Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumarkaðsmál

29.9.2003

Stytting náms til stúdentsprófs

SA fagna því að hreyfing sé að komast á styttingu náms til stúdentsprófs, sem verið hefur eitt helsta stefnumál samtakanna í menntamálum. Mikið þjóðhagslegt hagræði yrði af slíkri breytingu og hagsmunir atvinnulífsins af sumarvinnu skólafólks standa ekki í vegi fyrir lengingu skólaársins í þessu skyni, sé það gert fyrri hluta sumars.

25.9.2003

Frakkar hætta við styttingu vinnuvikunnar

Frakkar hyggjast breyta nokkurra ára gömlum lögum sem kveða á um 35 klst. vinnuviku. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun telja 67% þjóðarinnar að lögin hafi ekki náð meginmarkmiði sínu, að draga úr atvinnuleysi. Þá töldu svarendur að löggjöfin væri fyrirtækjum erfið og þvingaði þau jafnvel til að flytja starfsemi úr landi.

19.9.2003

Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl.

Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Ertu í samstarfi við aðra evrópska aðila í starfsmenntamálum? Lands-skrifstofa Leonardó á Íslandi lýsir eftir umsóknum um styrki í mannaskipta- og tilraunaverkefni Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar ESB. Umsóknarfrestur er til 3. október 2003.

17.9.2003

Kaupmáttur jókst um 3,2%

Á tímabilinu frá 2. ársfjórðungi 2002 til 2. ársfjórðungs 2003 hækkuðu regluleg laun að meðaltali um 5,2%, samkvæmt niðurstöðum launakönnunar Kjararannsóknar-nefndar (KRN). Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,0% og samkvæmt því jókst kaupmáttur að meðaltali um 3,2%. Sjá nánar í fréttabréfi KRN.

15.9.2003

Vaxandi hlutfall langtíma atvinnuleysis

Í lok ágúst höfðu 1.493 einstaklingar verið á atvinnu-leysisskrá í 6 mánuði eða lengur, eða 32,8% af heildarfjölda atvinnulausra.  Þetta hlutfall var 24,4% í lok ágúst 2002. Sjá nánar á heimasíðu Hagstofunnar.

12.9.2003

Starfsmenntaverðlaunin til Eimskips, Eftirmenntunar vélstjóra og Verkmenntaskólans á Akureyri

Starfsmenntaverðlaunin í ár hljóta Eimskip í flokki fyrirtækja, Eftirmenntun vélstjóra í flokki skóla og fræðsluaðila og Verkmenntaskólinn á Akureyri í opnum flokki.

8.9.2003

Vika símenntunar hafin

Vika símenntunar verður haldin dagana 7.-13. september. Málþing, sérstakur símenntadagur í fyrirtækjum o.fl. er meðal þess sem verður á döfinni, en þema vikunnar að þessu sinni er „fjarnám og aðrar óhefðbundnar leiðir til náms.“ Sjá nánar á heimasíðu vikunnar.

4.9.2003

Bætt réttaröryggi fólks og fyrirtækja

Setja þarf samræmdar og skýrar framkvæmdarreglur fyrir þær stjórnvaldsstofnanir sem einhverra hluta vegna telja sig þurfa að sækja gögn inn á heimili fólks eða í fyrirtæki. Þetta er niðurstaða danskrar réttaröryggisnefndar sem danski dómsmálaráðherrann hefur gert að sinni.

2.9.2003

Ábyrgð nýs rekstraraðila gagnvart starfsmönnum

Við kaup á fyrirtæki eða hluta þess og samruna fyrirtækja geta starfsmenn átt rétt á að flytjast yfir til hins nýja rekstraraðila með óbreyttum kjörum og nýji rekstraraðilinn jafnvel verið ábyrgur fyrir ógreiddum launaskuldum fyrri vinnuveitanda gagnvart þeim starfsmönnum sem hefja störf hjá honum.
RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english