Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

28.9.2004

Ábyrgt atvinnulíf

Áherslur SA í umfjöllun sinni um samkeppnismál og stjórnar-hætti fyrirtækja hafa í öllum megindráttum verið þær nákvæm-lega sömu og systursamtaka SA í Svíþjóð, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í Morgunblaðsgrein. Hann segir það að sjálfsögðu markmið SA að vinna með stjórnvöldum að jákvæðri þróun mála á þessu sviði.

15.9.2004

Starfsmenntaverðlaunin 2004

Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs og Menntar árið 2004 hljóta Landsbanki Íslands í flokki fyrirtækja, Samtök verslunar og þjónustu og Viðskiptaháskólinn á Bifröst í flokki fræðsluaðila, og Janus endurhæfing í opnum flokki. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi starf á sviði starfsmenntunar. Sjá nánar á vef Menntar.

13.9.2004

FA: Óformlegt nám metið til eininga

Menntamálaráðuneytið hefur staðfest mat Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á 5 námsleiðum Mímis-símenntunar til eininga í framhaldsnámi. Á vegum FA er unnið að mati á fleiri námsleiðum, m.a. fagnámi fyrir verslunarfólk. Sjá nánar á vefsíðu FA, samstarfsvettvangs SA og ASÍ um fullorðins- og starfsmenntun á vinnumarkaði.

10.9.2004

2,9% atvinnuleysi í ágúst

Í ágústmánuði voru skráðir 98.011 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.452 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,9% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 3,0% í júlí sl. og 2,9% í ágúst 2003. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið minnki í september.

9.9.2004

Spennu mætt með erlendu starfsfólki

4% hagvöxtur ár eftir ár er langt umfram jafnaðarhagvöxt og því mun smám saman vaxa spenna á vinnumarkaði, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við Heim. Hann segir þessari spennu verða mætt með erlendu starfsfólki, ekki sé nægilegt framboð af starfsfólki til að standa undir þessum hagvexti hér á landi. Sjá nánar á vef Heims.

2.9.2004

Kjarastefnan hefur verið mörkuð

SA og stéttarfélögin hafa markað kjarastefnu á almenna vinnumarkaðnum til næstu fjögurra ára. Á þessu ári hafa samtökin þegar gert 101 sjálfstæðan kjarasamning sem samtals tekur til 62.500 launamanna. SA eiga eftir að gera kjarasamnina vegna 11.000 starfsmanna. Samningar SA ná yfir 95% hins almenna vinnumarkaðar, en hann nemur 75% af vinnumarkaðnum í heild. Ef samið er við eitt eða fleiri félög opinberra starfsmanna um meiri kostnaðarhækkanir getur það falið í sér ákvörðun um að brjóta á bak aftur þá launa-stefnu sem mótuð hefur verið á almennum vinnumarkaði, skapað óvissu, vaxandi verðbólgu og óstöðugleika. Það er sú staðreynd sem opinberir samningsaðilar standa frammi fyrir þegar þeir meta hvort þeir ætli að bera ábyrgð á nýrri kjarastefnu í landinu, með meiri launahækkunum.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english