Vinnumarkaðsmál
28.1.2005
Kynntar áherslur Starfsmenntaráðs
Árlegur opinn fundur Starfsmenntaráðs verður haldinn á Kaffi Reykjavík, Vesturgötu 2, þriðjudaginn 8. febrúar nk. kl. 12. Á fundinum verða kynntar áherslur við úthlutun úr starfs-menntasjóði árið 2005. Sjá nánar á vef Starfsmenntaráðs.
26.1.2005
Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis
Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Auglýst er eftir umsóknum um styrki í mannaskiptaverkefni Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar ESB. Umsóknarfrestur er til 11. febrúar 2005. Mennt veitir fyrirtækjum ráðgjöf og aðstoðar þau við gerð umsókna.
19.1.2005
Viðsnúningur á vinnumarkaði
Störfum fjölgaði um 2% á síðasta ársfjórðungi 2004, skv. vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar. Þetta er viðsnúningur frá ársfjórðungunum á undan þar sem könnunin mældi fækkun starfa. Hins vegar fækkaði starfandi fólki á árinu 2004 um 0,5% og því virðist sem framleiðni hafi aukist um 5-6% á árinu.
19.1.2005
2,7% atvinnuleysi í desember
Í desember voru skráðir 94.060 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.088 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 2,7% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,6% í nóvember sl. og 3,1% í desember 2003.
19.1.2005
Samið við skipstjórnarmenn á sanddæluskipum
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli SA og Félags skipstjórnarmanna um kaup og kjör skipstjórnarmanna á sanddæluskipum. Með samningnum eru tveir kjarasamningar (skipstjóra og stýrimanna) felldir saman í einn og tekið upp fastlaunakerfi. Felld voru niður ýmis gömul ákvæði og samningurinn aðlagaður að nýgerðum kjarasamningum skipstjórnarmanna á kaupskipum. Samninginn er að finna á kjarasamningavef SA.
8.1.2005
Hvaða forsendur standast ekki?
BHM halda því fram að forsendur standist ekki í samanburði SA á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna og fólks á almennum vinnumarkaði, en bera samt ekki á nokkurn hátt brigður á forsendur SA heldur tala um aðra hluti. Furðu sætir ef háskólamenn vilja ekki að borin séu saman epli og epli og engu er líkara en að upphrópun BHM sé ætlað að slá vitræna umræðu útaf borðinu.
6.1.2005
Erlent starfsfólk nauðsynlegt við stórframkvæmdir
Um það ríkir enginn ágreiningur að öllum fyrirtækjum sem hér starfa, innlendum sem erlendum, ber að virða íslensk lög og íslenska kjarasamninga, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir umræðuna að undanförnu hafa verið með ólíkindum á köflum og minnir á að framboð af hæfu fólki til ýmissa verkframkvæmda sé einfaldlega ekki nægjanlegt í landinu um þessar mundir.
6.1.2005
Tíu milljónir á mann
Umframréttur opinberra starfsmanna til ellilífeyris er ígildi 10 milljóna króna starfslokagreiðslu, samanborið við sjóðfélaga í Lífeyrissjóði verslunarmanna, sé miðað við 250 þúsund króna mánaðarlaun, 42 ára iðgjaldagreiðslur og 3,5% vexti. Ef miðað er við 500 þúsund króna mánaðarlaun eru umfram-réttindin ígildi 20 milljóna króna starfslokagreiðslu.
5.1.2005
Staðgreiðsla, persónuafsláttur, launabreytingar...
Um áramótin tóku gildi launabreytingar, breytingar á lífeyris-framlögum, breytingar á skatthlutföllum í staðgreiðslu, persónuafslætti o.fl. Þessar breytingar hafa verið teknar saman á aðgengilegan hátt á vinnumarkaðsvef SA, sem opinn er félagsmönnum. Sjá nánar á vinnumarkaðsvef SA.
5.1.2005
Samningar í Finnlandi – 1,8% hækkun á ári
Nýlega voru undirritaðir miðlægir samningar í Finnlandi sem gilda frá miðjum febrúar 2005 til loka september 2007, eða í 30,5 mánuði. Samningurinn tekur til 90% launamanna á almennum vinnumarkaði. Launahækkunin frá 1. mars 2005 er 2,5% og 2,1% frá 1. júní 2006. Launahækkun á samnings-tímanum (tvö og hálft ár) er samkvæmt því 4,6% eða 1,8% á ári að meðaltali.










