Vinnumarkaðsmál
31.12.2005
Nýtum tækifærin
Undanfarin ár hafa Íslendingar verið að ná glæstum árangri í efnalegu tilliti, segir Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, m.a. í áramótaviðtali við Morgunblaðið. Hann segir vonir standa til að framhald verði á þessari þróun, en til að svo megi verða þurfi að halda vel um efnahagsstjórnina. Ingimundur fjallar um leiðir til þess að bæta lífskjör þjóðarinnar sem ekki síst séu í því fólgnar að skapa skilyrði til aukinnar hagræðingar, og nefnir m.a. aukið viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur í því sambandi með tilheyrandi verulegri lækkun á matvælaverði til neytenda. „Ekkert eitt atriði annað er nú líklegra til þess að stuðla að bættum lífskjörum hér á landi,“ segir Ingimundur.
31.12.2005
Fleiri verða að fylgja á eftir á sömu nótum
Laun embættismanna og þjóðkjörinna fulltrúa hækka um 2,5% og úrskurður Kjaradóms um u.þ.b. 8% hækkun sömu launa verður felldur úr gildi, nái frumvarp ríkisstjórnarinnar fram að ganga. Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, segist í samtali við Morgunblaðið fagna því að ríkisstjórnin skuli markvisst fylgja eftir þeirri afstöðu sinni að það verði að bregðast við þeirri keðjuverkun launahækkana sem hafi verið að byggjast upp undanfarnar vikur. „Fleiri verða að fylgja á eftir á sömu nótum og því verður fróðlegt að fylgjast með því hver framvindan verður á vettvangi sveitarfélaga í næsta mánuði,“ segir Ingimundur.
28.12.2005
Skýr skilaboð
Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, segir í samtali við Morgunblaðið, að SA séu sátt við viðbrögð forsætisráðherra við úrskurði Kjaradóms. „Í þessu felast skýr skilaboð um að stjórnvöld vilji sporna gegn þeirri keðjuverkun sem augljóslega var að byggjast upp að undanförnu í sambandi við launabreytingar. Ég vona að þetta verði skýr skilaboð inn í þá umræðu sem verður á vettvangi sveitarfélaganna um miðjan næsta mánuð," segir Ingimundur ennfremur.
22.12.2005
Fjarvistarsönnun fyrir hvaða ábyrgðarleysi sem er
Samtök atvinnulífsins lýsa furðu sinni á ákvörðun Kjaradóms um launahækkanir til æðstu embættismanna. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að ekkert það hafi gerst á almennum vinnumarkaði sem skapi forsendur fyrir þessari prósentuhækkun. „Við teljum að þetta sé um tvöföld hækkun á við það sem þar hefur verið að gerast,“ segir Ari og segir að þessi dómur verði ein allsherjar fjarvistarsönnun fyrir hvaða ábyrgðarleysi sem er í launaákvörðunum hjá hinu opinbera. Þá geti Kjaradómur geti ekki vikið sér undan ábyrgð á því að hann sé segja að hér eigi að vera 10% verðbólga.
19.12.2005
Pennastriksaðferð borgarstjóra
Innistæðulítil pennastrik stjórnmálamanna bæta ekki lífskjör almennings, segir í grein Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, í Morgunblaðinu. Þar fjallar hann m.a. um þá þróun að sveitarfélögin í landinu geri kostnaðarsamari kjarasamninga en bæði ríkið og almenni markaðurinn á meðan sveitarfélögin í heild séu rekin með tapi. Ari segir um viðbrögð borgarstjórans í Reykjavík við gagnrýni SA á þessa þróun að það sé dapurlegt að borgarstjóri treysti sér ekki í málefnalegar umræður um kjaraþróun og efnahagsmál, en haldi sig þess í stað við gamalkunnar lýðskrumsaðferðir.
19.12.2005
Er 30% launahækkun í lagi?
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í grein í Fréttablaðinu að meginástæður verðbólgunnar um þessar mundir séu miklar launahækkanir. Hann spyr því hvort 30% launahækkun, eins og Reykjavíkurborg samdi um í byrjun mánaðarins, sé í lagi. Hannes bendir á að ekki séu mörg dæmi um slíkar hækkanir í þróuðum ríkjum og segir að hörmungar verðbólguáranna á Íslandi virðist því miður vera gleymdar.
13.12.2005
1,5% atvinnuleysi í nóvember
Í nóvembermánuði síðastliðnum voru skráðir 49.348 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.247 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,5% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,4% í október sl., en 2,6% í nóvember 2004. Árstíðaleiðrétt er atvinnuleysið nú 1,6%. At mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið breytist lítið milli mánaða og verði á bilinu 1,4 – 1,7% í desember. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
9.12.2005
Fleiri framhaldsskólanemar ætla í framhaldsnám
Í nýrri könnun sem Rannsóknir og greining gerði fyrir menntamálaráðuneytið meðal framhaldsskólanema á Íslandi haustið 2004, kemur fram að mun fleiri framhaldsskólanemar hyggja á framhaldsnám eftir stúdentspróf nú en árið 2000. Bæði á það við um framhaldsnám í háskólum og í skólum sem ekki eru á háskólastigi. Nemendur á höfuðborgarsvæðinu telja tekjumöguleika sína besta þar eða í útlöndum. Landsbyggðarnemendur telja tekjumöguleika sína einnig mesta á höfuðborgarsvæðinu en þeir vilja þó síst búa þar. Meira þarf til að freista framhaldsskólanema frá námi í dag með góðu atvinnutilboði en árið 2000.
5.12.2005
Vélstjórar í fullu starfi fá 26.000 króna eingreiðslu
Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök atvinnulífsins og Vélstjórafélag Íslands hafa gert með sér samkomulag um breytingar á kjarasamningum aðilanna. Samkvæmt samkomulaginu greiðist sérstök eingreiðsla kr. 26.000 til vélstjóra sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sömu útgerð og eru í starfi síðustu viku í nóvember eða fyrstu viku desember. Vélstjórar sem ekki ná fullu starfsári fá greitt hlufallslega.
2.12.2005
Sjómenn í fullu starfi fá 26 þúsund króna eingreiðslu
Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök atvinnulífsins, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og Alþýðusamband Vestfjarða hafa gert með sér samkomulag um breytingar á kjarasamningum aðilanna með vísan til endurskoðunarákvæða þeirra.Samkvæmt samkomulaginu greiðist sérstök eingreiðsla kr. 26.000 til sjómanna sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sömu útgerð og eru í starfi síðustu viku í nóvember eða fyrstu viku desember. Sjómenn sem ekki ná fullu starfsári fá greitt hlutfallslega.










