Vinnumarkaðsmál
23.1.2002
Atvinnuleysistryggingasjóður kaupir Engjateig 11
Atvinnuleysistryggingasjóður hefur fest kaup á því húsnæði sem Vinnumálastofnun hefur haft á leigu undanfarin ár til að hýsa skrifstofu Vinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins.
15.1.2002
Endurskoða þarf tilefni verðhækkana
Opinberir aðilar jafnt sem fyrirtækin verða að fara yfir og endurmeta tilefni verðlagshækkana, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í viðtali við Morgunblaðið. Framkvæmdastjóri ASÍ segir enga ástæðu til að menn fari á taugum, þótt svigrúmið sé lítið.
11.1.2002
Evrópskt atvinnulíf kallar eftir samkeppnishæfni
Aukinn sveigjanleiki á vinnumarkaði og minni skriffinskubyrði eru meðal þess sem formenn samtaka atvinnulífs í öllum fimmtán aðildarríkjum ESB fara fram á í opnu bréfi til forsætisráðherra Spánar, sem nú gegnir formennsku í ESB.
3.1.2002
Vinnumarkaður að róast
Samkvæmt könnun Samtaka atvinnulífsins ætla fyrirtæki að fækka starfsfólki um tæpt hálft prósent næstu tvo til þrjá mánuði. Í bili virðist sem þenslunni sé lokið á vinnumarkaði höfuðborgarsvæðisins. Eftirspurnin eykst hins vegar á landsbyggðinni.
2.1.2002
Ný kaupgjaldsskrá Samtaka atvinnulífsins
Kaupgjaldsskrá SA fyrir árið 2002 er komin á vefinn. Hér er um að ræða launataxta verkafólks, verslunarmanna og iðnaðarmanna. Laun hækka um 3,0% en kauptaxtar verkafólks og verslunarmanna taka þó meiri hækkun. Skráin er birt á vefnum á pdf- sniði. Pappírsútgáfan er send öllum aðildarfyrirtækjum SA. Sjá nánar.











