Vinnumarkaðsmál
29.3.2004
Samningar við verkafólk samþykktir
Kjarasamningur SA við Flóabandalagið var samþykktur með 64,2% gegn 27,9% greiddra atkvæða. Kjarasamningur SA við Starfsgreinasambandið utan Flóa var samþykktur í öllum aðildarfélögum nema tveimur, á Höfn í Hornafirði og í Vestmannaeyjum. Í heildina voru 68,1% samþykkir samningnum en nei sögðu 29%.
26.3.2004
Kaupgjaldsskrá vegna verkafólks
Á kjaramálavef SA er að finna kaupgjaldsskrá SA vegna verkafólks sem gildir frá 1. mars 2004, verði samningar SA við Starfsgreinasambandið og Flóabandalagið samþykktir, sem skýrist mánudaginn 29. mars. Sjá nánar undir liðnum kaupgjaldsskrá á kjaramálasíðu SA. Starfsfólk SA svarar fyrirspurnum frá félagsmönnum og er þeim innan handar ef skýra þarf einstök ákvæði samninganna.
23.3.2004
Að efla traust almennings á atvinnulífinu
Göran Trogen, framkvæmdastjóri hjá sænsku samtökum atvinnulífsins verður gestur á aðalfundi SA, sem haldinn verður á Grand Hótel þriðjudaginn 4. maí nk. Þar mun Trogen flytja erindi um leiðir til þess að efla traust almennings á atvinnu-lífinu, en hann hefur gegnt lykilhlutverki í viðamiklu starfi sænsku samtaka atvinnulífsins í þessu skyni.
19.3.2004
Þróun símenntunar – ráðstefna 26. mars
Föstudaginn 26. mars standa Rannsóknaþjónusta HÍ, menntamálaráðuneytið, SA, ASÍ og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins fyrir ráðstefnu um þróun símenntunar á Íslandi og í Evrópu, aðgengi og fjármögnun. Ráðstefnan verður haldin í hátíðarsal HÍ og hana ávarpar hópur innlendra og erlendra sérfræðinga. Sjá nánar á vef Rannsóknaþjónustu HÍ.
16.3.2004
Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja
Verslunarráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöll Íslands hafa kynnt nýjar leiðbeiningar um starfshætti fyrirtækja sem hafa að markmiði að skýra hlutverk og störf stjórnarmanna og stjórnenda fyrirtækja á Íslandi. Með leiðbeiningunum er þessum aðilum auðveldað að rækja skyldur sínar um leið og hagur allra hluthafa í hlutafélögum er efldur. Sjá nánar á vef Verslunarráðs Íslands.
15.3.2004
3,6% atvinnuleysi í febrúar
Í febrúar voru skráðir 101.921 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 5.097 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 3,6% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Að mati Vinnumálastofnunar má gera ráð fyrir að atvinnuástandið batni lítilsháttar í mars.
12.3.2004
Erlent starfsfólk mikilvægt
Í ályktun iðnþings Samtaka iðnaðarins er m.a. fjallað um mikilvægan hlut erlends starfsfólks við stóriðjufram-kvæmdir, þörf á framleiðniaukningu, skort á vel menntuðu fólki á sviði iðn-, verk-, tækni- og raungreina, og skort á fjármagni til nýsköpunar.
7.3.2004
Samið við SGS og Flóa
Undirritaðir hafa verið kjarasamningar milli Samtaka atvinnulífsins annars vegar og Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins hins vegar. Samningarnir gilda til ársloka ársins 2007.
7.3.2004
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin hefur samþykkt yfirlýsingu vegna gerðar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, þar sem fjallað er um starfsmenntamál, lífeyrismál, atvinnuleysisbætur og tryggingagjald.
4.3.2004
Félagafrelsi starfsmanna og dómsvald Félagsdóms
Nýlegur dómur Hæstaréttar vekur upp aðkallandi spurningar um félagafrelsi starfsmanna og ekki síður um þörf á endur-skoðun dómsvalds Félagsdóms, en dómar hans eru endan-legir, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hún segir Hæstarétt af þeirri ástæðu hafa lagt dóm Félagsdóms til grundvallar bótaskyldu starfsmanna, en þar var því hafnað að félaga-frelsisákvæði stjórnarskrár hafi áhrif á túlkun forgangsréttar-ákvæða kjarasamninga. Niðurstaðan er því sú að þeim er jafnað til aðildarskyldu að félagi.
2.3.2004
Kjaraviðræður hjá sáttasemjara
Verslunarmenn hafa vísað kjaraviðræðum sínum við SA til ríkissáttasemjara, með vísan í að þær hafi tafist. Gera má ráð fyrir að hafnar verði viðræður við verslunarmenn og fleiri hópa á næstu dögum. Forgangsmál SA að sinni er að ljúka samningum við Starfsgreinasambandið og Flóabandalagið, þar sem lokið hefur verið gerð allra sérsamninga en nokkuð ber á milli um almennar launahækkanir, lífeyrismál o.fl.










