Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

29.11.2005

Beinar greiðslur fyrirtækja í fræðslusjóði verkafólks

Í kjarasamningum vorið 2004 var samið um beinar greiðslur atvinnurekenda í fræðslusjóði verkafólks. Frá 1. janúar 2006 er gjaldið 0,05% af launum, en verður 0,15% frá 1. janúar 2007. Á samningssvæði Flóabandalagsins verður gjaldið innheimt af lífeyrissjóðum samhliða innheimtu annarra sjóðagjalda en á landsbyggðinni verður samið við lífeyrissjóði eða stéttarfélög um innheimtuna.

15.11.2005

Samkomulag SA og ASÍ um framhald kjarasamninga

Undirritað hefur verið samkomulag í nefnd SA og ASÍ um forsendur frá vorinu 2004. Aðilar eru sammála um að forsendur hafi ekki staðist. Niðurstaða nefndarinnar kveður m.a. á um 0,65% hækkun launa í janúar 2007 til viðbótar við umsamdar hækkanir samninga og 26.000 króna eingreiðslu í desember nk. Þá gerðu aðilar samkomulag um breytingar á atvinnuleysisbótum þar sem m.a. er kveðið á um tekjutengingu bóta að hluta. Samhliða þessu gaf Ríkisstjórn Íslands út yfirlýsingu  þar sem m.a. kemur fram að dregið skuli úr vaxandi örorkubyrði lífeyrissjóða, lögfestar breytingar á atvinnuleysisbótum, gert átak í starfsmenntamálum ófaglærðra og sett fram frumvarp til laga um starfsmannaleigur.

11.11.2005

1,4% atvinnuleysi í október

Í októbermánuði síðastliðnum voru skráðir 46.025 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.193 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,4% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,4% í september sl. en 2,7% í október 2004. Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna í einstökum mánuði síðan í október 2001. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

11.11.2005

Kaupmáttur launa jókst um 1,4% á almennum vinnumarkaði

Regluleg laun  hækkuðu að meðaltali um 5,4% á tímabilinu frá 3. ársfjórðungi 2004 til 3. ársfjórðungs 2005 í iðnaði, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, verslun og viðgerðarþjónustu. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 4,0%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 1,4% í þessum atvinnugreinum, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofu Íslands. Sjá nánar á vef Hagstofunnar

10.11.2005

Sveitarfélögin axla ekki hagstjórnarábyrgð

Sveitarfélögin hafa í heild ekki axlað hagstjórnarábyrgð með viðunandi hætti og að óbreyttu væri beinlínis óæskilegt frá sjónarhorni hagstjórnar að auka vægi sveitarfélaga í þjóðarbúskapnum, sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, m.a. í ræðu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga. Hann sagði tímabært að stefna að því að gera íslenskan vinnumarkað einsleitari með því að fella niður lögbundin forréttindi opinberra starfsmanna. Þá fjallaði Ingimundur m.a. um kosti einkaframkvæmdar á opinberri þjónustu og sagði mikil tækifæri vannýtt á því sviði af hálfu íslenskra sveitarfélaga.

9.11.2005

Umræður um launamun kynjanna

Í nýlegu fréttabréfi SN, sænsku samtaka atvinnulífsins, er því haldið fram að óútskýranlegur eða ómálefnalegur launamunur kynjanna sé goðsögn. Fjallað er um nýlega rannsókn Arbetsgiververket, vinnuveitendastofnunar ríkisins í Svíþjóð, þar sem 14,7% munur á heildarlaunum karla og kvenna er að mestu skýrður með þáttum á borð við vinnutíma, reynslu, eðli starfa og eðli verkefna. Eftir stendur 1,5% óútskýrður launamunur. Nýleg rannsókn SN skilaði svipuðum niðurstöðum, en þar voru rannsökuð gögn um launagreiðslur til 1,5 milljóna starfsmanna á almennum vinnumarkaði í Svíþjóð. Hér vakna hins vegar spurningar um ástæður t.d. þess að karlar séu oftar en konur í stjórnunarstöðum.

7.11.2005

Áhersla á hagnýta menntun fyrir atvinnulífið

Starfsmenntaverðlaunin árið 2005 voru afhent þann 4. nóvember, en þau hlutu að þessu sinni Landsvirkjun, stéttarfélagið Efling og Ingibjörg Hafstað. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin en það eru Mennt og Starfsmenntaráð sem standa fyrir afhendingu þeirra. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem þykja vinna framúrskarandi starf í starfsmenntun, hvort sem um er að ræða skóla, samtök, frumkvöðla eða fyrirtæki sem sinna vel fræðslumálum starfsmanna sinna.

3.11.2005

Uppsögn kjarasamninga?

Yfirlýsing miðstjórnar ASÍ, þess efnis að einsýnt þyki að koma muni til uppsagnar kjarasamninga, hlýtur að teljast með miklum ólíkindum ef horft er til stöðu viðræðna milli aðila og þróunar kaupmáttar í landinu, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir ekki um það deilt að forsenduákvæði kjarasamninga séu virk, en fjallar jafnframt m.a. um 60% hækkun á kaupmætti ráðstöfunartekna sl. 10 ár, erfiða stöðu samkeppnisgreina vegna firnasterks gengis krónunnar og ábyrgð stjórnvalda á því ástandi sem skapast hefur á íbúðalánamarkaði. Ari segir þær raddir nú heyrast meðal fyrirtækja að réttast væri að SA segðu upp kjarasamningum.

3.11.2005

Kaupmáttur launa aldrei verið hærri

Kaupmáttur launa hefur aldrei verið hærri en nú en hann hefur vaxið um 40% á tíu árum. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur á sama tíma vaxið um 60%, m.a. vegna skattalækkana. Hærri greiðslur atvinnurekenda til lífeyrissjóða, sem áhersla hefur verið lögð á í síðustu kjarasamningum, teljast ekki með í þessum mælingum. Loks stafa þrír fjórðu hlutar verðbólgu undanfarna tólf mánuði af hækkun fasteignaverðs. Ekki er með nokkru móti hægt að halda því fram að hallað hafi á félagsmenn verkalýðsfélaganna það sem af er samningstímanum þar sem kaupmáttur launa er í sögulegu hámarki hvernig sem á hann er litið.

3.11.2005

Viltu ráða háskólanema frá Austur-Evrópu?

Íslenskum fyrirtækjum stendur nú til boða að ráða til sín háskólastúdenta frá Austur-Evrópu. Það eru Aiesec, alþjóðleg samtök háskólastúdenta, sem hafa milligöngu um ráðningu þeirra undir merkjum verkefnisins EuroXperience en það hófst í upphafi ársins. Markmið Aiesec með verkefninu er að styðja við stækkun ESB frá 2004 með því að bæta tengslin milli austur og vesturhluta Evrópu. Ráðningartími er tveir til átján mánuðir og lágmarkslaun eru 130 þúsund krónur á mánuði.

1.11.2005

Lækkun á greiðslum í starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks

Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks hefur tekið í notkun nýjan vef þar sem er að finna margvíslegar upplýsingar um skyldur fyrirtækja gagnvart sjóðnum ásamt upplýsingum um rétt þeirra. Almennt borga fyrirtæki 0,15% af launum  verslunar- og skrifstofufólks í  sjóðinn en geta sótt um lækkun á framlaginu í 0,05% ef þau standa sig vel í starfsmenntamálum. Að auki geta þau sótt um styrki til sjóðsins. Sjóðurinn er eign Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Landssambands ísl. verzlunarmanna og Samtaka atvinnulífsins. Markmið sjóðsins er að auka hæfni og menntun verslunar- og skrifstofufólks, ásamt því að stuðla að auknu framboði af námi og námsefni sem svari þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma. Sjá nánar: www.starfsmennt.is.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english