Vinnumarkaðsmál
30.6.2004
Samið við múrara, pípulagningamenn, veggfóðrara og dúklagningamenn
Undirritaðir hafa verið kjarasamningar milli Samtaka atvinnulífsins og Múrarafélags Reykjavíkur, Múrarasambands Íslands, Sveinafélags pípulagningamanna og Félags veggfóðrara- og dúklagningasveina. Samningarnir gilda til ársloka 2007.
29.6.2004
Samið við vélstjóra í frystihúsum og verksmiðjum
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Vélstjórafélags Íslands vegna vélstjóra í frystihúsum og verksmiðjum. Samningurinn gildir til ársloka 2007.
22.6.2004
Samið við verkstjóra
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Verkstjórasambands Íslands. Samningurinn gildir til ársloka 2007. Samningurinn kveður á um 3,25% upphafshækkun frá 1. maí og er sambærilegur við aðra samninga sem SA hafa gert að undanförnu.
15.6.2004
3,3% atvinnuleysi í maí
Í maímánuði voru skráðir 102.875 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.900 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 3,3% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Samkvæmt því er atvinnuleysið á niðurleið en það mældist 3,5% í apríl sl. og 3,6% í maí árið 2003.
12.6.2004
Verðbólgan meiri en hægt er að sætta sig við
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir verðbólguna miklu meiri en hægt sé að sætta sig við, í samtali við Morgunblaðið. Hún ógni þó ekki kjarasamningum eins og er en forsendur samninganna koma til skoðunar í nóvember 2005. Hannes segir eðlilegt að endurskoða áform um stórauknar lánveitingar til húsnæðiskaupa og húsnæðis-bygginga.
10.6.2004
Lög á kjaradeilu fiskimanna á dagskrá ILO-þings
Afskipti ríkisvaldsins af kjaradeilu fiskimanna vorið 2001 voru til umræðu á þingi ILO, þ.e. hvort íslenska ríkið hefði brotið gegn samningsfrelsi aðila. Niðurstaða þingisins felur ekki í sér neinn alvarlegan áfellisdóm og lýtur fyrst og fremst að því að fara þurfi yfir framkvæmd kjarasamningaviðræðna fiskimanna og umgjörð þeirra.
9.6.2004
Laun hækkuðu um 1,5%, vísitala neysluverðs um 2,1%
Regluleg laun hækkuðu að meðaltali um 1,5% milli 1. árs-fjórðungs 2003 og 1. ársfjórðungs 2004, skv. launakönnun KRN, en vísitala neysluverðs hækkaði um 2,1%. Skv. því rýrnaði kaupmáttur launa að meðaltali um 0,6%, en á þessu tímabili fékk einungis lítill hluti launafólks hækkun skv. kjarasamningi og nýir kjarasamningar komu að mjög takmörkuðu leyti til framkvæmda á fyrsta ársfjórðungi.
3.6.2004
Skattalækkanir
Mikill stuðningur er við stefnumörkun stjórnvalda um lækkun skatta, segir










