Vinnumarkaðsmál
31.1.2003
3,6% atvinnuleysi
Í dag, föstudaginn 31. janúar eru 5.915 einstaklingar á atvinnuleysisskrá opinberra vinnumiðlana. Miðað við fjölda starfandi skv. vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar í nóvember sl. nemur þessi fjöldi 3,6% af mannafla. Þetta er fjölgun um 142 manns á einni viku.
30.1.2003
Hverjir eru atvinnulausir?
Með versnandi atvinnuástandi og vaxandi atvinnuleysi eykst þörf fyrir tölulegar upplýsingar um atvinnuleysi og samsetningu þess. Samtök atvinnulífsins hafa skoðað tölur um atvinnuleysi eftir menntun.
24.1.2003
3,6% atvinnuleysi
Í dag, föstudaginn 24. janúar eru 5.773 einstaklingar á atvinnuleysisskrá. Miðað við fjölda starfandi skv. vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar í nóvember sl. nemur þessi fjöldi 3,6% af mannafla. Þetta er fjölgun um 129 manns á einni viku, eða sem nemur 0,1% af mannafla.
22.1.2003
Enn meiri launahækkanir í opinbera geiranum
Laun opinberra starfsmanna og bankamanna hækkuðu að meðaltali um 7,3% á 4. ársfjórðungi 2002 árs miðað við sama tíma árið 2001. Á almennum markaði hækkuðu laun á sama tíma um 4,6%. Í heild hækkaði launavísitala Hagstofunnar um 5,8%.
21.1.2003
Heimilt að skoða tölvupóst, ef farið er varlega
Lögmætir hagsmunir geta heimilað fyrirtækjum að skoða tölvupóst starfsmanna. Hins vegar þarf slík vöktun að vera gerð í skýrum og málefnalegum tilgangi, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í samtali við Morgunblaðið. Hún segir reglur fullnægjandi hérlendis.
17.1.2003
Vinnumálastofnun spáir 3,5-3,9% atvinnuleysi
Í desember voru að meðaltali 4.483 á atvinnuleysisskrá, sem jafngildir 3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði skv. skýrslu Vinnumálastofnunar. Stofnunin spáir 3,5-3,9% atvinnuleysi í janúar.
9.1.2003
Fyrirtæki hyggjast fækka fólki
Að meðaltali hyggjast fyrirtæki fækka starfsfólki um 1,55% á næstunni, samkvæmt könnun SA. Þetta er talsvert hærri tala en mælst hefur að undanförnu. Einkum hyggjast stærri fyrirtæki fækka fólki. Hlutfallslega er mest fækkun framundan í sjávarútvegi og meiri á landsbyggð en á höfuðborgarsvæði.
9.1.2003
Vinnuframlag eldra starfsfólks meira metið?
Forsvarsmenn 35% fyrirtækja telja eldra starfsfólk verðmætara en það yngra. Flestir, eða 62%, telja það jafn verðmætt en 3% telja það ekki eins verðmætt. Eldra fólkið þykir verðmætast meðal smæstu fyrirtækjanna, en minni munur er á milli starfsgreina.
9.1.2003
Mikil aukning á viðbótarsparnaði árið 2002
Viðbótar lífeyrissparnaður jókst mikið á síðasta ári skv. úrvinnslu SA á gögnum Kjararannsóknarnefndar. Mest var aukningin hjá verkafólki, þar sem sparnaður var minnstur fyrir, í kjölfar þess að helmingur mótframlags vinnuveitenda var festur. Samkvæmt úttektinni taka þrír af hverjum fjórum þátt í viðbótar lífeyrissparnaði.

8.1.2003
Ný lög um atvinnuréttindi útlendinga
Um áramót tóku gildi ný lög um atvinnuréttindi útlendinga. Þar er m.a. kveðið á um skyldu atvinnurekenda til að sjúkratryggja erlenda starfsmenn fyrstu sex mánuði dvalar á Íslandi. SA hafa tekið saman nokkur atriði um nýju lögin.
6.1.2003
65% kaupmáttaraukning lágmarkslauna frá 1995
Kaupmáttur lágmarkskauptaxta hefur aukist um 58% frá því í janúar 1995. Á sama tíma hefur kaupmáttur lágmarkstekjutryggingar aukist um 65%.