Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

18.3.2005

Ályktun iðnþings: stöðugleiki nauðsynlegur

Stöðugleika þarf til að samkeppnis- og útflutningsgreinar þrífist, segir í ályktun iðnþings Samtaka iðnaðarins. Þar segir að hátt gengi krónunnar, óhóflegur vaxtamunur, sífelld útþensla í ríkisrekstrinum og mjög hátt raungengi um þessar mundir valda því að framleiðslu- og þjónustufyrirtæki leggi upp laupana eða fari úr landi í stórum stíl. Kallað er eftir samstilltu átaki um efnahagslegan stöðugleika. Sjá nánar á vef SI.

18.3.2005

Kennaraverkfallið olli röskun á starfi hjá 30% foreldra

Rúm 30% foreldra grunnskólabarna segja kennaraverkfallið hafa valdið röskun í starfi hjá sér, skv. könnun Gallup fyrir Jafnréttisráð. Talsvert hærra hlutfall kvenna en karla varð fyrir röskun í starfi vegna verkfallsins, eða 37% á móti 27%. Munurinn er þó ekki tölfræðilega marktækur, en fjöldi svara takmarkaðist við fólk á vinnumarkaði með börn í grunnskóla. Rúm 11% foreldra segjast verða fyrir röskun í starfi vegna starfsdaga, vetrarfría o.s.frv.

17.3.2005

Kaupmáttur jókst um 1,4%, án húsnæðisliðar um 2,7%

Regluleg laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu að meðaltali um 5,3% á tímabilinu frá 4. ársfjórðungi 2003 til 4. ársfjórðungs 2004, skv. launakönnun Hagstofunnar. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 3,8%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 1,4%. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði hins vegar um 2,5% og jókst því kaupmáttur launa gagnvart vörum og þjónustu um 2,7%.  Laun kvenna hækkuðu um 6,3% en karla um 4,8%.

16.3.2005

Styrkir vegna starfsmenntunar

Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu. Í ár njóta forgangs umsóknir sem snúa að tækifærum miðaldra og eldra fólks til starfs-menntunar, og að yfirfærslu þekkingar og reynslu innan fyrirtækja og stofnana. Til úthlutunar eru 55 milljónir og umsóknarfrestur er til 18. mars. Sjá nánar á vef Starfsmenntaráðs.

13.3.2005

2,8% atvinnuleysi í febrúar

Í febrúar voru skráðir 83.077 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.155 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,8% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnu-leysið 3,0% í janúar sl. og 3,6% í febrúar 2004. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið minnki í mars. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

7.3.2005

Efla vitund um vinnustaði fatlaðra

Opnaður hefur verið nýr vefur Samtaka um vinnu- og verk-þjálfun, með stuðningi SA o.fl. Ætlunin með vefsíðunni er að efla vitund, skilning og virðingu almennings og fyrirtækja fyrir því starfi sem fram fer á vinnustöðum fatlaðra og hæfingar-stöðvum, kynna hlutverk þeirra, vörur og þjónustu, og stuðla þannig að fleiri og betri tækifærum, breyttum viðhorfum og betri framtíð í atvinnu- og endurhæfingarmálum fatlaðra einstaklinga. Sjá nýja vefinn, hlutverk.is.

6.3.2005

Starfsmenn í sama liði oft misverðmætir

Eðlilegar ástæður eru oftast fyrir launamun milli kvenna og karla í sambærilegu starfi segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í viðtali við Fréttablaðið. Í nýlegum fyrir-lestri notaði hún launamun atvinnumanna í knattspyrnu til að sýna fram á einstaklingsbundin viðmið við launaákvarðanir.

4.3.2005

Rangfærslur um ójöfnuð

Engin innistæða er fyrir fullyrðingum um vaxandi ójöfnuð á Íslandi yfir tíma og í alþjóðlegum samanburði, segir Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri SA í grein í Frétta-blaðinu. Í greininni skoðar Hannes gögn um tekjuskiptingu á Íslandi en í umræðu um efnahags- og kjaramál er iðulega staðhæft að ójöfnuður sé mikill í landinu og aukist stöðugt.

3.3.2005

Af erlendu starfsfólki og svartri atvinnustarfsemi

Það er að sjálfsögðu með öllu óþolandi fyrir heiðarleg fyrirtæki að þurfa að keppa við aðila sem fara framhjá lögum og reglum, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hún segir slíka starfsemi ekki eiga neinn rétt á sér og að hana beri að uppræta. Slík starfsemi megi hins vegar ekki verða til þess að kasta rýrð á þá útlendinga sem hér starfa á eðlilegum forsendum og þá vinnuveitendur sem nýta sér krafta erlends starfsfólks eftir löglegum leiðum.

3.3.2005

Garðabær sker sig úr

Sumarlokanir leikskóla valda víða óhagræði fyrir foreldra og fyrirtæki. Samtök atvinnulífsins hafa kannað hvernig þessu verður háttað hjá stærstu sveitarfélögunum. Í flestum þeirra loka leikskólar í tvær til fjórar vikur á mismunandi tímum. Sums staðar er boðið upp á einhver úrræði á borð við að einn leikskóli sé opinn. Garðabær sker sig hins vegar úr því þar loka engir leikskólar og foreldrar ráða því sjálfir hvenær börnin fara í frí.

2.3.2005

ESB: 2006 verði ár hreyfanleika á vinnumarkaði

Framkvæmdastjórn ESB áformar að lýsa árið 2006 ár hreyfan-leika á vinnumarkaði og stuðla þannig að því að fólk nýti sér í auknum mæli réttinn til að sækja sér vinnu í öðrum aðildar-ríkjum. Tilgangur þess er að auka skilvirkni á evrópskum vinnumarkaði og stuðla þannig að auknum hagvexti og þar með bættum lífskjörum.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english