Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

30.11.2004

Allt að 1.800 ný atvinnuleyfi

Á næstu þremur árum mun þurfa að gefa út á bilinu 1.300 til 1.800 atvinnuleyfi vegna fyrirhugaðra stóriðju- og virkjana-framkvæmda, að öllum líkindum frekar þó í hærri kantinum. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu Vinnumálastofnunar um mannaflaþörf við stóriðju- og virkjanaframkvæmdir á árunum 2005 til 2007.

29.11.2004

Desemberuppbót

Starfsmenn sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sama fyrirtæki og eru við störf í fyrirtækinu síðustu viku í nóvember eða í fyrstu viku desember skulu eigi síðar en 15. desember fá greidda sérstaka eingreiðslu, desemberuppbót, sem er kr. 38.500 hjá flestum starfsgreinum nema verslunarmönnum, en þar hefur uppbótin verið ákveðin kr. 43.700. Sjá nánar á vinnumarkaðsvef SA.

23.11.2004

Stór hópur án framhaldsmenntunar

Ef skoðaðir eru 22 ára og yngri, miðað við árið 2000, kemur í ljós að hér á landi höfðu 55% lokið framhaldsskóla, en meðal-talið innan EES voru 75%. Hæst var hlutfallið hins vegar í Noregi, tæp 97%. Þetta kom fram í ávarpi Gústafs Adolfs Skúlasonar, formanns stjórnar Fræðslumiðstöðvar atvinnu-lífsins, á ársfundi hennar.

17.11.2004

FA semur við símenntunarmiðstöðvarnar

Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Fræðslu-miðstöðvar atvinnulífsins og símenntunarmiðstöðvanna á landsbyggðinni, sem ætlað er að stuðla að því að fólk á vinnumarkaði með litla grunnmenntun fái betri tækifæri til að afla sér menntunar. Aðilar munu m.a. byggja upp sameigin-legt gæðakerfi með það að markmiði að votta gæði fræðslu-aðila utan hins hefðbundna skólakerfis. Sjá nánar á vefsíðu FA.

16.11.2004

Kaupmáttur jókst um 1,3%

Regluleg laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu að meðal- tali  um 4,9% milli 3. ársfjórðungs 2003 og 3. ársfjórðungs 2004. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 3,6%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 1,3%. Laun kvenna hækkuðu um 5,9% en karla um 4,5%. Laun á höfuðborgarsvæði hækkuðu um 4,8% en laun utan höfuðborgarsvæðis um 5,2%. Sjá nánar í fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar.

15.11.2004

Kjaraviðræðum við blaðamenn frestað

Samkomulag hefur náðst um að fresta kjaraviðræðum við blaðamenn til haustsins 2005 og muni friðarskylda gilda til 20. nóvember 2005. Í tengslum við undirritun nýrrar viðræðu-áætlunar þess efnis hefur m.a. orðið að samkomulagi að laun blaðamanna hækki um 3,0% frá og með 1. nóvember 2004 og breyting verði á greiðslum í lífeyrissjóð 1. janúar 2005 eins og hjá þeim starfsstéttum sem samið hefur verið við á árinu.

14.11.2004

2,7% atvinnuleysi í október

Í októbermánuði voru skráðir 81.459 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.880 manns hafi að meðal-tali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,7% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,6% í september sl. og 2,8% í október 2003. Að mati Vinnumála-stofnunar er líklegt að atvinnuleysið aukist lítils háttar í nóvember og verði 2,7-3,0%.

11.11.2004

Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 23. nóv.

Þriðjudaginn 23. nóvember verður haldinn fyrsti ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á hótel Nordica. Fjallað verður um raunfærnimat og er það jafnframt þema veglegs ársrits FA sem dreift verður á fundinum. Meðal ræðumanna verða Jón Björnsson forstjóri Haga hf. og Jón Sigurðsson bankastjóri Seðlabanka Íslands. Sjá nánar á vefsíðu FA.

11.11.2004

Þrýstingur vex á að flytja starfsemi úr landi

Forsvarsmenn breskra fyrirtækja segja þrýsting fara vaxandi í þá veru að hluti starfseminnar verði færður úr landi þangað sem launakostnaður er lægri og reglubyrði minni. Á móti kemur að önnur störf skapast innan Bretlands sem krefjast sérhæfingar og því mun þessi þróun stuðla að aukinni framleiðni, arðsemi og hagvexti, að mati fyrirtækjastjórnenda.

4.11.2004

Stefnir í mikla framleiðniaukningu

Undanfarin misseri hefur starfandi fólki fækkað á vinnu- markaði samfara miklum hagvexti þannig að nú stefnir í 6% framleiðniaukningu í ár. Þótt fækkun starfa sé áhyggjuefni þá er þessi mikla framleiðniaukning mjög ánægjuleg tíðindi. Kröftugur framleiðnivöxtur er lífsnauðsynlegur, ekki síst í heimi hnattvæðingar, þar sem samkeppni milli ríkja fer sífellt harðnandi. Aukin skilvirkni eykur arðsemi fyrirtækja og leiðir til aukinna fjárfestinga sem aftur skapa ný störf.

2.11.2004

Mótframlag í lífeyrissjóð í 7% um áramót

Um næstkomandi áramót mun mótframlag vinnuveitenda í samtryggingarsjóði lífeyrissjóða hækka úr 6% í 7% skv. flestum þeim kjarasamningum sem Samtök atvinnulífsins hafa gert við viðsemjendur sína. Á sama tíma fellur niður skylda vinnuveitanda til að greiða 1% fast framlag í séreignarsjóð, án framlags starfsmanns.

1.11.2004

Aukið frelsi í þjónustuviðskiptum

ESB hyggst auka frelsi í þjónustuviðskiptum, sem þegar er til staðar í orði en ekki alltaf á borði, m.a. með því að festa í sessi gagnkvæma viðurkenningu á lögum og reglum á því sviði og draga þannig úr skriffinsku. Leyfi í einu landi verður leyfi í þeim öllum. Ástæða er til að taka fram að tilskipunin mun engin áhrif hafa á kjör erlends starfsfólks hér á landi, sem áfram verða skv. íslenskum lögum og kjarasamningum.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english