Vinnumarkaðsmál
27.2.2004
Stækkun EES: um 1% myndi hyggja á flutning
Eitt prósent íbúa væntanlegra aðildarríkja ESB og EES myndu hyggja á flutning til einhvers af núverandi aðildarríkjum á næstu fimm árum eftir stækkun, ef þeir hefðu frjálsan aðgang að vinnumarkaði ríkjanna, skv. könnun ESB. Reynslan segir að það yrðu færri í raun. ESB segir áhyggjur af miklum fólksflutn-ingum vegna stækkunarinnar ekki eiga við rök að styðjast.
27.2.2004
Kaupmáttur jókst um 2,5%
Á tímabilinu frá 4. ársfjórðungi 2002 til 4. ársfjórðungs 2003 hækkuðu regluleg laun að meðaltali um 5,1%. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,6%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 2,5%. Laun kvenna hækkuðu um 6,1% en karla um 4,7%. Sjá nánar í fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar.
25.2.2004
Einelti á vinnustað
Regnbogabörn hafa hafið samstarf við Brynju Bragadóttur, doktor í heilsusálfræði. Hún heimsækir m.a. vinnustaði og heldur fyrirlestra fyrir starfsfólk. Markmiðin eru m.a. að upplýsa fólk um eðli og einkenni eineltis, og hjálpa fólki að taka á vandanum. Sjá nánar á vef Regnbogabarna.
24.2.2004
Auðvelda leit erlendra samstarfsaðila í starfsmenntum
Landsskrifstofa Leonardó og Mennt eru að undirbúa upp-setningu gagnabanka um íslenska aðila sem hafa áhuga á evrópsku samstarfi undir merkjum Leonardó starfsmennta-áætlunar ESB. Tilgangurinn er að flýta fyrir leit íslenskra sem erlendra aðila að samstarfsaðilum. Sjá nánar á vef Menntar.
20.2.2004
Löng leið erlends starfsfólks
Á málþingi Alþjóðahúss, SA o.fl. um mannauð innflytjenda fjallaði
18.2.2004
Vísað til sáttasemjara
Samkomulag hefur náðst um það milli Samtaka atvinnulífsins annars vegar og Starfsgreinasambandsins og Flóabanda-lagsins hins vegar, að vísa kjaraviðræðum aðilanna til ríkissáttasemjara, í því skyni að koma viðræðunum um þá liði sem ekki hafa verið afgreiddir í ákveðnari farveg og skerpa á þeim.
18.2.2004
Danmörk: hálf milljón vill ekki vinna
Einungis fjórðungur Dana á aldrinum 30-66 ára sem ekki eru í vinnu vilja fá vinnu. Samkvæmt könnun dönsku hagstofunnar eru 656.000 Danir á aldrinum 30-66 ára ekki í vinnu. Af þeim vilja hins vegar einungis 147.000 fá vinnu, eða 22%. Áhuginn á að fá vinnu fer lækkandi með hækkandi aldri.
13.2.2004
3,7% atvinnuleysi í janúar
Í janúar sl. voru skráðir 111.880 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 5.088 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 3,7% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Atvinnu-leysið jókst úr 3,1% frá desember, en var ívið minna en í janúar 2003, þegar það var 3,8%.










