Vinnumarkaðsmál
31.12.2004
Ár landvinninga í atvinnulífinu
Árið 2004 einkennist af góðum árangri íslensks atvinnulífs og samfélagsins alls í efnalegu tilliti og eftirtektarverðum land-vinningum einstakra fyrirtækja, segir
30.12.2004
Kaupgjaldsskrá fyrir 2005
Á kjaramálavef SA er að finna kaupgjaldsskrá SA, heildar-útgáfu, sem gildir frá 1. janúar 2005. Starfsfólk SA svarar fyrirspurnum frá félagsmönnum og er þeim innan handar ef skýra þarf einstök ákvæði samninganna. Sjá nánar undir liðnum kaupgjaldsskrá á kjaramálasíðu SA.
23.12.2004
Launakönnun KRN til Hagstofunnar
Kjararannsóknarnefnd og Hagstofa Íslands hafa gert með sér samstarfssamning um launakannanir og aðrar vinnumarkaðs-rannsóknir. Frá og með 1. janúar 2005 verður launakönnun Kjararannsóknarnefndar framkvæmd af Hagstofu Íslands og hættir nefndin skrifstofurekstri frá þeim tíma.
17.12.2004
Laga þarf félagslega kerfið í ESB að nútímanum
„Án vaxtar, án atvinnusköpunar, án kraftmeira hagkerfis getum við ekki viðhaldið því háa stigi almannatrygginga, félagslegrar verndar... og umhverfisverndar sem við köllum evrópska módelið“ segir Manuel Barroso, nýr forseti framkvæmdastjórnar ESB. Hann segir nauðsynlegt að nútímavæða hið félagslega kerfi aðildarríkjanna.
13.12.2004
Stefnt að aldurstengdu réttindakerfi hjá lífeyrissjóðunum
SA og ASÍ undirrituðu á dögunum samkomulag um framtíðar-skipulag lífeyriskerfisins og um ráðstöfun á 1% viðbótar-framlagi atvinnurekenda um næstu áramót. Stefnt er að því að tekin verði upp aldurstengd réttindaávinnsla í þeim sjóðum sem ekki eru þegar með slíkt kerfi og að þeir lífeyrissjóðir sem vilja eða þurfa að breyta réttindaávinnslukerfi sínu geti gert það samtímis.
12.12.2004
2,6% atvinnuleysi í nóvember
Í nóvember voru skráðir 85.377 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.885 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 2,6% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,7% í október sl. en 3,0% í nóvember í fyrra. Mikil eftirspurn er eftir iðnmenntuðu fólki.
9.12.2004
Samið við bankamenn
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Sambands íslenskra bankamanna og Samtaka atvinnulífsins og gildir hann til 1. október 2008. Samningurinn er nokkuð öðru vísi uppbyggður en aðrir helstu samningar sem gerðir hafa verið á almennum vinnumarkaði á þessu ári, þar sem fyrst og fremst er um að ræða beinar launabreytingar.
2.12.2004
Af samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja
SA fagna umræðu um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja hér á landi, en hún hefur verið nokkuð fyrirferðarmikil á Evrópu-vettvangi. Í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi minnir Ari Edwald framkvæmdastjóri samtakanna þó á að meginhlutverk fyrirtækja sé að skapa verðmæti og bera arð, en það er jú forsenda almennrar velferðar. Samkeppnishæf starfsskilyrði atvinnulífsins séu mikilvægari en nokkru sinni fyrr nú á tímum hnattvæðingar.
2.12.2004
Hreyfing á vinnumarkaði
Þó nokkur fjölgun starfa virðist framundan á vinnumarkaði, skv. niðurstöðum könnunar SA á ráðningaráformum fyrirtækja. 19% fyrirtækja hyggjast fjölga hjá sér starfsfólki næstu 3-4 mánuði en 7% hyggjast fækka því. Meiri fjölgun virðist fram-undan á höfuðborgarsvæði en á landsbyggðinni. Fyrirtæki í nær öllum greinum boða fjölgun starfsfólks, nema fyrirtæki í útgerð sem boða lítils háttar fækkun.










