Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

28.5.2004

Samið við bókagerðarmenn

Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Félags bókagerðarmanna. Samningurinn gildir til ársloka 2007. Almennar launahækkanir og hækkanir á lífeyrisframlögum eru þær sömu og í fyrri samningum SA. Þá eru kauptaxtar bókagerðarmanna færðir nær greiddum launum á svipaðan hátt og gert hefur verið í öðrum samningum.

28.5.2004

Samið við lyfjafræðinga

Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Lyfjafræðingafélags Íslands vegna apóteka. Samningurinn gildir til ársloka 2007. Samningurinn kveður á um 3,25% upphafshækkun frá 1. júní. Hækkanir á lífeyrisframlögum eru þær sömu og í fyrri samningum SA og samningsforsendur taka jafnframt mið af fyrri samningum.

19.5.2004

Skiptir aldur máli?

Lítil tengsl eru á milli vanda á vinnumarkaði og aldurs. Fátt bendir til að aldurinn skipti máli, en þá almennt séð fremur að hærri aldur sé til hagsbóta viðkomandi fremur en hitt. Þetta var niðurstaða Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðar-framkvæmdastjóra SA, í erindi á ráðstefnu um stöðu miðaldra fólks á vinnumarkaði.

17.5.2004

Samið við Alþýðusamband Austurlands

Undirritaður hefur verið sérkjarasamningur vegna vinnu í fiskimjölsverksmiðjum á Austurlandi. Samningurinn er hluti af aðalkjarasamningi Starfsgreinasambandsins og SA.

16.5.2004

Ráðstefna um stöðu miðaldra fólks á vinnumarkaði

Miðvikudaginn 19. maí stendur áhugahópur um atvinnumál miðaldra fólks fyrir ráðstefnu um stöðu þess fólks á vinnu-markaði, í samvinnu við SA o.fl. Ráðstefnan verður haldin í Kiwanishúsinu Engjateigi 11 og hefst kl. 13. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

13.5.2004

Kynnt úthlutun úr starfsmenntasjóði

Kynnt hefur verið úthlutun úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins til starfsmenntunar í atvinnulífinu, en alls var rúmum 55 milljónum króna úthlutað til 55 verkefna.  Meðal þeirra sem hlutu styrk voru SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu sem fengu kr. 2,5 milljónir til námsbrautar fyrir verslunarfólk. Sjá nánar á vef Starfsmenntaráðs.

12.5.2004

Samið við skipstjórnarmenn á kaupskipum

Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Félags skipstjórnarmanna um kaup og kjör skipstjóra og stýrimanna á kaupskipum í millilandasiglingum. Samningurinn gildir til ársloka 2007 og eru almennar launahækkanir, kjarabreytingar og samningsforsendur þær sömu og í fyrri samningum SA.

7.5.2004

Samið við vélstjóra vegna kaupskipa

Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Vélstjórafélags Íslands um kaup og kjör á kaupskipum. Samningurinn gildir til ársloka 2007. Almennar launahækkanir, hækkanir á lífeyrisframlögum og samningsforsendur eru þær sömu og í fyrri samningum SA.

6.5.2004

Samspil aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda

Þríhliða samskipti aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda eru enn mjög mikilvæg, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Eðlisbreyting hafi þó orðið á samskiptum þessara aðila. Kúvending efnahagsstefnu eða íhlutun í stjórn efnahagsmála séu sem betur fer ekki umræðuefni lengur í tengslum við gerð kjarasamninga.

4.5.2004

Fyrirtæki setja siðferðisleg viðmið á oddinn

Fyrirtæki leggja vaxandi áherslu á að skapa sér þá ímynd að þau setji siðferðisleg viðmið á oddinn. Öðru vísi njóti þau ekki trausts almennings, neytenda og mögulegs framtíðar-starfsfólks. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Görans Trogen, framkvæmdastjóra hjá sænsku samtökum atvinnu-lífsins, í erindi hans á aðalfundi SA.

4.5.2004

Skattar fyrirtækja verði ekki yfir 15%

Ef við viljum halda forystuhlut okkar á sviði skattamála eigum við að stefna að því að skattar á fyrirtæki verði ekki yfir 15% í framtíðinni, sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra í ræðu sinni á aðalfundi SA. Hann sagði SA gegna lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi og benti á hversu stóran þátt þau ásamt viðsemjendum eiga í þeim stöðugleika sem nú ríkir í atvinnulífi þjóðarinnar.

4.5.2004

Stöðugleiki mikilvægasta framlagið

Mikilvægasta framlag stjórnvalda til kjarasamningagerðar hefur undanfarinn rúman áratug verið fólgið í stöðugleika, sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna. Sagði hann áherslur í samskiptum aðila vinnumarkaðar við stjórnvöld hafa tekið miklum breytingum frá því árið 1990, þegar forsenda fyrir gerð kjarasamninga var, að aðilar vinnumarkaðarins tækju höndum saman við stjórnvöld um mótun nýrrar efnahagsstefnu.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english