ekkert er í spilunum um að spennuástand í samfélaginu breytist fram til 1. maí 2006 þegar frestuninni lýkur, sé ég engin efnisleg rök sem mæla með því að frestuninni sé við haldið,“ segir Ari.

21.9.2005

Stækkun ESB: Lítil áhrif á norrænan vinnumarkað

Þegar tíu ný ríki gerðust aðilar að ESB og EES 1. maí 2004 tóku flest fyrri aðildarríki upp tímabundnar takmarkanir á frjálsri för fólks frá flestum nýju aðildarríkjanna. Hér á Íslandi hafa gilt mun strangari reglur en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, sem setti engar takmarkanir. Ný skýrsla norrænu ráðherranefndarinnar sýnir að nýir EES-borgarar hafa komið til allra Norðurlandanna vegna atvinnu, langmest til Noregs, og alls staðar haft jákvæð áhrif á vinnumarkað og efnahagslíf. Strangar reglur hafa m.a. aukið eftirspurn eftir þjónustusamningum við fyrirtæki í nýju aðildarríkjunum.

14.9.2005

1,8% atvinnuleysi í ágúst

Í ágústmánuði sl. voru skráðir 65.550 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.851 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 1,8% atvinnuleysi. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,0% í júlí sl. og 2,9% í ágúst 2004. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi minnki enn í september og geti farið niður í allt að 1,6%, eða lægsta hlutfall á þessum árstíma síðan á árunum 1999 til 2001. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

8.9.2005

Uppskriftin að velgengni Norðurlanda á heimsvísu birt

Samtök atvinnurekenda á Norðurlöndum hafa búið til sameiginlega uppskrift að því hvernig Norðurlöndin geti tryggt áframhaldandi velgengni sína á heimsvísu. Uppskriftin er birt í skýrslunni The Nordic recipe for global success. Skýrslan fjallar um það hvernig Norðurlöndin geti brugðist við sífellt harðnandi alþjóðlegri samkeppni og í henni kemur fram að Norðurlandaþjóðirnar verði að sækja í sig veðrið, með því að bæta starfsumhverfi atvinnulífsins og efla menntun fólks enn frekar, ef takast eigi að tryggja velferð þjóðanna til framtíðar.

7.9.2005

Áhugi á ráðningum eldra fólks engin nýjung

Að undanförnu hafa sést fleiri auglýsingar eftir eldra starfsfólki en áður. Stjórnendur tíu stórra fyrirtækja sem SVÞ höfðu samband við sögðu það ekki vera neina nýja stefnu að leggja áherslu á ráðningu eldra starfsfólks enda hefðu menn löngu áttað sig á því að minni líkur eru til að þeir hætti eftir stuttan starfstíma heldur en þeir sem yngri eru. Þetta eru heldur engin ný sannindi fyrir SA, en fyrir rúmu ári síðan leiddi könnun samtakanna meðal aðildarfyrirtækja í ljós að 50 ára og eldri þættu mjög traustir starfskraftar.

1.9.2005

Samkeppnisstaða fyrirtækja aldrei verið verri

Raungengi krónunnar á mælikvarða verðlags er um þessar mundir hærra en nokkru sinni og er samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja verri en hún hefur verið frá upphafi þessara mælinga. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-framkvæmdastjóri SA, segir í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi að því fari fjarri að hagkerfið geti staðið undir núverandi gengi krónunnar. Gríðarlegur viðskiptahalli beri því órækt vitni. Hagnaður atvinnulífsins í heild hafi farið minnkandi samhliða hækkandi raungengi. Vissulega finnist ánægjulegar undantekningar í Kauphöllinni, en sá hagnaður eigi að stórum hluta rætur að rekja til starfsemi erlendis.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english