Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

30.10.2004

Samið við fiskimenn

Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli sjómanna og útvegsmanna. Að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, fram-kvæmdastjóra LÍÚ, er samningurinn skref inn í framtíðina og þótt samningurinn kosti útvegsmenn talsverða fjármuni, skapist með honum möguleikar á hagræðingu sem eigi að geta skilað báðum aðilum meiri tekjum.

18.10.2004

Samningaleiðin skilar varanlegri árangri

Stéttir á almennum vinnumarkaði hafa almennt verið að beita verkfallsvopninu af mikilli varkárni, enda hafa þær lært af langri og oft allbiturri reynslu og vita að þegar upp er staðið skilar samningaleiðin varanlegri árangri, sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, m.a. í erindi á fundi Frjálshyggju-félagsins um verkföll. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að menn virtu leikreglur í verkföllum.

13.10.2004

Kaupmáttur jókst um 0,7%

Regluleg laun hækkuðu að meðaltali um 4,0% milli 2. árs-fjórðungs 2003 og 2. ársfjórðungs 2004, skv. launakönnun Kjararannsóknarnefndar. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 3,3% og samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 0,7%. Þessi niðurstaða markast nokkuð af því að verslunarmenn og iðnaðarmenn fengu launahækkanir á miðjum fjórðungnum skv. nýgerðum kjarasamningum, en kjarasamningar verkafólks voru að fullu komnir til framkvæmda þegar þessi mæling var gerð.

12.10.2004

2,6% atvinnuleysi í september

Í septembermánuði  voru skráðir 85.538 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.891 manns hafi að meðal-tali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,6% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,9% í ágúst sl. og 2,7% í september 2003. Að mati Vinnumála-stofnunar er líklegt að atvinnuleysið aukist heldur í október og verði á bilinu 2,6-2,9%.

11.10.2004

Kaupmáttur lágmarkslauna aldrei verið meiri

Í samningunum síðastliðið vor hækkuðu lágmarkslaun í 100.000 kr. á mánuði. Kaupmáttur lágmarkslauna hefur aldrei verið meiri en á þessu ári og var nú í september 70% meiri en hann var fyrir áratug, í ársbyrjun 1995. Kaupmáttur lágmarkslaunanna hefur aukist tæplega tvöfalt meira en kaupmáttur almennra launa skv. launavísitölu Hagstofu Íslands, sem hefur aukist um 38% á sama tíma.

8.10.2004

Forsendur stöðugleika í íslensku efnahagslífi

Í erindi á kynningarfundi Impregilo um áhrif stórframkvæmda á Austurlandi á íslenskt efnahagslíf fjallaði Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, um forsendur þess að það tækist að viðhalda efnahagsstöðugleika á næstu árum. Sagði hann mikilvægustu aðgerðina gegn ofþenslu á vinnumarkaði vera lipra og snurðulausa útgáfu atvinnuleyfa og vakti athygli á að hlutfall erlends starfsfólks við þessar framkvæmdir hefur hingað til verið mun hærra en spár hafa gert ráð fyrir.

7.10.2004

Fjárlagafrumvarp og stöðugleiki

Fjárlagafrumvarp ársins 2005 hljóðar upp á 8% aukningu ríkisútgjalda frá frumvarpi síðasta árs, eða 3,5% raunvöxt, og ekki að sjá að frumvarpið markist af miklu átaki til að sporna gegn ofþenslu sem það þyrfti að gera, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara frétta-bréfsins Af vettvangi. Hann segir greiðan aðgang erlends starfsfólks að íslenskum vinnumarkaði gríðarlega mikilvægan á næstu misserum í þessu sama skyni.

7.10.2004

Sameiginleg sýn á félagslega ábyrgð fyrirtækja

Í lokaskýrslu til framkvæmdastjórnar ESB hefur víðtækur samráðsvettvangur atvinnurekenda, verkalýðshreyfingar o.fl. hagsmunaaðila komið sér saman um helstu skilgreiningar í umræðunni um félagslega ábyrgð fyrirtækja, þ.e. þær skuldbindingar sem fyrirtæki kjósa að taka á sig gagnvart starfsfólki, umhverfi og viðskiptavinum umfram það sem kveðið er á um í kjarasamningum, lögum eða reglugerðum.

7.10.2004

Uppfærðir kjarasamningar á vef SA

Á vinnumarkaðsvef SA, sem opinn er félagsmönnum, er nú að finna uppfærða nokkra af helstu heildarkjarasamningum SA með þeim breytingum sem orðið hafa árið 2004. Samningar þessir hafi einnig verið prentaðir og sendir félagsmönnum. Sjá nánar á vinnumarkaðsvefnum.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english